Verslun
Leit
SÍA

8. febrúar 2016

A kvenna - Ísland leikur við Pólland í dag, sunnudag

A landslið kvenna leikur vináttulandsleik gegn Póllandi í dag, sunnudag. Leikurinn fer fram í Nieciecza í Póllandi á Stadion Bruk-Bet Nieciecza vellinum og hefst hann klukkan 11:00.

Landslið

8. febrúar 2016

Miðasala á Danmörk - Ísland 24. mars

A landslið karla leikur tvo vináttulandsleiki í mars, fyrst gegn Dönum í Herning 24. mars og síðan gegn Grikkjum í Aþenu 29. mars.  Opnað hefur verið fyrir miðasölu á leikinn við Dani á miðasöluvef danska knattspyrnusambandsins.

Landslið

5. febrúar 2016

Úrtaksæfingar U17 – leikmenn fæddir 1999 og 2000

Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U 17 liðs karla. Æfingarnar fara fram undir stjórn Halldórs Björnssonar, þjálfara U17 landsliðs Íslands. Athugið að um tvo árganga er að ræða.

Landslið

5. febrúar 2016

Rekstur KSÍ í samræmi við áætlun

Rekstur KSÍ á árinu 2015 var í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun á ársþingi 2015. Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2015 námu 1.112 milljónum króna samanborið við 1.067 milljónir króna árið á undan. Eignir námu 581 milljón króna en þar af var handbært fé 152 milljónir. Eigið fé KSÍ var 221 milljón króna í árslok 2015.

Ársþing

5. febrúar 2016

Hæfileikamótun KSÍ og N1 - Suðurnes

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram í Reykjaneshöllinni þriðjudaginn 9. febrúar. Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka sem eru fædd 2002 og 2003.

Fræðsla

4. febrúar 2016

Vináttulandsleikir U17 kvenna við Skotland - Seinni leikurinn er í dag, fimmtudag

U17 kvenna leikur tvo vináttulandsleiki við Skotland í vikunni. Fyrri leikurinn er þriðjudaginn 2. febrúar klukkan 19:15 en sá seinni er fimmtudaginn 4. febrúar klukkan 13:00.

Landslið

4. febrúar 2016

U17 kvenna - Annar sigur á Skotum

U17 ára lið kvenna vann í dag 4-2 sigur á Skotlandi í vináttulandsleik en þetta var seinni leikur liðanna í vikunni. Fyrri leikurinn endaði 3-0 fyrir Íslandi.

Landslið

4. febrúar 2016

Ísland í 38. sæti á heimslista FIFA

Karlalandsliðið er í 38. sæti á heimslista FIFA sem var birtur í dag. Liðið fellur um tvö sæti frá seinasta lista en af Norðurlandaþjóðunum eru Svíar eina liðið sem er fyrir ofan Ísland. Sænska liðið er í 35. sætinu og fellur um eitt sæti frá seinasta lista.

Landslið

2. febrúar 2016

U17 kvenna - Öruggur sigur á Skotum

Stelpurnar í U17 ára landsliði Íslands unnu í kvöld, þriðjudag, öruggan 3-0 sigur á Skotlandi í vináttulandsleik. Íslenska liðið lék agaðan fótbolta og gaf ekkert eftir í leiknum.

Landslið

2. febrúar 2016

Æfingahópur vegna A-landsliðs kvenna

Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í æfingahóp A landsliðs kvenna vegna vináttuleiks gegn Póllandi. Leikurinn fer fram í Nieciecza þann 14. febrúar á Termalika Bruk Bet club leikvangnum.

Landslið

2. febrúar 2016

Úrtaksæfingar U19 kvenna

Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U19 liðs kvenna. Æfingarnar fara fram undir stjórn Þórðar Þórðarsonar þjálfara U19 landsliðs Íslands.

Landslið

1. febrúar 2016

KSÍ IV þjálfaranámskeið 5.-7. febrúar 2016

KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 5.-7. febrúar 2015. Námskeiðið fer fram í Reykjavík, Hveragerði og á Akranesi. Dagskrá námskeiðsins má finna hér í viðhengi.

Fræðsla

1. febrúar 2016

Framboð á 70. ársþingi KSI

Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ minnst hálfum mánuði fyrir þing. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests. 

Ársþing

31. janúar 2016

Bandarískur sigur á StubHub Center - Viðtöl

Bandaríkin unnu 3-2 sigur á Íslandi í vináttulandsleik sem fram fór á StubHub Center vellinum í Carlson í kvöld, sunnudag. Fimm íslenskir leikmenn léku sinn fyrsta A-landsleik í leiknum.

Landslið

31. janúar 2016

Byrjunarlið Íslands gegn Bandaríkjunum

A landslið karla mætir Bandaríkjunum í vináttuleik í Los Angeles á sunnudag. Byrjunarlið Íslands í leiknum hefur verið opinberað. Eiður Smári Guðjohnsen verður í framlínunni með fyrirliðabandið og nýliðinn Aron Sigurðarson verður á vinstri kantinum.

Landslið

31. janúar 2016

Búist við um 10.000 áhorfendum

A landslið karla mætir liði Bandaríkjanna í vináttulandsleik í Carson, Los Angeles á sunnudag.  Á sjöunda þúsund miða hafa selst á leikinn, en leikvangurinn sem leikið verður á, StubHub Center, heimavöllur LA Galaxy sem leikur í MLS-deildinni, tekur 27.000 manns í sæti.

Landslið

30. janúar 2016

FIFA kynnir nýtt fræðsluverkefni fyrir lækna og sjúkraþjálfara

FIFA kynnti nýverið fræðsluverkefnið FIFA Diploma in Football Medicine sem miðar að því að styðja við lækna og sjúkraþjálfara í þeirra starfi, sér í lagi við greiningu og meðhöndlun meiðsla knattspyrnumanna.  Um er að ræða námskeið sem tekið er í gegnum vef FIFA.

Fræðsla

30. janúar 2016

Diego:  "Mig dreymir um að spila fyrir Ísland í framtíðinni" 

Diego Jóhannesson er í leikmannahópnum hjá A landsliði karla fyrir vináttuleikinn við Bandaríkin, sem fram fer í Carson, Los Angeles á sunnudag.  Diego líst vel á verkefnið og vonast eftir tækifæri í leiknum, sem fram fer á Stubhub Center leikvanginum, hefst kl. 20:45 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á RÚV2.

Landslið