Verslun
Leit
SÍA

31. maí 2016

Knattspyrnuskóli drengja á Laugarvatni 6. – 10. júní

Knattspyrnuskóli drengja  fer fram í næstu viku að Laugarvatni. Leikmenn í skólanum í ár fæddir 2002.

Fræðsla

31. maí 2016

"Allt eða ekkert"

Skotar eru ekkert að draga undan þegar þeir auglýsa leik Skotlands og Íslands í undankeppni EM kvenna sem fram fer í Falkirk, föstudaginn 3. júní.  Þeir auglýsa hann með yfirskriftinni "Allt eða ekkert".  Þó svo að örugglega megi rökræða fram og til baka um þá fullyrðingu þá er alveg ljóst að það er mikið undir í þessum leik.

Landslið

30. maí 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir Suðurnes

Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Suðurnes verður í Grindavík fimmtudaginn 2. júní. Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka sem eru fædd 2002 og 2003. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Fræðsla

30. maí 2016

Miðasala á Ísland – Liechtenstein gengur vel

Miðasala fyrir síðasta vináttuleik A landsliðs karla fyrir EM 2016 í Frakklandi er í fullum gangi á midi.is. Leikurinn, sem er gegn liði Liechtenstein, fer fram á Laugardalsvellinum 6. júní næstkomandi.

Landslið

30. maí 2016

Allur 23 manna hópurinn kominn saman í Osló

A landslið karla er saman komið í Osló, þar sem liðið mætir Norðmönnum á miðvikudag.  Allur 23 manna hópurinn sem valinn var fyrir úrslitakeppni EM er þar með saman kominn.  Æft var í dag, mánudag, á hinum fræga Bislett leikvangi í Osló, í sól og blíðu. 

Landslið

30. maí 2016

Undankeppni HM 2018:  Leikið fyrir luktum dyrum í Úkraínu og Króatíu

Ljóst er að ekki verða margir áhorfendur á fyrstu útileikjum A landsliðs karla í undankeppni HM 2018 sem hefst í september næstkomandi.  FIFA hefur tilkynnt að fyrstu heimaleikir Úkraínu og Króatíu í keppninni verði leiknir fyrir luktum dyrum vegna hegðunar stuðningsmanna í vináttuleikjum fyrr á árinu.

Landslið

30. maí 2016

A kvenna - Stelpurnar komnar til Falkirk

Kvennalandsliðið er komið til Skotlands, nánar tiltekið til Falkirk, en þar verður leikið við Skota í undankeppni EM, föstudaginn 3. júní.  Fyrsta æfing hópsins var í dag og tóku allir leikmenn þátt í henni að undanskildri Dagnýju Brynjarsdóttur, serm kemur til móts við hópinn á morgun.

Landslið

28. maí 2016

A kvenna - Mikilvægir leikir við Skotland og Makedóníu

A landslið kvenna mætir Skotlandi og Makedóníu í tveimur mikilvægum leikjum í undankeppni EM 2017 í næsta mánuði. Fyrri leikurinn er gegn Skotum ytra 3. júní og sá seinni á Laugardalsvellinum 7. júní. Leikmannahópur Íslands var tilkynntur á fjölmiðlafundi í höfuðstöðvum KSÍ nýverið

Landslið

26. maí 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir Austurland

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir Austurland verður á Egilsstöðum laugardaginn 28.maí og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4. flokki. Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Fræðsla

26. maí 2016

24 útskrifuðust með  KSÍ A/UEFA A þjálfaragráðu

Laugardaginn 21. maí útskrifaði fræðsludeild KSÍ 24 þjálfara með KSÍ A/UEFA A þjálfaragráðu. Námskeiðið hófst í september 2015 þegar þjálfararnir leikgreindu leiki í Pepsi-deild karla og lærðu í kjölfarið á leikgreiniforritið Sideline Analyser.

Fræðsla

25. maí 2016

Fylkir og Keflavík sektuð vegna framkomu þjálfara

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar þann 24. maí síðastliðinn voru Keflavík og Fylkir sektuð um 75.000 krónur, hvort félag, vegna framkomu þjálfaranna, Hermanns Hreiðarssonar og Þorvalds Örlygssonar.

Agamál

25. maí 2016

Þóroddur á CORE námskeiði í Sviss

Þóroddur Hjaltalín er um þessar mundir staddur í Nyon í Sviss þar sem hann er á svokölluðu CORE dómaranámskeiði.  Þetta er námskeið, haldið af UEFA, fyrir FIFA dómara til að undirbúa þá fyrir alþjóðleg verkefni.

Dómaramál

24. maí 2016

Ísland - Liechtenstein: Miðar fyrir handhafa A og DE skírteina

Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á vináttulandsleik Íslands og Liechtenstein , fimmtudaginn 26. maí frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00, eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.

Landslið

23. maí 2016

Hvernig er að vera hinsegin íþróttamanneskja á Íslandi í dag?

Miðvikudaginn 25. maí verður haldinn opinn hádegisfundur í Íþróttamiðstöð ÍSÍ í Laugardal. María Helga Guðmundsdóttir, landsliðskona í karate, íþróttaþjálfari og jafningjafræðari á vegum Samtakanna '78, fjallar um stöðu hinsegin fólks í íþróttum og leiðir til að stuðla að því að allt íþróttafólk geti hámarkað árangur og ánægju í íþróttaheiminum.

Fræðsla

20. maí 2016

Gunnar Jarl 4. dómari á úrslitaleik EM U17 karla

Gunnar Jarl Jónsson milliríkjadómari, sem er við störf fyrir UEFA í úrslitakeppni EM U17 landsliða karla í Aserbaídsjan um þessar mundir, hefur verið valinn í dómarateymi úrslitaleiks mótsins, milli Spánar og Portúgals, sem fram fer á laugardag.

Dómaramál

19. maí 2016

130 manns hlýddu á umfjöllun um borgirnar og leikstaðina á EM

Rétt tæplega 130 manns gerðu sér ferð í Laugardalinn í vikunni á súpufund hjá KSÍ til að hlýða á Gerard Lemarquis, kennara og fréttaritara, fjalla um borgirnar og leikstaðina á EM 2016 í Frakklandi.  Erindið var tekið upp og er nú aðgengilegt þeim sem misstu af og áhuga hafa á að hlusta á það sem Gerard hafði að segja.

Fræðsla

17. maí 2016

Gunnar Jarl fjórði dómari í undanúrslitaleik á EM U17 karla

Gunnar Jarl Jónsson verður fjórði dómari á undanúrslitaleik Portúgals og Hollands á lokamóti EM U17 karla sem fram fer í Azerbaijan.

Dómaramál

15. maí 2016

Súpufundur um borgir sem leikið verður í á EM

Miðvikudaginn 18. maí mun Gerard Lemarquis halda fyrirlestur í höfuðstöðvum KSÍ milli kl: 12:00-13:00. Gérard mun fjalla um borgirnar þrjár, þar sem íslenska karlalandsliðið mun leika í á EM í Frakklandi í sumar; Marseille, Saint-Etienne og Saint-Denis-Paris. Fjallað verður um sögu leikvallanna í þessum borgum, um borgirnar sjálfar og um áhugaverða staði í nágrenninu.

Landslið