Verslun
Leit
SÍA

28. febrúar 2015

U17 kvenna - Æfingahelgi framundan

Framundan er æfingahelgi hjá U17 kvenna og hefur Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, valið leikmenn fyrir þessar æfingar.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og verða tveir hópar á ferðinni.

Landslið

27. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir Norðurland

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Norðurland  verður í Boganum á Akureyri miðvikudaginn 4.mars  og eru þetta æfingar fyrir krakka fædd 2001 og 2002.  Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Fræðsla

26. febrúar 2015

Fyrsti fundur stjórnar að loknu ársþingi

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar að loknu ársþingi KSÍ var m.a. skipað í embætti innan stjórnar. Guðrún Inga Sívertsen verður varaformaður, Gylfi Þór Orrason gjaldkeri stjórnar og Gísli Gíslason er ritari stjórnar.  Á fundinum var jafnframt ákveðið að Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, muni gegna starfi framkvæmdastjóra KSÍ tímabundið, þar til annað verður ákveðið.

Ársþing

26. febrúar 2015

Landsdómararáðstefna – 27.–28. febrúar

Um komandi helgi fer fram hin árlega landsdómararáðstefna KSÍ en þar hittast landsdómarar til að undirbúa sig fyrir komandi tímabil. Að venju er fenginn gestafyrirlesari erlendis frá og að þessu sinni er það Kyros Vassaras sem verður gestur ráðstefnunnar.

Dómaramál

25. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir stúlkur á Suðurlandi

Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir stúlkur á Suðurlandi verður í Hveragerði föstudaginn 27. febrúar.  Þetta eru æfingar fyrir krakka í 4.flokki.  Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Fræðsla

24. febrúar 2015

16 leikmenn boðaðir á úrtaksæfingu fyrir U21 karla

Úrtaksæfing fyrir U21 landslið karla fer fram í Kórnum laugardaginn 28. febrúar.  Eyjólfur Sverrisson, þjálfari liðsins, hefur boðað 16 leikmenn til æfinga, alla fædda 1996, og koma þeir frá 10 félögum.

Landslið

23. febrúar 2015

Úrtaksæfingar U19 og U17 karla um komandi helgi

Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar fyrir U17 og U19 landslið karla.  Æft verður í Kórnum í Kópavogi og Egilshöll í Reykjavík og hafa rúmlega 70 leikmenn frá félögum víðs vegar af landinu verið boðaðir til æfinganna, sem fara fram undir stjórn landsliðsþjálfara liðanna.

Landslið

23. febrúar 2015

A kvenna - Hópurinn fyrir Algarve tilkynntur

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem leikur á Algarve mótinu sem fram fer 4. - 11. mars næstkomandi.  Freyr velur 23 leikmenn í hópinn og þar af eru tveir nýliðar.  Margrét Lára Viðarsdóttir er leikreyndasti leikmaður hópsins og snýr nú aftur eftir hlé.

Landslið

23. febrúar 2015

Grunnnámskeið fyrir aðstoðardómara þriðjudaginn 3. mars

Grunnnámskeið fyrir aðstoðardómara verður haldið þriðjudaginn 3. mars í höfuðstöðvum KSÍ og hefst það kl. 18:00.  Á námskeiðinu mun Gunnar Sverrir Gunnarsson FIFA aðstoðardómari fara yfir ýmis lykilatriði í aðstoðardómgæslunni.

Dómaramál

22. febrúar 2015

U19 kvenna - Aftur fimm marka sigur á Færeyjum

Stelpurnar í U19 unnu í dag A landslið Færeyja en þetta var seinni vináttulandsleikur liðanna á þremur dögum.  Lokatölur urðu 6 - 1 fyrir Ísland eftir að staðan í leikhléi hafði verið jöfn, 1 - 1.  Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Akraneshöllinni í kvöld en vegna veðurskilyrða og færðar var ákveðið að færa leikinn í Fífuna.

Landslið

22. febrúar 2015

U19 kvenna - Leikurinn gegn Færeyjum færður í Fífuna

Vegna veðurútlits hefur verið ákveðið að seinni vináttulandsleikur U19 kvennalandsliðs Íslands og A landsliðs Færeyja fari fram í Fífunni í dag, sunnudaginn 22. febrúar,  kl. 17:00.  Leikurinn var fyrirhugaður í Akraneshöllinni kl. 19:00.

Landslið

20. febrúar 2015

U19 kvenna - Öruggur sigur á Færeyjum

Stelpurnar í U19 unnu öruggan sigur á A landsliði Færeyja en þjóðirnar mættust í vináttulandsleik í Reykjaneshöllinni í dag.  Lokatölur urðu 5 - 0 fyrir íslenska liðið sem leiddi með þremur mörkum í leikhléi.  Liðin mætast svo aftur á sunnudaginn kl. 19:00 í Akraneshöllinni

Landslið

19. febrúar 2015

U21 karla – Vináttulandsleikur gegn Rúmenum 26. mars

Knattspyrnusambönd Íslands og Rúmeníu hafa komst að samkomulagi um að U21 karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik ytra, þann 26. mars næstkomandi.  Leikið verður á Trans-Sil vellinum í Targu Mures.  Í samkomulaginu felst einnig að þjóðirnar leiki annan vináttulandsleik í sama aldursflokki hér á landi árið 2016 eða 2017.

Landslið

19. febrúar 2015

Þakkir

Á þessum tímamótum og í kjölfar vel heppnaðs ársþings 2015 hef ég ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri sambandsins frá og með 1. mars n.k. en ég hef íhugað að skipta um vettvang frá því seint á síðasta ári og tel að nú, í upphafi nýs starfsárs , sé rétt að stíga þetta skref. 

Pistlar

19. febrúar 2015

U19 kvenna - Tveir vináttulandsleikir gegn A landsliði Færeyja

Stelpurnar í U19 munu leika tvo vináttulandsleiki gegn A landsliði Færeyja en leikirnir fara fram á föstudag og sunnudag.  Fyrri leikurinn fer fram í Reykjaneshöll, föstudaginn 20. febrúar kl. 16:00 en sá seinni í Akraneshöllinni, sunnudaginn 22. febrúar kl. 19:00.

Landslið

18. febrúar 2015

Hæfileikamótun í Vestmannaeyjum 10.-11. mars

Hæfileikamótun KSÍ sem upphaflega átti að vera í Vestmannaeyjum dagana 24. - 25.febrúar, hefur verið færð til 10. - 11. mars. Halldór Björnsson mun stjórna æfingum hjá stúlkum og drengjum í 4. flokk.  Hér má sjá dagskrá og nafnalista yfir þá leikmenn sem eru boðaðir á þessar æfingar.

Hæfileikamótun

18. febrúar 2015

Breytingar á reglugerðum varðandi félagaskipti og agamál

Á fundi stjórnar KSÍ, sem fram fór 13. febrúar, voru samþykktar breytingar á reglugerðum KSÍ um Aga- og úrskurðarmál og Félagaskipti, samninga, stöðu leikmanna og félaga.  Mikilvægt er að félög kynni sér þessar breytingar og komi til þeirra er málið varðar.

Lög og reglugerðir

18. febrúar 2015

Námskeið í hugmyndafræði Coerver Coaching 21. - 22. febrúar

Dagana 21.-22. febrúar mun KSÍ bjóða þjálfurum upp á námskeið í hugmyndafræði Coerver Coaching.  Hingað til lands kemur Brad Douglass en hann starfar sem Technical Director hjá Coerver Coaching. Brad kom einnig hingað til lands í ársbyrjun 2013 og hélt vel heppnað Coerver Coaching námskeið á vegum KSÍ sem var gríðarlega vel sótt.

Fræðsla