Verslun
Leit
SÍA

19. mars 2015

6 þátttökuleyfi samþykkt af leyfisráði

Leyfisráð hefur samþykkt umsóknir þeirra 6 félaga sem gefinn var vikufrestur til að ganga frá útistandandi atriðum á fyrri fundi ráðsins þann 11. mars.  Öll 24 félögin sem undirgangast leyfiskerfið hafa þar með fengið útgefið þátttökuleyfi fyrir keppnistímabilið 2015.

Leyfiskerfi

19. mars 2015

U21 karla - Hópurinn sem mætir Rúmenum í vináttulandsleik

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Rúmenum í vináttulandsleik 26. mars næstkomandi.  Leikið verður í Targu Mures en þetta er í þriðja skiptið sem þjóðirnar mætast í þessum aldursflokki.

Landslið

18. mars 2015

Þinggerð 69. ársþings KSÍ

Hér að neðan má sjá þinggerð 69. ársþings Knattspyrnusambands Íslands, sem haldið var Hilton Nordica Reykjavík, 14. febrúar síðastliðinn.

Ársþing

18. mars 2015

Unglingadómaranámskeið hjá Fram fimmtudaginn 26. mars

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fram og hefst kl. 19:30.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

17. mars 2015

Unglingadómaranámskeið hjá KR þriðjudaginn 24. mars

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við KR og hefst kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

14. mars 2015

9v9 eða 11v11 í 4. flokki?

KSÍ stendur fyrir súpufundi fimmtudaginn 19. mars kl. 12.00-13.00 í höfuðstöðvum Knattspyrnusambandsins á Laugardalsvelli. Viðfangsefnið er hvort breyta þurfi keppnisfyrirkomulagi í 4. flokki, spila með 9 í liði í stað 11.

Fræðsla

13. mars 2015

Æfingar U19 kvenna 21. og 22. mars - (uppfært)

Dagana 21.-22. mars næstkomandi fara fram æfingar U19 landsliðs kvenna.  Æfingarnar fara fram undir stjórn Þórðar Þórðarsonar, þjálfara liðsins, og eru þær liður í undirbúningi fyrir milliriðil EM sem fram fer í Frakklandi í byrjun apríl. 

Landslið

13. mars 2015

18 þátttökuleyfi samþykkt á fyrri fundi leyfisráðs

Fyrri fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2015 fór fram í vikunni.  Fyrir fundinum lágu umsóknir félaganna 24 í efstu tveimur deildum karla um þátttökuleyfi í Pepsi-deild og 1. deild. Umsóknir 18 félaga voru samþykktar, en 6 félögum var gefinn vikufrestur til að ganga frá útistandandi atriðum.

Leyfiskerfi

12. mars 2015

U17 landslið kvenna til Dublin

U17 landslið kvenna leikur tvo vináttuleiki við Íra í mars og eru þeir leikir hluti af undirbúningi liðsins fyrir úrslitakeppni EM U17 kvenna sem fram fer hér á landi næsta sumar. Úlfar Hinriksson, þjálfari liðsins, hefur valið 18 manna hóp í verkefnið.

Landslið

12. mars 2015

Algarve 2015 - Ísland í 10. sæti

Íslenska kvennalandsliðið beið lægri hlut gegn heimsmeisturum Japans í lokaleik sínum á Algarve mótinu.  Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Japan eftir að markalaust hafði verið í leikhléi.  Ísland endaði því í 10. sæti á mótinu.

Landslið

11. mars 2015

Mottudagurinn er á föstudag

Föstudaginn 13. mars nk. hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr!  KSÍ vill nota tækifærið og hvetja knattspyrnufjölskylduna á Íslandi til að taka þátt.

Fræðsla

11. mars 2015

Unglingadómaranámskeið í Víkinni 12. mars

Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá Víkingi fimmtudaginn 12. mars kl. 18:00.  Námskeiðið fer fram í Víkinni og er haldið af KSÍ í samvinnu við Víking.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Aðgangur er ókeypis.

Dómaramál

11. mars 2015

Unglingadómaranámskeið hjá ÍA 18. mars

Unglingadómaranámskeið verður haldið hjá ÍA á Jaðarsbökkum  miðvikudaginn 18. mars kl. 16:00.  Námskeiðið, sem haldið er af KSÍ í samvinnu við ÍA, stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Aðgangur er ókeypis.

Dómaramál

11. mars 2015

Algarve 2015 - Byrjunarlið Íslands gegn Japan

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir heimsmeisturum Japans í dag í leik um 9. sætið á Algarve mótinu.  Leikið verður í Algarve og hefst leikurinn kl. 12:15 og verður fylgst með helstu atriðum leiksins með  textalýsingu á Facebook síðu KSÍ.

Landslið

10. mars 2015

Algarve 2015 - Leikið við Japan um níunda sætið

Íslenska kvennalandsliðið mætir því heimsmeisturum Japans í leik um níunda sætið á Algarve mótinu en leikið verður um sæti, miðvikudaginn 11. mars.  Leikið verður á Algarve vellinum og hefst hann kl. 12:15.  Það verða Frakkland og Bandaríkin sem leika munu til úrslita á mótinu.

Landslið

9. mars 2015

Algarve 2015 - Markalaust jafntefli gegn Bandaríkjunum

Íslenska kvennalandsliðið náði frábærum úrslitum í kvöld í lokaleik riðilsins á Algarve mótinu en leikið var í Lagos.  Markalaust jafntefli varð niðurstaðan en Bandaríkin leika engu að síður til úrslita á mótinu, gegn Frökkum.  Ísland mun að öllum líkindum leika gegn Japan um níunda sætið en ekki hefur verið tilkynntur leikstaður og tími.

Landslið

9. mars 2015

Algarve 2015 - Leikið gegn Bandaríkjunum í kvöld

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Bandaríkjunum í síðast leik liðsins í riðlakeppni Algarve mótsins. Leikurinn hefst kl. 17:30 að íslenskum tíma en Bandaríkin hafa unnið báða sína leiki til þessa í riðlinum.

Landslið

8. mars 2015

Úrtaksæfingar hjá U16 og U17 karla um komandi helgi

Landsliðsþjálfararnir, Freyri Sverrisson og Halldór Björnsson, hafa valið hópa fyrir úrtaksæfingar hjá landsliðum U16 og U17 karla.  Æfingarnar fara fram um komandi helgi, 14. og 15. mars og verða í Kórnum og Egilshöll.

Landslið