Verslun
Leit
SÍA

6. mars 2015

Algarve 2015 - Eins marks tap gegn Noregi

Íslenska kvennalandsliðið beið lægri hlut gegn Noregi í kvöld á Algarve mótinu en þetta var annar leikur liðsins.  Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Noreg og kom markið strax á 9. mínútu leiksins.  Lokaleikur Íslands í riðlinum verður gegn Bandaríkjunum á mánudaginn

Landslið

6. mars 2015

Algarve 2015 - Byrjunarliðið sem mætir Norðmönnum

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Noregi í Lagos  í kvöld á Algarve mótinu og hefst leikurinn kl. 18:00.  Þetta er annar leikur liðsins á mótinu en fyrsti leikurinn var gegn Sviss, á sama velli, og tapaðist 0 - 2.

Landslið

6. mars 2015

Unglingadómaranámskeið á Selfossi 16. mars

Unglingadómaranámskeið verður haldið í félagsheimili Selfoss, Tíbrá,  mánudaginn 16. mars kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Aðgangur er ókeypis og er skráning þegar hafin.

Dómaramál

5. mars 2015

Algarve 2015 - Undirbúningur fyrir Noregsleikinn

Íslenska liðið æfði tvisvar sinnum í dag en hópurinn undirbýr sig undir leikinn gegn Noregi á morgun, föstudaginn 6. mars.  Þeir leikmenn sem mest léku í gær gegn Sviss tóku því frekar rólega á fyrri æfingunni á meðan aðrir leikmenn tóku vel á því.  Allir leikmenn voru með á æfingunni nema Katrín Ómarsdóttir.

Landslið

5. mars 2015

Algarve 2015 - Guðrún Arnardóttir kölluð í hópinn

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur kallað Guðrúnu Arnardóttur inn í landsliðshópinn sem tekur þátt um þessar mundir á Algarve mótinu.  Guðrún kemur í stað Katrínar Ómarsdóttur sem ekki mun leika á mótinu.

Landslið

5. mars 2015

Rétt viðbrögð við heilahristingi

Í apríl 2014 gaf heilbrigðisnefnd KSÍ út leiðbeiningar og ráðleggingar vegna heilahristings.  Fjallað var um viðfangsefnið á súpufundi KSÍ í sama mánuði, þar sem Reynir Björnsson læknir fór yfir rétt viðbrögð í slíkum tilfellum. 

Fræðsla

5. mars 2015

Leyfisráð fundar 10. mars

Þessa dagana eru þau félög sum undirgangast leyfiskerfi KSÍ á fullu að vinna að endurbótum og uppfærslu á leyfisgögnum sínum, og þá sér í lagi fjárhagslegum gögnum.  Leyfisráð kemur saman þriðjudaginn 10. mars og tekur þá fyrir umsóknir félaga um þátttökuleyfi í Pepsi-deild karla og 1. deild karla 2015.

Leyfiskerfi

4. mars 2015

Sjálfkrafa leikbönn í Lengjubikarnum

Lengjubikarinn er nú í fullum gangi í knattspyrnuhúsum landsins og því rétt að minna á ákvæði reglugerða KSÍ um agamál í þeirri keppni.  Félögin sjálf þurfa að fylgjast vel með spjaldasöfnun leikmanna sinna, því leikbönn í Lengjubikar eru sjálfkrafa. 

Agamál

4. mars 2015

Algarve 2015 - Svissneskur sigur í sólinni

Íslenska kvennalandslið tapaði í dag gegn Sviss í fyrsta leik liðsins á Algarve mótinu en leikið var í Lagos.  Lokatölur urðu 0 - 2 fyrir Sviss eftir að markalaust var í leikhléi.  Næsti leikur Íslands á mótinu er gegn Noregi á föstudaginn.

Landslið

4. mars 2015

U17 landslið karla valið fyrir milliriðil í Krasnodar

Halldór Björnsson, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur valið leikmannahóp Íslands fyrir milliriðil EM, sem leikinn verður í Krasnodar í Rússlandi í mars.  Hópurinn heldur til Rússlands þann 19. mars og fyrsti leikur er tveimur dögum síðar.  Austurríki og Wales eru í riðlinum, auk Íslands og heimamanna.

Landslið

4. mars 2015

Mikil þróun með tilkomu leyfiskerfis KSÍ

Leyfiskerfi KSÍ var sett á laggirnar haustið 2002 og undirgengust íslensk félög leyfiskerfi KSÍ í fyrsta sinn fyrir keppnistímabilið 2003.  Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Mikil þróun hefur átt sér stað í íslenskri knattspyrnu og ekki síður í umgjörð íslenskra knattspyrnufélaga

Pistlar
Leyfiskerfi

4. mars 2015

Algarve 2015 - Byrjunarlið Íslands gegn Sviss

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Sviss í dag kl. 15:00.  Leikið verður í Lagos í Portúgal en þetta er fyrsti leikur Íslands á hinu geysisterka Algarve móti.  Lára Kristín Pedersen byrjar í sínum fyrsta landsleik en stillt er upp ungu liði gegn hinu sterka liði Sviss

Landslið

4. mars 2015

Algarve 2015 - Ísland mætir Sviss kl. 15:00

Ísland hefur leik í dag á Algarve mótinu en kl. 15:00 mæta stelpurnar Sviss í B riðli.  Leikið verður í Lagos en hinn leikurinn í riðlinum verður á milli Bandaríkjanna og Noregs.  Það má búast við erfiðum leik hjá stelpunum en íslenska liðið mætti Sviss tvisvar í undankeppni HM og tapað í bæði skiptin.

Landslið

3. mars 2015

Algarve 2015 - 150 fjölmiðlamenn sækja mótið

Algarve mótið hefst á morgun en þá mætir íslenska liðið því svissneska en þjóðirnar leika í B riðli ásamt Noregi og Bandaríkjunum.  Mrkill áhugi er á Algarve mótinu sem hefur aldrei verið sterkara en oft er talað um óopinbera heimsmeistarakeppni en þetta mót ber á góma.  Alls hafa 150 fjölmiðlamenn boðað komu sína á mótið að þessu sinni

Landslið

3. mars 2015

Knattspyrnusamband Færeyja auglýsir eftir fræðslustjóra

Knattspyrnusamband Færeyja auglýsir eftir starfsmanni til að leiða fræðslu- og útbreiðslustarf sambandsins (Technical Director).  Hér er um að ræða spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling, sem hefur lokið UEFA-A (KSÍ-A) þjálfaragráðu og býr yfir víðtækri reynslu.

Fræðsla

2. mars 2015

Mottumars 2015 - Sýnum samstöðu!

KSÍ hvetur knattspyrnufólk um allt land til að sýna samstöðu og taka þátt í átakinu Mottumars 2015.  Möguleikanir eru endalausir og ef þú hefur einhvern tímann hugsað þér að prófa að safna skeggi, þá er tækifærið núna! Krabbamein á ekki að vera feimnismál. Mottan er táknræn ogminnir okkur á að hugsa um heilsuna.

Fræðsla

2. mars 2015

Sterkur Algarve-riðill

A landslið kvenna kemur saman í Portúgal í dag, mánudag, þar sem það tekur þátt í hinu árlega Algarve-móti, sem er eins og kunnugt er afar sterkt æfingamót.  Mótherjar íslenska liðsins í riðlinum eru allir afar sterkir, en Ísland leikur í B-riðli ásamt Bandaríkjunum, Noregi og Sviss.

Landslið

2. mars 2015

Íslenskir dómarar á U19 æfingamóti á La Manga

Dómararnir Bríet Bragadóttir, Jovana Cosic og Birna Bergstað Þórmundsdóttir verða að störfum á æfingamóti á vegum norska knattspyrnusambandsins dagana 4.-10. mars.  Um er að ræða fjögurra liða mót U19 landsliða kvenna, sem fram fer á La Manga á Spáni.

Dómaramál