Verslun
Leit
SÍA

17. febrúar 2015

Fjárhagsgögnum skilað til leyfisstjórnar í vikunni

Skiladagur fjárhagsgagna í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2015 er föstudagurinn 20. febrúar. Samkvæmt kröfum sem lýst er í leyfisreglugerð skulu leyfisumsækjendur skila ársreikningi með viðeigandi áritun endurskoðanda, ásamt fylgigögnum. 

Leyfiskerfi

17. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Suðurland

Hæfileikamótun KSÍ fyrir stráka á Suðurland verður í Hveragerði föstudaginn 20. febrúar, æfing fyrir stelpur verður viku seinna, föstudaginn 27. febrúar.  Þetta eru æfingar fyrir krakka í 4.flokki.  Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Hæfileikamótun

17. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Austurland

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Austurland verður á Reyðarfirði laugardaginn 21. febrúar og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4.flokki.  Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Hæfileikamótun

16. febrúar 2015

U19 kvenna - Leikmenn valdir fyrir tvo leiki gegn Færeyjum

Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið leikmenn fyrir tvo vináttulandsleiki gegn A landsliði Færeyja.  Leikirnir fara fram hér á landi, í Reykjaneshöllinni föstudaginn 20. febrúar og í Akraneshöllinni, sunnudaginn 22. febrúar.

Landslið

16. febrúar 2015

Æfingar um helgina hjá A kvenna og U17 kvenna

Um komandi helgi verða æfingar hjá A kvenna og U17 kvenna og verða æfingarnar í Egilshöllinni og Kórnum.  Landsliðsþjálfararnir, Freyr Alexandersson og Úlfar Hinriksson, hafa valið leikmenn fyrir þessar æfingar og má sjá lista þeirra hér að neðan.

Landslið

16. febrúar 2015

Knattspyrnan og verkefni sem blasa við

Um nýliðna helgi var haldið ársþing KSÍ og á föstudag málþing um stöðu kvenna innan íþróttahreyfingarinnar.  Á þessum tveimur viðburðum var ýmislegt til umfjöllunar sem vekja má athygli á til viðbótar því sem fjölmiðlar mátu fréttnæmast.

Pistlar

16. febrúar 2015

Unglingadómaranámskeið hjá Aftureldingu þriðjudaginn 24. febrúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Aftureldingu og hefst kl. 18:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

14. febrúar 2015

69. ársþingi KSÍ lokið - Geir endurkjörinn formaður

Rétt í þessu lauk 69. ársþingi KSÍ sem haldið var á Hótel Nordica Reykjavík.  Fréttir af afgreiðlsu tillagna má finna annars staðar á síðunni.  Tveir voru í kjöri formanns KSÍ, Geir Þorsteinsson og Jónas Ýmir Jónasson.  Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður KSÍ til næstu tveggja ára.

Ársþing

14. febrúar 2015

Setningarræða formanns á 69. ársþingi KSÍ

Íslensk knattspyrna var í sviðsljósinu árið 2014, frábær frammistaða A landsliðs karla vakti athygli víða og langt út fyrir strendur Íslands.  Sigur á HM bronsliði Hollands á Laugardalsvelli í október var tvímælalaust hápunktur ársins. Aldrei fyrr hefur sigurleikur landsliðs okkar skapað jafnmikla umfjöllun um íslenska knattspyrnu á erlendum vettvangi.

Ársþing

14. febrúar 2015

FH og ÍA fengu viðurkenningu fyrir dómaramál

Verðlaun voru veitt tveimur félögum fyrir góða frammistöðu í dómaramálum.  Sem fyrr þurfti að uppfylla 10 skilyrði til þess að teljast fyrirmyndarfélag í þeim efnum.  FH og ÍA stóðust skilyrðin og teljast því vera fyrirmyndarfélög í dómaramálum 2014.  Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, afhenti þessum félögum viðurkenningu á 69. ársþingi KSÍ.

Ársþing

14. febrúar 2015

Stjarnan fékk Kvennabikarinn 2014

Það var Stjarrnan sem hlaut Kvennabikarinn fyrir árið 2014 en það eru verðlaun fyrir háttvísi í Pepsi-deild kvenna.  Verðlaunin voru veitt á 69. ársþingi KSÍ sem haldið er á Hótel Nordica Reykjavík.  Þá fékk Tindastóll viðurkenningu fyrir prúðmannlega framkomu í 1. deild kvenna á síðasta tímabili.

Ársþing

14. febrúar 2015

KR og ÍA fengu  Dragostytturnar

KR og ÍA fengu Dragostytturnar á 69. ársþingi KSÍ sem haldið er Hótel Nordica Reykjavík.  Þá fengu Fjarðabyggð, Höttur og KFG viðurkenningar fyrir prúðmannlegan leik í 2., 3. og 4. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna

Ársþing

14. febrúar 2015

Sport TV fær fjölmiðlaverðlaun KSÍ

Á árinu sem leið gafst knattspyrnuáhugafólki kostur á að sjá fleiri innlenda leiki í beinni útsendingu vefsjónvarps en nokkru sinni fyrr. Vefsíðan Sport TV á þarna stærstan þátt. Þetta þýðir að á árinu 2014 gat knattspyrnuáhugafólk horft á tæplega eitt hundrað leiki í beinni útsendingu á Sport TV.

Ársþing

14. febrúar 2015

Sigríður Arndís Jóhannsdóttir fær Grasrótarverðlaun KSÍ

Grasrótarverðlaun KSÍ hlýtur Sigríður Arndís Jóhannsdóttir.  Sigríður, sem starfar sem verkefnastjóri hjá þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, hefur staðið fyrir fótboltaæfingum fyrir utangarðsmenn.  Æfingarnar hafa farið fram einu sinni í viku á Klambratúni og hafa um 20 aðilar mætt á þessar æfingar, um 6 – 8 í einu. 

Ársþing

14. febrúar 2015

Þórður Einarsson fékk Jafnréttisverðlaun

Jafnréttisverðlaun KSÍ hlýtur Þórður Einarsson, framkvæmdastjóri Leiknis.  Þórður Einarsson er Leiknismaður og Breiðhyltingur fram í fingurgóma.  Hann lék með Leikni í yngri flokkum og í meistaraflokki og hefur þjálfað og starfað þar um langt árabil, þrátt fyrir ungan aldur. 

Ársþing

14. febrúar 2015

69. ársþing KSÍ hafið - Fylgist með framgangi þingsins hér

Núna kl. 11:00 hófst 69. ársþing KSÍ og fer það fram á Hilton Nordica Reykjavík.  Nokkrar tillögur liggja fyrir þinginu sem og að tveir aðilar eru í formannskjöri.  Við munum fylgjast með hér á síðunni og uppfærum þessa frétt reglulega.

Ársþing

13. febrúar 2015

Karen Espelund sérstakur gestur á ársþingi KSÍ

Sérstakur gestur á 69. ársþingi KSÍ, sem fram fer á Hilton Hótel Nordica á laugardag, verður Karen Espelund, sem setið hefur í framkvæmdastjórn UEFA síðan 2011. Karen er norsk og gegndi m.a. stöðu framkvæmdastjóra Knattspyrnusambands Noregs um 10 ára skeið.

Ársþing

13. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Suðurnes

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Suðurnes verður í Reykjaneshöllinni miðvikudaginn 18. febrúar og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4.flokki.  Það er Halldór Björnsson sem fer fyrir verkefninu.

Hæfileikamótun