Verslun
Leit
SÍA

12. febrúar 2015

U17 karla - Annar eins marks sigur á Norður Írum

Íslendingar og Norður Írar léku í dag seinni vináttulandsleik sinn í Kórnum á þremur dögum.  Íslendingar unnu fyrri leikinn með einu marki gegn engu og gerðu nokkrar breytingar á byrjunarliðinu frá fyrri leiknum.  Leiknum lauk með, eins og þeim fyrri, með 1 – 0 sigri Íslands.

Landslið

12. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Vesturland

Hæfileikamótun KSÍ fyrir Vesturland verður í Akraneshöllinni þriðjudaginn 17. febrúar og eru þetta æfingar fyrir krakka í 4.flokki.  Það er Halldór Björnsson, landsliðsþjálfari U17 karla, sem fer fyrir verkefninu.

Hæfileikamótun

12. febrúar 2015

Hver er staða kvenna innan íþróttahreyfingarinnar?

Knattspyrnusamband Íslands stendur fyrir málþingi, föstudaginn 13. febrúar kl. 17:30, í höfuðstöðvum KSÍ.  Málþingið ber yfirskriftina: "Hver er staða kvenna innan íþróttahreyfingarinnar?" og er öllum opið.

Fræðsla

12. febrúar 2015

U17 karla - Ísland mætir Norður Írlandi kl. 12:00

Strákarnir í U17 leika í dag seinni vináttulandsleikinn gegn Norður Írum og fer hann fram í Kórnum.  Leikurinn hefst kl 12:00 á hádegi og verður sýndur í beinni útsendingu á Sport TV.  Hægt verður einnig að fylgjast með helstu atriðum leiksins á Facebook síðu KSÍ.

Landslið

11. febrúar 2015

Dagskrá 69. ársþings KSÍ

Ársþing KSÍ, það 69. í röðinni, fer fram á Hilton Nordica Reykjavík laugardaginn 14. febrúar og hefst kl. 11:00 en afhending þinggagna hefst kl. 10:00.  Hér að neðan má finna dagskrá þingsins.

Ársþing

11. febrúar 2015

Unglingadómaranámskeið hjá Grindavík þriðjudaginn 17. febrúar

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Grindavík og hefst kl. 19:30.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Dómaramál

11. febrúar 2015

Fjöldi þingfulltrúa á 69. ársþingi KSÍ

Laugardaginn 14. febrúar næstkomandi fer fram 69. ársþing KSÍ á Hilton Nordica Reykjavík.  Alls hafa 146 fulltrúar rétt til setu á þinginu, en nú þegar hefur kjörbréfum verið skilað fyrir 133 fulltrúa frá 18 héraðssamböndum eða íþróttabandalögum.

Ársþing

10. febrúar 2015

U17 karla - Sigur gegn Norður Írum í vináttulandsleik

Ísland og Norður Írland mættust í kvöld í vináttulandsleik hjá U17 landsliðum karla og var leikið í Kórnum.  Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir íslenska liðið eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi.  Þjóðirnar mætast svo aftur, á sama stað, á fimmtudaginn og hefst sá leikur á nokkuð óvenjulegum tíma eða kl. 12:00 á hádegi.

Landslið

9. febrúar 2015

U17 karla - Úrtaksæfingar um helgina

Halldór Björnsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar hjá U17 karla um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og eru leikmennirnir 31 sem boðaðir eru að þessu sinni.

Landslið

9. febrúar 2015

U17 karla - Leikið gegn Norður Írum á þriðjudag og fimmtudag

Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Norður Írum og fara þeir báðir fram í Kórnum.  Fyrri leikurinn fer fram þriðjudaginn 10. febrúar og hefst kl. 18:45.  Sá síðari verður fimmtudaginn 12. febrúar og hefst kl. 12:00.  Báðir leikirnir verða sýndir á Sport TV.

Landslið

6. febrúar 2015

Íslensk knattspyrna var í sviðsljósinu árið 2014

Íslensk knattspyrna var í sviðsljósinu árið 2014, frábær frammistaða A landsliðs karla vakti athygli í heimi knattspyrnunnar. Sigur á HM bronsliði Hollands á Laugardalsvelli í október var tvímælalaust hápunktur ársins. Aldrei fyrr hefur sigurleikur í keppni skapað jafnmikla umfjöllun um íslenska knattspyrnu á erlendum vettvangi

Pistlar

6. febrúar 2015

Rekstur KSÍ í samræmi við áætlun

Rekstur KSÍ á árinu 2014 er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun frá ársþingi.  Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2014 námu 1.067 milljónum króna samanborið við 972 milljónir króna árið á undan. Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af auknu framlagi frá FIFA og auknum sjónvarpstekjum.  Rekstrarkostnaður KSÍ var um 910 milljónir króna og lækkar frá fyrra ári um 18 milljónir króna.

Ársþing

5. febrúar 2015

U21 karla - Ísland aftur í riðli með Frökkum

Dregið var í dag í undankeppni EM U21 karla en dregið var í höfuðstöðvum UEFA.  Ísland dróst í riðil með Frakklandi, Úkraínu, Skotlandi, Makedóníu og Norður Írlandi.  Ísland var í fjórða styrkleikaflokki og lenti með Frökkum úr efsta styrkleikaflokki, líkt og í síðustu undankeppni.

Landslið

4. febrúar 2015

Hæfileikamótun KSÍ og N1 2015 - Dagskrá næstu vikur

Þessa dagana er Hæfileikamótun KSÍ og N1 að fara af stað á árinu 2015.  Eins og áður hefur komið fram verður byrjað að þessu sinni á Hornarfirði en dagskráin næstu vikurnar er annars svohljóðandi:

Fræðsla
Hæfileikamótun

4. febrúar 2015

A kvenna - Vináttulandsleikur gegn Hollandi í apríl

Knattspyrnusambönd Íslands og Hollands hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, 4. apríl næstkomandi.  Einnig hefur verið samið um að þjóðirnar mætist svo aftur, þá í Hollandi, á næsta ári.

Landslið

3. febrúar 2015

U17 kvenna - Vináttulandsleikir gegn Írum í mars

Knattspyrnusambönd Íslands og Írlands hafa komist að samkomulagi um að U17 kvennalandslið þjóðanna leiki tvo vináttulandsleiki í Dublin, 21. og 23. mars.  Íslenska liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir úrslitakeppni EM U17 kvenna sem haldin verður hér á landi og hefst 22. júní.

Landslið

3. febrúar 2015

U17 karla - Hópurinn fyrir vináttulandsleiki gegn Norður Írum

Halldór Björnsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem mætir Norður Írum í tveimur vináttulandsleikjum.  Leikirnir fara fram í Kórnum og verður fyrri leikurinn leikinn þriðjudaginn 10. febrúar kl. 18:45 og sá síðari, fimmtudaginn 12. febrúar kl. 12:00.

Landslið

3. febrúar 2015

U21 karla - Dregið í undankeppni EM 2017 á fimmtudag

Dregið verður í undankepnni EM 2017, fimmtudaginn 5. febrúar, og fer drátturinn fram í höfuðstöðvum UEFA í Sviss.  Ísland er í fjórða styrkleikaflokki en dregið verður í níu riðla þar sem sjö þeirra verða skipaðir sex þjóðum en tveir munu innihalda fimm þjóðir. 

Landslið