30. mars 2015
Vegna nýrrar reglugerðar um milliliði og breytinga því tengdu, tekur nýtt samningsform fyrir staðalsamninga KSÍ gildi 1. apríl næstkomandi.  Allir samningar sem gerðir eru frá og með 1. apríl þurfa að vera á nýja samningsforminu til að verða skráðir hjá KSÍ. 
30. mars 2015
Ný reglugerð FIFA um milliliði sem leysir af hólmi reglugerð FIFA um umboðsmenn leikmanna tekur gildi þann 1. apríl næstkomandi.  Á sama tíma tekur gildi ný reglugerð KSÍ um milliliði og fellur þá úr gildi reglugerð KSÍ um umboðsmenn og réttindi umboðsmanna KSÍ falla niður.
30. mars 2015
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Hollandi í vináttulandsleik í Kórnum, laugardaginn 4. apríl kl. 14:00. Freyr hefur valið Elínu Mettu Jensen, úr Val, inn í hópinn og kemur hún í stað Hólmfríðar Magnúsdóttur sem er meidd.
30. mars 2015
Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 9. apríl kl. 18:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Kristinn Jakobsson fyrrverandi FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.
30. mars 2015
Unglingadómaranámskeið verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, miðvikudaginn 8. apríl. Námskeiðið er það síðasta sem haldið verður í Reykjavík að þessu sinni. Í október verður síðan aftur farið af stað með námskeiðahald hjá þeim félögum sem þess óska. Námskeiðið er haldið af KSÍ í hefst kl. 18:00.
29. mars 2015
Raio Piiroja er einn þekktasti knattspyrnumaður Eistlands frá upphafi. Hann hefur leikið alls 114 A-landsleiki fyrir hönd þjóðar sinnar og mun af þvi tilefni leika kveðjuleik sinn þegar Eistland mætir Íslandi í vináttuleik þann 30. mars
28. mars 2015
Þeir Aron Einar Gunnarsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Gyldi Þór Sigurðsson fara ekki með landsliðinu til Eistlands í vináttuleikinn sem fram fer á þriðjudag. Aron Einar varð faðir á dögunum og heldur heim, eins og Eiður Smári, sem bíður fæðingar síns fjórða barns. Gylfi Þór Sigurðsson fékk högg í leiknum gegn Kasakstan og leikur ekki gegn Eistlandi.
28. mars 2015
Ísland mætti Kasakstan í undankeppni EM 2016 í dag og unnu frækinn 3-0 sigur á þessum erfiða útivelli. Íslenska liðið komst í 2-0 í fyrri hálfleik en Birkir Bjarnason skoraði svo þriðja mark leiksins undir lok leiksins.
28. mars 2015
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði A landsliðs karla, náði þeim stóra áfanga í leiknum við kasakstan í undankeppni EM 2016 að leika sinn 50. A-landsleik fyrir Íslands hönd.  Aron tók ungur við fyrirliðabandinu og hefur verið mikill leiðtogi bæði innan vallar sem utan. 
28. mars 2015
A landslið karla mætir Eistlandi í vináttuleik á þriðjudag.  Leikurinn, sem er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á SkjáSport, fer fram á A. Le Coq Arena leikvanginum í höfuðborg Eistlands, Tallinn. 
28. mars 2015
Þjálfarar A landsliðs karla, þeir Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, gera þrjár breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn við Kasakstan, en eins og knattspyrnuáhugafólki er kannski kunnugt um var byrjunarlið Íslands óbreytt í fyrstu fjórum leikjunum í keppninni.
28. mars 2015
Eins og kunnugt er vann Ísland glæsilegan þriggja marka sigur á Kasakstan í undankeppni EM 2016.  Tveir aðrir leikir í A-riðli fóru fram seinna sama dag.  Lettar hefðu getað hirt öll þrjú stigin í Tékklandi, og í Hollandi jöfnuðu heimamenn í uppbótartíma.
27. mars 2015
Íslenska kvennalandsliðið stendur í stað á nýjum heimslista FIFA en hann var birtur í morgunsárið. Ísland er áfram í 20. sæti listans en hæst komst liðið í 15. sætið árin 2011 og 2012.
27. mars 2015
Veðurspáin fyrir leik Kasakstan og Íslands er ekkert sérstaklega gæfuleg. Búist er við um 11 gráðu frosti í Astana, höfuðborg Kasakstan, þegar leikur liðanna fer fram sem undir venjulegum kringumstæðum hefði kallað fram ákveðin vandamál.
27. mars 2015
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri tapaði 3-0 gegn Rúmenum í vináttuleik sem fram fór ytra í gær. Eins og tölurnar gefa til kynna þá var rúmenska liðið öflugra í leiknum en íslensku strákarnir hefðu getað skorað með smá heppni.
26. mars 2015
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Rúmenum í vináttulandsleik sem leikinn verður ytra. Leikurinn hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma og verður fylgst með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.
26. mars 2015
Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í milliriðli EM, dagana 4. - 9. apríl.  Riðillinn verður leikinn í Frakklandi og, auk heimastúlkna, verður leikið gegn Rússum og Rúmenum.
26. mars 2015
Tvö íslensk landslið verða í eldlínunni í dag en þau leika bæði landsleiki ytra.  Strákarnir í U17 leika gegn Wales í milliriðli EM en leikið er í Krasnodar.  Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma.  Þá munu strákarnir í U21 leika vináttulandsleik gegn Rúmenum í dag og hefst leikurinn kl. 17:30 að íslenskum tíma.  Leikið verður í Targu Mures í Rúmeníu.