Verslun
Leit
SÍA

4. júní 2016

EM 2016 sýnt í yfir 200 löndum

Aðdáendur A landsliðs karla ættu ekki að vera í vandræðum með að sjá leiki liðsins á EM 2016 í beinni útsendingu, hvar svo sem í heiminum þeir verða staddir.  Leikir keppninnar eru sýndir í yfir 200 löndum um allan heim.

Landslið

3. júní 2016

A kvenna - Mögnuð frammistaða og öruggur sigur í Falkirk

Ísland vann frábæran sigur á Skotum í kvöld í undankeppni EM en leikið var í Falkirk.  Lokatölur urðu 0 - 4  eftir að Ísland hafði leitt 0 – 1 í leikhléi.  Sigurinn var ákaflega öruggur, íslenska liðið sterkari aðilinn allan leikinn og sýndi frammstöðu sem hlýtur teljast ein sú besta sem íslenskt kvennalandslið hefur sýnt.

Landslið

3. júní 2016

A kvenna - Byrjunarliðið gegn Skotum

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Skotum í undankeppni EM í kvöld en leikið er í Falkirk.  Leikurinn er í beinni útsendingu á RUV og hefst leikurinn kl. 18:00 að staðartíma.

Landslið

3. júní 2016

A kvenna - Ísland mætir Skotlandi í kvöld

Skotar og Íslendingar mætast í kvöld í undankeppni EM kvenna og hefst leikurinn kl. 18:00 að íslenskum tíma á Falkirk vellinum.  Þarna mætast toppliðin tvo í riðlinum sem berjast hatrammri baráttu um efsta sæti riðilsins og þar með öruggt sæti í úrslitakeppni EM í Hollandi 2017.

Landslið

2. júní 2016

Áfrýjunardómstóll KSÍ - Staðfestir úrskurð aga- og úrskurðarnefndar

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð aga-og úrskurðarnefndar um að vísa máli Stjörnunnar gegn mótanefnd KSÍ frá.  Stjarnan kærði ákvörðun mótanefndar um að fresta ekki tveimur leikjum félagsins í Pepsi-deild karla.

Agamál

2. júní 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 á höfuðborgarsvæðinu

Halldór Björnsson yfirmaður hæfileikamótunar mun vera með æfingar miðvikudaginn 8. júní fyrir stráka á höfuðborgarsvæðinu fædda 2003.  Æfingar verða í Kórnum í Kópavogi.

Fræðsla

2. júní 2016

A kvenna - Stelpurnar á sögufrægum slóðum

Það má með sanni segja að íslenski hópurinn sé á sögufrægum slóðum hér í Skotlandi og tengist það mikið helstu sjálfstæðishetju Skota, William Wallace. 

Landslið

2. júní 2016

A kvenna - Fyrsti leikurinn var gegn Skotum

Ísland og Skotland hafa mæst 8 sinnum hjá A landsliði kvenna og var fyrsti kvennalandsleikur Íslands einmitt gegn Skotum.  Það var vináttulandsleikur sem fram fór í Kilmarnock, 20. september 1981.  Lauk honum með sigri Skota, 3 - 2

Landslið

2. júní 2016

A kvenna - Tvær góðar æfingar í gær

Hér í Falkirk heldur undirbúningur kvennalandsliðsins áfram fyrir leikinn mikilvæga gegn Skotum, sem fram fer föstudaginn 3. júní.  Tvær æfingar fóru fram í gær og voru þær á velli við háskólann í Sterling.

Landslið

2. júní 2016

A kvenna - "Brunaæfing" í Falkirk

Það getur ýmislegt komið upp á í landsliðsferðum og í nótt var landsliðshópnum, ásamt öðrum hótelgestum, boðið upp á "brunaæfingu" og þurftu allir að yfirgefa herbergi sín og koma sér út úr húsi.  Reyndar var engin skipulögð æfing í gangi heldur fór brunavarnarkerfi hótelsins í gang um kl. 02:00 í nótt þegar allir voru í fastasvefni. 

Landslið

1. júní 2016

Úrskurður í máli Stjörnunnar gegn mótanefnd KSÍ

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir á fundi sínum 31. maí síðastliðinn, kæru Stjörnunnar gegn mótanefnd KSÍ vegna beiðni kæranda að fresta leikjum félagsins í Pepsi-deild karla.  Aga- og úrskurðarnefnd vísaði málinu frá.

Agamál

1. júní 2016

Úrskurður í máli HK/Víkings gegn Stjörnunni/Skínanda

Á fundi sínum 31. maí tók aga- og úrskurðarnefnd fyrir mál nr. 2/2016, HK/Víkingur gegn Stjörnunni/Skínanda.  HK/Víkingur taldi lið Stjörnunnar/Skínanda í viðureign liðanna í 2. flokki kvenna, ólöglega skipað.

Agamál

1. júní 2016

A karla - Tap gegn Noregi

Ísland tapaði 3-2 gegn Noregi í vináttulandsleik sem fram fór á Ulleval-vellinum í Osló í kvöld. Norðmenn komust yfir eftir um 40 sekúndna leik en íslenska liðið lét það ekki slá sig útaf laginu og jafnaði metin á 36. mínútu með laglegu marki Sverris Inga Ingasonar.

Landslið

1. júní 2016

Flestir leika utan Noregs

Flestir leikmannanna í norska landsliðshópnum sem mætir Íslandi í vináttuleik í Osló á miðvikudag er á mála hjá félagsliðum utan Noregs.  Leikurinn við Ísland er annar í þriggja leikja hrinu vináttulandsleikja Norðmanna, sem hafa þegar leikið við Portugal, og leika við Belgíu 5. júní.

Landslið

31. maí 2016

A kvenna - Skoski hópurinn sem mætir Íslandi

Alls eru 12 leikmenn í 20 manna leikmannahópi skoska liðsins sem leika utan landssteinanna en flestir leikmenn koma fram Glasgow FC, fjórir talsins.  Ekkert lið hefur skorað fleiri mörk að meðaltali í leik í undankeppni EM að svo stöddu, heldur en Skotar.  Mörkin hafa verið 5,4 að meðaltali í leik og markahæsti leikmaðurinn til þessa í keppninni er framherjinn Jane Ross með átta mörk

Landslið

31. maí 2016

Byrjunarlið Íslands á Ullevaal

A landslið karla mætir Noregi í vináttuleik í Osló í kvöld.  Leikið er á Ullevaal-leikvanginum og verður leikurinn, sem hefst kl. 17:45, í beinni útsendingu á RÚV.  Byrjunarlið íslenska liðsins hefur verið opinberað.

Landslið

31. maí 2016

A kvenna - Dagný komin til Falkirk

Allur hópurinn er nú kominn saman í Falkirk en Dagný Brynjarsdóttir kom til móts við hópinn í dag.  Dagný var að leika með félagsliði sínu í Bandaríkjunum á sunnudagskvöld og ferðalag frá vesturströnd Bandaríkjanna tekur sinn tíma.

Landslið

31. maí 2016

A landslið karla mætir Noregi í dag

A-landslið karla leikur í dag vináttulandsleik við Noreg á Ullevål-vellinum í Osló. Leikurinn er hluti af lokaundirbúningi liðsins fyrir EM í Frakklandi en seinasti leikur Íslands verður gegn Liechtenstein þann 6. júní og er miðasala á leikinn í fullum gangi.

Landslið