20. maí 2015
Þjálfarar félaga í Pepsi-deild karla komu saman í höfuðstöðvum KSÍ í byrjun vikunnar og hlýddu á fyrirlestur Boga Ágústssonar, landskunns fréttamanns af RÚV, um framkomu í fjölmiðlum. Megininntak fyrirlesturs Boga snerist um sjónvarpsviðtöl og góð ráð tengd þeim.
20. maí 2015
Á súpufundi hjá KSÍ í vikunni flutti Stefán Pálsson sagnfræðingur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um sögu svokallaðs "hooliganisma", eða óláta í tengslum við knattspyrnu og knattspyrnuleiki. Fyrirlesturinn var vel sóttur og var gerður góður rómur að málflutningi Stefáns.
19. maí 2015
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Tékklands í undankeppni EM, fimmtudaginn 21. maí frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00 eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
19. maí 2015
Markaðsherferðin Ekki tapa þér bendir á mikilvægi þess að sýna góða hegðun í hvívetna og minnir okkur á að við erum öll fyrirmyndir. Herferðin á seinasta ári beindist að forráðamönnum leikmanna á krakkamótum. Áherslan í ár er á hegðun í áhorfendastúkunni þar sem fólk á öllum aldri kemur saman til að upplifa skemmtilegan viðburð.
18. maí 2015
Knattspyrnusamband Evrópu býður upp á nám fyrir fyrrverandi landsliðmenn/atvinnumenn í knattspyrnu. Námskeiðið ber yfirskriftina UEFA Executive Master for International Players.
15. maí 2015
Uppselt er á leik Íslands og Tékklands í undankeppni EM 2016.  Miðasala hófst kl. 12:00 í dag, föstudag, eins og kynnt var á vef KSÍ.  Alls fóru um 4 þúsund miðar í sölu í dag og seldust þeir upp á skömmum tíma.  Um er að ræða toppslag í A-riðli.
15. maí 2015
Hæfileikamótun N1 og KSÍ verður í Borganesi miðvikudaginn 20.maí   Halldór Björnsson yfirmaður hæfileikamótunar mun vera með æfingu hjá bæði stelpum og strákum á Vesturlandi. Æfingar verða á Skallagrímsvelli í Borgarnesi.
15. maí 2015
Þriðjudaginn 19. maí verður súpufundur í höfuðstöðvum KSÍ klukkan 12:00-13:00. Þar mun Stefán Pálsson mun fjalla um framkomu og hegðun áhorfenda á knattspyrnuleikjum.
13. maí 2015
Föstudaginn 12. júní tekur Ísland á móti Tékklandi í undankeppni EM á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 18:45. Miðasala á leikinn hefst kl. 12:00 á hádegi, föstudaginn 15. maí, og fer fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
12. maí 2015
Á fundi stjórnar KSÍ 17. apríl sl. var samþykkt ný reglugerð um ferðaþáttökugjald sem sett var á grundvelli samþykktar ársþings KSÍ 2015 og er tilgangur hennar að auka jöfnuð félaga gagnvart ferðakostnaði.  Athygli félaga er vakin á því að greiðsludagur er föstudagurinn 15. maí og hafa reikningar þegar verið sendir út.
11. maí 2015
Lars Lagerbäck, annar af þjálfurum A landsliðs karla, verður í sérstakri tækninefnd UEFA (Technical Study Group) fyrir Evrópudeildina keppnistímabilið 2014/2015. Nefndin hefur það hlutverk að greina ýmsa knattspyrnulega þætti í tengslum við leiki keppninnar, allt frá forkeppni að úrslitaleik.
7. maí 2015
Ísland er ennþá í 38. sæti á heimslista FIFA sem birtur var í dag. Ísland lék tvo leiki á árinu en annar var 3-0 sigur á Kasakstan í Astana og svo 1-1 jafntefli gegn Eistlandi í lok mars. Efstu 17 sætin breytast ekki að þessu sinni og heilt yfir eru litlar breytingar á listanum.
7. maí 2015
Leikjaniðurröðun í úrslitakeppni EM U17 kvenna, sem fram fer hér á landi 22. júní til 4. júlí, liggur nú fyrir, en sem kunnugt er var dregið í riðla í Ráðhúsi Reykjavíkur í síðustu viku. Ísland leikur í A-riðli ásamt Þýskalandi, Spáni og Englandi.
30. apríl 2015
Þjóðverjar þykja sigurstranglegir á EM U17 kvenna í sumar. Þjálfari þýska liðsins, Anouschka Bernhard, var þó varkár í viðtali við KSÍ TV eftir að dregið var í riðla í ráðhúsi Reykjavíkur á miðvikudag og benti á að það væru fleiri lið en Þýskaland sem myndu koma til Íslands með það markmið að vinna mótið.
30. apríl 2015
Eins og kynnt hefur verið var dregið í riðla fyrir úrslitakeppni EM U17 kvenna í vikunni. Drátturinn fór fram í ráðhúsi Reykjavíkur og verður Ísland í riðli með ríkjandi Evrópumeisturum Þýskalands, Spánverjum og Englendingum. Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins, var í viðtali við KSÍ TV eftir dráttinn.
30. apríl 2015
Þriðjudaginn 12. maí mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir námskeiði sem ber yfirskriftina Styrktar- og meiðslafyrirbyggjandi þjálfun í knattspyrnu. Námskeiðið fer fram í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli og stendur frá kl. 18:00-22:00.
29. apríl 2015
Sandrine Soubeyrand er þjálfari U17 kvennalandsliðs Frakklands, sem er á meðal keppnisliða í úrslitakeppni EM hér á landi í sumar.  Soubeyrand, sem á að baki heila 198 A-landsleiki fyrir þjóð sína, ræddi við vefsíðu KSÍ eftir dráttinn í riðla, sem fram fór í ráðhúsi Reykjavíkur í dag, miðvikudag.
29. apríl 2015
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 7. maí kl. 18:00.  Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.