29. janúar 2016
Ársþing KSÍ, það 70. í röðinni verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica, 13. febrúar næstkomandi.  Þingið verður sett kl. 10:30 að þessu sinni.  Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar og gögn:
29. janúar 2016
Umsóknarglugginn fyrir almenna miða á EM í Frakklandi sem opnaði þann 18. janúar lokar 1. febrúar n.k. Allir þeir sem eru ekki með umsókn nú þegar í ferli á vef UEFA geta sótt um miða á alla leiki mótsins.
29. janúar 2016
Dómararnir í vináttulandsleik Bandaríkjanna og Íslands á sunnudag koma frá Kosta Ríka. Dómari verður Jeffrey Solis, 41 árs dómari með mikla reynslu. Aðstoðardómarar verða samlandar hans, þeir Warner Castro og Carlos Fernandez, og fjórði dómari verður Ricardo Montero.
28. janúar 2016
A landslið karla mætir Bandaríkjunum í vináttuleik í Los Angeles næstkomandi sunnudag. Leikurinn fer fra á StubHub Center leikvanginum, heimavelli LA Galaxy, sem leikur í MLS deildinni þar í landi. Nær allir í 26 manna hópi Bandaríkjanna eru á mála hjá MLS liðum.
28. janúar 2016
Hæfileikamótun KSÍ og N1 fer fram á Hornafirði miðvikudaginn 3. febrúar. Æfingarnar eru fyrir bæði stelpur og stráka sem eru fædd 2002 og 2003.
27. janúar 2016
KSÍ heldur súpufund miðvikudaginn 3. febrúar klukkan 12:00-13:00 í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli. Fyrirlesari er körfuknattleiksþjálfarinn Pálmar Ragnarsson.
27. janúar 2016
Í samræmi við samþykktir 68. og 69. ársþings KSÍ hefur verið unnið að tillögum um breytingar á reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga.  Um viðamiklar breytingar er að ræða og ákvað stjórn KSÍ því að halda kynningarfundi um tillögurnar.
26. janúar 2016
Þessa dagana er Hæfileikamótun KSÍ og N1 að fara af stað á árinu 2016.  Eins og áður hefur komið fram verður byrjað að þessu sinni á Norðurlandi en dagskráin næstu vikurnar er annars svohljóðandi:
25. janúar 2016
Þessa dagana er Hæfileikamótun N1 og KSÍ að fara af stað og er það Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.  Fyrsti staðurinn sem Halldór heimsækir er Akureyri.
25. janúar 2016
Leikmannahópur A landsliðs karla fyrir vináttuleikinn við Bandaríkin var birtur á vef KSÍ í dag, mánudag, en liðin mætast í Los Angeles 31. janúar.  Líkt og í fyrra janúarverkefni liðsins segir Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara liðsins, að markmiðið sé að breikka hópinn og skoða fleiri leikmenn.
25. janúar 2016
A landslið karla mætir Bandaríkjunum í vináttuleik í Los Angeles 31. janúar næstkomandi.   Fimm nýliðar eru í hópnum og fimm leikmenn tóku einnig þátt í fyrra janúarverkefni liðsins, en líkt og þá koma flestir leikmennirnir frá félagsliðum á Norðurlöndunum. 
24. janúar 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U19 liðs karla. Æfingarnar fara fram undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar þjálfara U19 landsliðs Íslands.
24. janúar 2016
Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U 16 liðs karla. Æfingarnar fara fram undir stjórn Freys Sverrissonar, þjálfara U16 landsliðs Íslands.
22. janúar 2016
KSÍ hefur komist að samkomulagi við Knattspyrnusamband Liechtenstein um vináttuleik A karla á Laugardalsvelli 6. júní.  Leikmenn og stuðningsmenn íslenska liðsins fá því tækifæri til að kveðjast á heimavelli áður en haldið er í víking til Frakklands.
21. janúar 2016
KSÍ hefur komist að samkomulagi við Knattspyrnusamband Danmerkur um vináttuleik A landsliðs karla fimmtudaginn 24. mars næstkomandi.  Leikið verður í Herning í Danmörku.  Áður hafði verið tilkynnt um vináttuleik við Grikki í Aþenu 29. mars.  
20. janúar 2016
Á fundi stjórnar KSÍ 14. janúar 2016 var samþykkt ný reglugerð fyrir mannvirkjasjóð KSÍ.   Reglugerðin hefur þegar verið birt á heimasíðu KSÍ og gildir fyrir keppnistímabilin 2016-2019. Helstu breytingar á reglugerðinni er kynntar hér að neðan en mikilvægt er fyrir aðildarfélög KSÍ að kynna sér reglugerðina ítarlega.
18. janúar 2016
Af þeim 24 félögum sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ fyrir keppnistímabilið 2016, þ.e. félögin í efstu tveimur deildum karla, hafa 23 þegar skilað leyfisgögnum, en eitt félag fékk framlengdan skilafrest. Leyfisstjórn hefur þegar farið yfir gögnin og gert athugasemdir þar sem við á.
18. janúar 2016
Íslendingar búsettir hérlendis sem erlendis, sem og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis, gátu sótt um miða á leiki Íslands á EM 2016 til 18. janúar, í svæði á leikvangi sem voru sérstaklega ætluð stuðningsmönnum Íslands.