10. júlí 2015
Þann 22. júlí næstkomandi eru tímamót í sögu íslenskra knattspyrnulandsliða.  Þann dag eru liðin 50 ár frá fyrsta unglingalandsleik Íslands, en 22. júlí árið 1965 lék unglingalandslið karla gegn Dönum í Halmstad í Svíþjóð.  Til þess að minnast tímamótanna mun KSÍ bjóða leikmönnunum og fararstjórum liðsins til sérstakrar móttöku á Laugardalsvelli fyrir leik A landsliðs karla gegn Kasakstan þann 6. september næstkomandi.
10. júlí 2015
A landslið kvenna hækkar um tvö sæti á nýútgefnum styrkleikalista FIFA.  Íslenska liðið, sem situr nú í 18. sæti listans, lék einn leik frá því síðasti listi var gefinn út, en það var sigurleikur gegn Hollandi í Kórnum í apríl. Nýkrýndir heimsmeistarar Bandaríkjanna eru í efsta sæti.
9. júlí 2015
UEFA hefur staðfest nefndaskipan fyrir árin 2015-2019 og sem fyrr eru íslenskir fulltrúar á lykilsviðum. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður KSÍ, Lúðvík Georgsson, formaður leyfisráðs og Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, hafa verið skipuð í nefndir UEFA næstu fjögur árin.
9. júlí 2015
Vegna ósóttra miða á leikinn Holland-Ísland í undankeppni EM 2016 er minnt á að þau sem keyptu miða á á midi.is geta komið og sótt miðana á skrifstofu KSÍ, milli kl. 9:00-16:00 virka daga til 10. júlí. Dagana 13.-17. júlí verða þeir afhentir kl. 09:00-12:00 og 13:00-16:00.
9. júlí 2015
A landslið karla er í sinni hæstu stöðu á styrkleikalista FIFA frá því mælingar hófust. Á nýútgefnum lista er Ísland í 23. sæti af öllum aðildarþjóðum FIFA og ef einungis Evrópuþjóðir eru teknar með í reikninginn er Ísland númer 16 í röðinni og jafnframt efst Norðurlandaþjóða.
6. júlí 2015
Um liðna helgi lauk úrslitakeppni EM U17 kvenna, en eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um fór keppnin fram hér á landi.  Framkvæmd mótsins tókst í alla staði vel og er óhætt að segja að fjöldi áhorfenda á leikjum mótsins hafi verið framar vonum.  Flestir áhorfendur mættu á viðureign Spánar og Frakklands í undanúrslitum, eða 807.
6. júlí 2015
Úrtaksæfingar fyrir U17 landslið karla fara fram við Kórinn í Kópavogi dagana 11. og 12. júlí næstkomandi. Halldór Björnsson, þjálfari U17 karla, hefur boðað 29 leikmenn til æfinga og koma þeir frá 14 félögum.
5. júlí 2015
Halldór Björnsson yfirmaður hæfileikamótunar mun vera með æfingar fyrir stelpur á höfuðborgarsvæðinu fæddar 2001 og 2002. Æfingarnar verða í Laugardal. Miðvikudaginn 8.júlí mæta leikmenn frá: Fjölni, Fram, Fylki, Gróttu, KR, Val, Víkingi og Þrótti.
4. júlí 2015
Spánn vann í dag Sviss í úrslitaleik í lokamóti U17 kvenna en leikurinn endaði með 5-2 sigri spænska liðsins. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur eins og tölurnar gefa til kynna en svo fór að það var Spánn sem lyfti bikarnum í leikslok.
4. júlí 2015
U17 landslið kvenna lék í dag, laugardag, um 7.-8. sætið á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Danmörku.  Leikið var gegn Englendingum og hófst hann kl. 08:30 að íslenskum tíma.  Skemmst er frá því að segja að Ísland vann 1-0 sigur og hafnaði því í sjöunda sæti á mótinu.
3. júlí 2015
Íslenska U17 ára lið kvenna tapaði 2-1 gegn Þýskalandi í seinasta leik riðilsins á Opna Norðurlandamóti kvenna sem fram fer í Danmörku.
3. júlí 2015
Úrslitaleikur í lokakeppni EM U17 kvenna fer fram á Valsvelli laugardaginn 4. júlí og verður blásið til leiks klukkan 16:00. Það verður frábær dagskrá fyrir leikinn og svo kemur í ljós hvort það verða Spánverjar eða Svisslendingar sem lyfta bikarnum í leikslok.
2. júlí 2015
Í tengslum við úrslitakeppni EM U17 kvenna hafa komið til landsins fjölmargir gestir Á úrslitaleiknum verður sérstakur gestur  Michael van Praag, einn af varaforsetum UEFA, sem mun m.a. afhenda verðlaunin til leikmanna að loknum úrslitaleiknum á laugardag.
1. júlí 2015
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur tekið fyrir mál nr. 1/2015, Fjölnir gegn HK/Víkingi.  Kærandi taldi kærða hafa teflt fram ólöglegum leikmanni í leik 2. flokks kvenna þann 21. júní.  Aga- og úrskurðarnefnd úrskurðaði kæranda í hag.
1. júlí 2015
Spánn tryggði sér sæti í úrslitaleik EM U17 kvenna með sigri á Frökkum en leikurinn endaði í vítakeppni. Spánn vann samanlagt 5-4 eftir vítakeppnina og mætir því Sviss eða Þýskalandi í úrslitaleiknum.
1. júlí 2015
Íslenska U17 lið kvenna sem leikur á Opna Norðurlandamótinu í Danmörku varð að sætta sig við 1-0 tap gegn Noregi. Leikurinn var jafn heilt yfir en norsku stelpurnar skoruðu markið sem skildi að lokum liðin að.
1. júlí 2015
Sviss leikur við Spán í úrslitaleik U17 kvenna en svissneska liðið vann 1-0 sigur á Þýskalandi í undanúrslitum. Sviss vann 1-0 sigur á Þýskalandi í undanúrslitum í spennandi leik.
30. júní 2015
Undanúrslit EM U17 kvenna fara fram miðvikudaginn 1. júlí á Valsvellinum við Hlíðarenda. Kl. 13:00 mætast Spánn og Frakkland og kl. 19:00 mætast Sviss og Þýskaland.