Verslun
Leit
SÍA

30. júní 2015

Íslenskir dómarar í Evrópudeildinni

Íslenskir dómarar eru að fá úthlutuð verkefni í Evrópu um þessar mundir en Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildin eru að fara af stað.

Dómaramál

30. júní 2015

Opna NM U17- Tap gegn Svíum í fyrsta leik

Fyrsti leikur Íslands u-17 ára landsliðsins kvenna á Norðurlandamótinu fer fór fram í gær, mánudag. Ísland tók þá á móti sænsku stelpunum.

Landslið

29. júní 2015

Glatt á hjalla þegar liðin á U17 skemmtu sér saman

Það var glatt á hjalla þegar leikmann allra liða á U17 hittust og áttu góða kvöldstund saman. Hérna eru myndir frá kvöldinu þar sem Jón Ragnar Jónson, fótboltamaður með meiru, átti stórleik.

Landslið

29. júní 2015

U17 - Ísland leikur við Svíþjóð á NM

U17 ára landslið kvenna lék seinasta leik sinn lokamóti U17 í gær, sunnudag. Það eru samt annað U17 kvennalið í eldlínunni en það tekur þátt á Norðurlandamóti sem hefst í dag í Danmörku. Íslenska liðið leikur við Svía í dag en liðið leikur svo við Noreg og Þýskaland en þessi lið erum með Íslandi í riðli B.

Landslið

28. júní 2015

U17 - Spánn og Þýskaland í undanúrslitin

Þjóðverjar unnu öruggan sigur á Englendingum í kvöld þegar liðin mættust í úrslitakeppni U17 kvenna á Fylkisvelli. Lokatölur urðu 5 – 0 fyrir Þýskaland eftir að þeir höfðu tveggja marka forystu í leikhléi. Með sigrinum tryggði þýska liðið sér sæti í undanúrslitum þar sem Sviss verður mótherjinn.

Landslið

28. júní 2015

U17 - Sviss tryggði sér efsta sætið í B-riðli

Það verða Sviss og Frakkland sem fara í undanúrslit úrslitakeppni U17 kvenna úr B-riðli en þetta varð ljóst eftir leiki dagsins.  Sviss gerði sér lítið fyrir og skaust í efsta sætið með því að leggja Frakka að velli en Frakkar höfðu þegar tryggt sér sæti undanúrslitum.  Norðmenn, sem lögðu Íra með tveimur mörkum gegn engu, sitja eftir.

Landslið

28. júní 2015

U17 - Frakkland og Sviss í undanúrslitin

Það er ljóst að Frakkland og Sviss leika í undanúrslitum á lokamóti U17 kvenna. Sviss vann Frakkland 2-1 á meðan Noregur vann Írland 2-0 og Sviss vinnur því B-riðilinn með 7 stig en Frakkar koma næst með 6 stig.

Landslið

28. júní 2015

U17 - Ísland leikur við Spán á Kópavogsvelli

Það er seinasti leikdagurinn í dag í lokamóti U17 kvenna sem fram fer á Íslandi. Á miðvikudaginn eru undanúrslit og það skýrist því hvaða lið leika í undanúrslitum en eitt lið, Frakkland, hefur þegar tryggt sér sæti þar.

Landslið

27. júní 2015

Þorvaldur dæmir leik Crusaders og Levadia Tallin í Meistaradeildinni

Íslenskir dómarar dæma leik Crusaders FC (Norður Írland) og FC Levadia Tallinn (Eistland) í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fram fram þann 30. júní.

Dómaramál

27. júní 2015

Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir Austurland

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Austurland verður á Egilsstöðum þriðjudaginn 30. júní og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4.flokki.  Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Fræðsla

26. júní 2015

Færeyskur dómari að störfum næstu daga

Færeyski dómarinn, Eiler Rasmussen, verður við störf hér á landi næstu dag og dæmir hér 2 leiki.  Hann dæmir leik KV og Njarðvíkur í 2. deild karla í kvöld, föstudaginn 26. júní og á sunnudaginn dæmir hann leik Fjölnis og FH í Pepsi-deild karla.

Dómaramál

26. júní 2015

Miðar á Holland - Ísland tilbúnir til afhendingar

Þeir sem keyptu miða á Holland – Ísland inn á www.midi.is geta komið og sótt miðana sína á skrifstofu KSÍ á Laugardalsvelli, milli kl. 8:00-16:00 virka daga til 10. júlí. Viðkomandi þarf að framvísa staðfestingu á miðakaupum.

Landslið

25. júní 2015

U17 - Spænskur stórsigur

Tveir leikir fóru fram í dag í úrslitakeppni U17 kvenna en leikið var á Akranesvelli og Laugardalsvelli.  Spánverjar unnu nokkuð óvæntan stórsigur á Þjóðverjum, 4 - 0 en á Laugardalsvelli dugði eitt mark Sviss  til að leggja Íra.

Landslið

25. júní 2015

U17 - Ísland mætir Englandi á Akranesi

Það er leikdagur á lokamóti U17. Fjórir skemmtilegir leikir í boði. Í dag, fimmtudag, er spilað á Akranesvelli og Laugardalsvelli en leikirnir sem áttu að fara fram á Víkingsvelli voru færðir á Laugardalsvöll vegna vallaraðstæðna.

Landslið

25. júní 2015

U17 - Frakkar með fullt hús

Frakkar unnu sigur á Norðmönnum í úrslitakeppni EM U17 kvenna en leikið var á Laugardalsvelli í kvöld.  Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Frakka og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik.  Frakkar hafa því tryggt sér sæti í undanúrslitum en Sviss og Noregur berjast um hitt undanúrslitasætið úr B-riðli

Landslið

25. júní 2015

U17 - Englendingar höfðu betur á Akranesi

Íslensku stelpurnar í U17 léku í kvöld annan leik sinn í úrslitakeppni EM U17 kvenna.  Leikið var gegn Englandi á Akranesi og höfðu gestirnir betur, 1 - 3. Annað tap Íslands á mótinu og ljóst að liðið kemst ekki í undanúrslitin að þessu sinni.  Baráttan er hinsvegar hörð í A-riðli en England og Spánn hafa fjögur stig en Þýskaland er með þrjú.

Landslið

24. júní 2015

Dreifimiði með öllum leikjum mótsins

Lokamót U17 kvenna heldur áfram á morgun en leikirnir sem áttu að fara fram á Víkingsvelli hafa verið færðir á Laugardalsvöll vegna vallaraðstæðna.

Landslið

23. júní 2015

Tveimur leikjum á EM U17 kvenna breytt

Vegna vallaraðstæðna á Víkingsvelli hefur verið ákveðið að færa þá tvo leiki í úrslitakeppni EM U17 kvenna sem þar áttu að fara fram, og hafa þeir leikir nú verið settir á Laugardalsvöll.  Um er að ræða tvo leiki í B-riðli fimmtudaginn 25. júní.

Landslið