Verslun
Leit
SÍA

29. apríl 2015

Ísland í riðli með ríkjandi Evrópumeisturum

Dregið var í riðla í úrslitakeppni EM U17 kvenna í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, miðvikudag, en eins og kynnt hefur verið fer keppnin fram hér á landi í sumar, nánar tiltekið dagana 22. júní til 4. júlí.  Ísland er í A-riðli ásamt ríkjandi meisturum Þjóðverja, Spánverjum og Englendingum.

Landslið

28. apríl 2015

Velkomin til leiks

Boltinn fer að rúlla á völlum landsins um næstu helgi þegar Íslandsmótið í knattspyrnu hefst í 104. skipti. Reyndar hefst bikarkeppni KSÍ 1. maí nk. Langur undirbúningur er að baki og þar hefur deildarbikarkeppni KSÍ skipað veigamikinn sess.

Pistlar

27. apríl 2015

Óúttekin leikbönn 2015

Allir úrskurðir aganefndar 2014 um leikbönn voru tilkynntir félögunum með tölvupósti. Ef leikmaður hefur ekki tekið út leikbann sitt 2014 vegna brottvísunar flyst leikbannið í fyrsta eða fyrstu leiki í Íslandsmóti, bikarkeppni KSÍ eða Meistarakeppni KSÍ í viðkomandi flokki.  Þessi listi er hvorki tilkynning um leikbann né leysir hann leikmann undan leikbanni.

Agamál

26. apríl 2015

U17 kvenna endaði mótið með stórsigri

Síðasti leikur U17 ára kvennalandsliðsins var gegn heimastúlkum frá Færeyjum. Fyrir leikinn voru okkar stelpur búnar að tryggja sér sigur á mótinu. Leikurinn í dag endaði með stórsigri íslenska liðsins en lokatölur urðu 10-0.

Landslið

24. apríl 2015

Ný reglugerð um ferðaþátttökugjald

Á fundi stjórnar KSÍ 17. apríl sl. var samþykkt ný reglugerð um ferðaþáttökugjald sem sett var á grundvelli samþykktar ársþings KSÍ 2015 og er tilgangur hennar að auka jöfnuð félaga gagnvart ferðakostnaði.

Lög og reglugerðir

24. apríl 2015

Dregið í riðla í ráðhúsi Reykjavíkur 29. apríl

Úrslitakeppni EM U17 landsliða kvenna fer fram hér á landi í sumar, nánar tiltekið dagana 22. júní til 4. júlí.  Um er að ræða gríðarlega umfangsmikið verkefni og er fyrsti stóri viðburðurinn vegna þessa móts á dagskrá miðvikudaginn 29. apríl, en þá verður dregið í riðla í ráðhúsi Reykjavíkur.

Landslið

24. apríl 2015

U17 kvenna með stórsigur á Norður Írum

U17 ára lið kvenna vann í dag góðan 7-0 sigur á Norður Írlandi á æfingarmóti í Færeyjum. Íslenska liðið var mun betra eins og tölurnar gefa til kynna en lokatölur urðu 7-0 sigur íslenska liðsins.

Landslið

22. apríl 2015

Freyr Alexandersson: “Getum verið þolanlega sátt”

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, segist þolanlega sáttur með riðilinn sem Ísland leikur í en dregið var í undankeppni EM á mánudag. Freyr segir engu að síður að sumir mótherjar Íslands séu óþekktar stærðir og íslenska liðið muni því ekki vanmeta neitt lið.

Landslið

21. apríl 2015

Ísland hafnaði í efsta sæti undirbúningsmóts UEFA

U17 landslið karla gerði 1-1 jafntefli í lokaleik sínum í undirbúningsmóti UEFA, lauk keppni með 7 stig og hafnaði í efsta sæti mótsins. Frábær árangur hjá þessum efnilegu drengjum.  Færeyingar fengu aukastig með því að vinna vítakeppni eftir leikinn.

Landslið

20. apríl 2015

Héraðsdómaranámskeið á Egilsstöðum sunnudaginn 26. apríl

Héraðsdómaranámskeið verður haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Egilsstöðum sunnudaginn 26. apríl kl. 10:30. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.

Dómaramál

20. apríl 2015

Ísland í góðum riðli í undankeppni EM

Ísland er með Skot­landi, Hvíta-Rúss­landi, Slóven­íu og Makedón­ía í undankeppni EM. Riðillinn er ekki sá sterkasti sem hentar íslenska liðinu vel en við þurfum að ferðast ansi langt.

Landslið

20. apríl 2015

Dregið í dag í undankeppni EM kvenna

Í hádeginu verður dregið í riðla í undankeppni EM kvenna. Ísland er meðal þjóða og er íslenska liðið núna í efsta styrkleikaflokki. Það kemur svo í ljós fljótlega eftir dráttinn hvenær íslenska liðið hefur leik í undankeppninni.

Landslið

19. apríl 2015

Frábær endurkoma U17 karla gegn Norður-Írum

U17 landslið karla lék í dag, sunnudag, annan leik sinn í undirbúningsmóti UEFA sem fram fer í Færeyjum.  Mótherjar dagsins voru Norður-írar, sem byrjuðu leikinn af miklum krafti og skoruðu tvö mörk strax á fyrstu 5 mínútunum.  Okkar drengir sýndu frábæran karakter og hófu endurkomu sem lauk með 3-2 sigri Íslands.

Landslið

19. apríl 2015

U17 karla mætir Norður-Írlandi í dag

U17 lið karla leikur um helgina í undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum um helgina.  Sigur vannst á Wales í fyrsta leik og í dag, sunnudag, er leikið gegn Norður-Írlandi kl. 12:00 að íslenskum tíma.  Fréttir af framvindu mála,byrjunarliðið og fleira, eru á Facebook-síðu KSÍ.

Landslið

16. apríl 2015

Útgáfa fjölmiðlaskírteina KSÍ 2015

KSÍ og Samtök íþróttafréttamanna (SÍ) munu áfram eiga samstarf um útgáfu fjölmiðlaskírteina KSÍ (F-skírteini).  Útgáfan verður áfram í höndum KSÍ en SÍ mun taka á móti umsóknum fjölmiðla um skírteini og veita þeim faglega umsögn með sama hætti og gert var á síðasta ári.

Lög og reglugerðir

15. apríl 2015

U17 kvenna - Hópur fyrir undirbúningsmót UEFA í Færeyjum

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp sem leikur á undirbúningsmóti UEFA í Færeyjum en leikið verður dagana 23. - 26. apríl.  Mótherjarnir verða, auk heimamanna, Wales og Norður Írland.

Landslið

13. apríl 2015

Landsdómararáðstefna KSÍ 13. apríl

Líkt og leikmenn og aðrir, eru landsdómarar KSÍ í óða önn að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu sem er handan við hornið.  Dómarar hittast og funda reglulega og í dag, mánudaginn 13. apríl, fer fram ein af landsdómararáðstefnunum.

Dómaramál

13. apríl 2015

KSÍ B próf haldið 28. apríl - Uppfært

Þriðjudaginn 28. apríl stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er opið öllum þjálfurum sem hafa klárað KSÍ I, II, III, IV, KSÍ B þjálfaraskólann og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt. Þeir þjálfarar sem hyggjast taka KSÍ B prófið verða fyrst að taka Þjálfaraskóla KSÍ og ljúka honum í síðasta lagi viku fyrir próf, þ.e.a.s. þriðjudaginn 21. apríl, til að öðlast próftökurétt

Fræðsla