13. janúar 2015
Íslenska karlalandsliðið kom til Orlando í gærkvöldi eftir langt ferðalag.  Framundan eru tveir vináttulandsleikir gegn Kanada sem verða leiknir á háskólavelli University of Central Florida hér í Orlando.  Fyrri leikurinn verður föstudaginn 16. janúar en sá síðari mánudaginn 19. janúar og verða báðir leikirnir í beinni útsendingu hjá SkjáSport.
13. janúar 2015
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar vegna U21 landsliðs karla. Æft verður í Kórnum í Kópavogi dagana 17. og 18. janúar og hafa 33 leikmenn frá 17 félögum verið boðaðir til æfinganna, sem fara fram undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar, þjálfara U21 landsliðs karla.
12. janúar 2015
Ársþing KSÍ verður haldið þann 14. febrúar næstkomandi.  Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing, eða í síðasta lagi 31. janúar nk. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar, ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests. 
12. janúar 2015
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U16 og U17 karla og fara æfingarnar fram í Kórnum og Egilshöll.  Landsliðsþjálfararnir, Freyr Sverrrisson og Halldór Björnsson, hafa valið hópa fyrir þessar æfingar og má sjá þá hér að neðan.
12. janúar 2015
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið U23 hópinn sem mætir Póverjum í vináttulandsleik í Kórnum, miðvikudaginn 14. janúar kl. 18:00.  Pólverjar tefla fram A landsliði sínu í þessum leik en fjórir eldri leikmenn verða með íslenska liðinu í þessum leik.
12. janúar 2015
Í síðustu viku var haldinn vinnufundur fyrir endurskoðendur þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ.  Um er að ræða árlegan janúarfund, þar sem farið er yfir breytingar á leyfisreglugerð milli ára, sem og áhersluatriði og hagnýta þætti.
9. janúar 2015
Landsliðsþjálfararnir, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbåck, hafa tilkynnt landsliðshópinn sem mætir Kanada í tveimur vináttulandsleikjum en leikið verður í Orlando í Florida.  Fyrri leikurinn fer fram föstudaginn 16. janúar kl. 21:30 að íslenskum tíma og sá síðari, mánudaginn 19. janúar kl. 21:00
6. janúar 2015
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Val og hefst kl. 19:30.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.  Námskeiðið er ókeypis.
5. janúar 2015
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur birt nýjan lista yfir alþjóðlega dómara og er þar að finna þrjá nýja íslenska dómara. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson kemur nýr einn sem dómari og þá eru einnig aðstoðardómararnir, Björn Valdimarsson og Jovana Cosic ný inn á listanum.
5. janúar 2015
Framundan eru fyrstu úrtaksæfingar hjá landsliðum kvenna en þær fara fram um komandi helgi.  Það verða fjórir hópar við æfingar þessa helgi en A kvenna, U23, U19 og U17 verða við æfingar sem fara fram í Kórnum og Egilshöll.
5. janúar 2015
Þann 15. janúar næstkomandi er skiladagur leyfisgagna. Þá skila þau félög sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ (félögin 24 í Pepsi-deild karla og 1. deild karla) gögnum sem snúa að fjórum köflum leyfiskerfisins, þ.e.e öllum öðrum en fjárhagslegum.
3. janúar 2015
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Swansea, varð í öðru sæti í kjöri á íþróttamanni ársins en tilkynnt var um kjörið í kvöld.  Hann átti frábært ár með landsliðinu sem og félagsliði sínu á Englandi.  Það var körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson sem var kjörinn íþróttamaður ársins.
2. janúar 2015
Íslenska A-landslið karla leikur vináttuleik við Eistland þann 31. mars en leikið er í Eistlandi. Íslenska liðið leikur þann 28. mars við Kasakstan í undankeppni EM og mun íslenska liðið fara þaðan til Eistlands þar sem vináttuleikurinn fer fram.
29. desember 2014
Fyrstu úrtaksæfingar á nýju ári verða æfingar hjá yngri karlalandsliðum okkar en þær fara fram helgina 3. og 4. janúar í Kórnum og Egilshöll. Úrtaksæfingar verða hjá U16, U17 og U19 landsliðum karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Freyr Sverrisson, Halldór Björnsson og Þorvaldur Örlygsson valið hópa á þessar æfingar.
23. desember 2014
Samtök íþróttafréttamanna hafa nú birt nöfn þeirra tíu íþróttamanna sem flest atkvæði hluti í kjöri félagsmanna á íþróttamanni ársins 2014. Að venju er knattspyrnufólk áberandi í kjörinu og eru þau Gylfi Þór Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir á meðal tíu efstu.
18. desember 2014
Knattspyrnusambönd Íslands og Kanada hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki 2 vináttulandsleiki, 16. og 19. janúar.  Leikirnir fara fram í Florida í Bandaríkjunum en þetta verða annar og þriðji leikurinn á milli karlalandsliða þessara þjóða.
16. desember 2014
Leikmannaval KSÍ hefur valið Gylfa Þór Sigurðsson og Hörpu Þorsteinsdóttur knattspyrnufólk ársins 2014. Þetta er í ellefta skiptið sem að knattspyrnufólk ársins er sérstaklega útnefnt af KSÍ. Það eru fjölmargir aðilar, m.a. fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni, er velja knattspyrnufólk ársins. Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin hjá körlum og konum.
12. desember 2014
Það var og er æðsti heiður hvers knattspyrnumanns að vera valinn til að koma fram fyrir hönd þjóðar sinnar í keppni, þar sem árangur næst ef leikmenn vinna saman og mynda sterka liðsheild. Sigmundur Ó. Steinarsson hefur ritað sögu íslenska landsliðsins.