Verslun
Leit
SÍA

13. apríl 2015

Unglingadómaranámskeið hjá KA mánudaginn 20. apríl

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við KA og hefst kl. 20:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

10. apríl 2015

U17 karla - Hópur valinn fyrir UEFA mót í Færeyjum

Halldór Björnsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp sem leikur á undirbúningsmóti UEFA en leikið verður í Færeyjum.  Mótið fer fram dagana 18. - 21. apríl og auk heimamanna leika þarna Wales og Norður Írland.  Fyrsti leikur Íslands verður gegn Wales, laugardaginn 18. apríl.

Landslið

9. apríl 2015

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið í 38. sæti

Íslenska karlalandsliðið er í 38. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun.  Ísland fellur niður um 3 sæti frá síðasta lista en Þjóðverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans og Argentína er í öðru sæti.

Landslið

9. apríl 2015

Íslenskir dómarar útskrifast af CORE námskeiði

Þrír íslenskir dómarar, þeir Björn Valdimarsson, Bryngeir Valdimarsson og Ívar Orri Kristjánsson, luku á dögunum við CORE námskeið sem haldið er á vegum UEFA fyrir unga og efnilega dómara.

Dómaramál

9. apríl 2015

Unglingadómaranámskeið á Reyðarfirði fimmtudaginn 16. apríl

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við félögin á svæðinu og hefst kl. 19:30.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

9. apríl 2015

Unglingadómaranámskeið hjá Hetti fimmtudaginn 16. apríl

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Hött og hefst kl. 16:30.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

9. apríl 2015

Byrjunarlið Íslands gegn Rúmenum  | UPPFÆRT

Íslenska U19 ára landslið kvenna leikur við Rúmeníu í milliriðli fyrir EM í dag en leikurinn fer fram í Frakklandi.

Landslið

9. apríl 2015

U19 kvenna vann góðan sigur á Rúmeníu

Íslenska U19 lið kvenna vann í dag 3-0 sigur á Rúmeníu í seinasta leik liðsins í milliriðli vegna EM. Íslenska liðið var sterkari aðilinn í leiknum og náði að enda leik sinn í milliriðli með góðum sigri.

Landslið

6. apríl 2015

U19 landslið  kvenna tapaði fyrir Rússum

Íslenska U19 ára landslið kvenna tapaði 4-1 gegn Rússum í öðrum leik liðsins í milliriðli vegna EM. Rússar komust í 3-0 áður en Ísland náði að minnka muninn og eitt mark frá Rússum í seinni hálfleik tryggði liðinu 4-1 sigur.

Landslið

4. apríl 2015

U19 kvenna - Franskur sigur í fyrsta leik

Stelpurnar í U19 léku sinn fyrsta leik í milliriðli EM í dag en leikið er í Frakklandi.  Það voru einmitt heimastúlkur sem voru mótherjarnir og reyndust þær frönsku sterkari og lögðu íslenska liðið með fimm  mörkum gegn engu.  Staðan í leikhléi var 2 - 0 fyrir heimastúlkur.

Landslið

4. apríl 2015

Góður sigur á Hollandi í Kórnum

Íslenska kvennalandsliðið mætti því hollenska í vináttulandsleik í dag en leikið var í Kórnum.  Lokatölur urðu 2 – 1 fyrir Ísland  eftir að hollenska liðið hafði leitt í leikhléi, 0 – 1.  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir skoruðu mörk Íslands en virkilega góður síðari hálfleikur skóp þennan sigur.

Landslið

4. apríl 2015

A kvenna - Byrjunarlið Íslands gegn Hollandi

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Hollendingum í vináttulandsleik í Kórnum í dag kll 14:00.  Við hvetjum alla þá sem kost hafa á að koma í Kórinn og hvetja stelpurnar til sigurs gegn sterku liði Hollands.  Ókeypis aðgangur.

Landslið

3. apríl 2015

Byrjunarlið U19 kvenna gegn Frökkum

U19 ára landslið Íslands leikur klukkan 14:00 í dag við Frakka í milliriðli fyrir EM 2015 kvenna. Byrjunarliðið Íslands er klárt og það má sjá hér að neðan.

Landslið

3. apríl 2015

A kvenna - Guðrún Arnardóttir inn í hópinn

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Hollandi í vináttulandsleik í Kórnum, laugardaginn 4. apríl kl. 14:00.  Guðrúna Arnardóttir kemur inn í hópinn í stað Elínar Mettu Jensen sem er veik.

Landslið

1. apríl 2015

U17 kvenna - Tveir hópar á æfingum 11. - 12. apríl

Úlfar Hinrikson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið tvo hópa fyrir úrtaksæfingar sem fram fara dagana 11. og 12. apríl.  Æfingarnar verða í Kórnum og í Egilshöll og má sjá nafnalista þeirra leikmanna sem eru boðaðir hér að neðan.

Landslið

31. mars 2015

Jafntefli í fjörugum leik í Tallinn

A landslið karla lék í kvöld, þriðjudagskvöld, gegn Eistlendingum á heimavelli þeirra í Tallinn.  Niðurstaðan var 1-1 jafntefli í fjörugum leik þar sem bæði lið fengu fjölmörg marktækifæri og áhorfendur fengu svo sannarlega mikið fyrir peninginn.

Landslið

31. mars 2015

Lars:  Sanngjörn úrslit

Lars Lagerbäck, annar þjálfari A landsliðs karla, sat fyrir svörum á fjölmiðlafundi að loknum vináttulandsleik Eistlands og Íslands í Tallinn í kvöld, þriðjudagskvöld.  Lars sagði leikinn hafa verið opinn og sérlega fjörugan fyrir áhorfendur og að úrslitin, 1-1 jafntefli, hefðu verið sanngjörn.

Landslið

30. mars 2015

Byrjunarlið Íslands í Tallinn

Þjálfarar A landsliðs karla, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, gera ellefu breytingar á byrjunarliði Íslands frá leiknum við Kasakstan fyrir vináttuleikinn gegn Eistlandi í kvöld.  Ljóst er að margir leikmenn eru þarna að fá gott tækifæri til að minna á sig.

Landslið