Verslun
Leit
SÍA

12. desember 2014

Saga landsliðs karla komin út á bók

Út er komin bókin Saga landsliðs karla, eftir Sigmund Ó. Steinarsson, glæsileg bók sem hefur að geyma sögu landsliðs Íslands í máli og myndum. Í bókinni, sem telur rúmar 600 blaðsíður, er sagt frá Evrópukeppni landsliða og heimsmeistarakeppninni. Bókin verður til sölu í verslunum Eymundsson-Pennans frá og með þriðjudeginum 16. desember.

Landslið

11. desember 2014

14 félög á vinnufundi um leyfiskerfið

Í vikunni fór fram vinnufundur með leyfisfulltrúum félaga í efstu tveimur deildum karla.  Farið var yfir hagnýta þætti og vinnu við leyfisumsóknir, breytingar á leyfisreglugerð milli ára og einnig var fjallað sérstaklega um lykilþætti í fjárhagslega hluta leyfiskerfisins.

Leyfiskerfi

9. desember 2014

Fundað um leyfisferlið 2015

Fimmtudaginn 11. desember kl. 13:00 verður haldinn í höfuðstöðvum KSÍ árlegur vinnufundur með leyfisfulltrúum félaganna 24 sem undirgangast leyfisferlið fyrir komandi keppnistímabil.  Farið verður yfir breytingar á leyfisreglugerðinni milli ára og ýmis hagnýt atriði.

Leyfiskerfi

5. desember 2014

Þorvaldur Örlygsson ráðinn þjálfari U19 karla

KSÍ hefur ráðið Þorvald Örlygsson í starf þjálfara U19 landsliðs karla, og gildir samningur hans næstu tvö árin.  Þorvaldur er knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnur, atvinnumaður í knattspyrnu til margra ára og landsliðsmaður.

Landslið

5. desember 2014

Æfingar hjá U17 og U19 kvenna og landshlutaæfing

Helgina 12. - 14. desember verða æfingar hjá U17 og U19 kvennalandsliðum okkar og einnig verða landshlutaæfingar hjá stúlkum í félögum á suðvesturhorninu fæddum árið 2000.  Landsliðsþjálfararnir Úlfar Hinriksson og Þórður Þórðarson hafa valið leikmenn á þessar æfingar og má sjá listana hér að neðan ásamt upplýsingum um æfingarnar.

Landslið

4. desember 2014

Kveðja frá KSÍ

Gunnar var einn af litríkustu knattspyrnumönnum landsins. Aðeins 17 ára 1948 var hann einn af þremur nýliðum sem hófu að leika með sterku og sigursælu liði KR, sem varð Íslandsmeistari 1948, 1949, 1950 og 1952 - og hann var fyrirliði meistaraliðs KR 1955.

Pistlar

3. desember 2014

Vel mætt á ráðstefnu um síðustu helgi

76 manns mættu á ráðstefnu sem Knattspyrnusamband Íslands stóð fyrir um síðustu helgi. Yfirskrift ráðstefnunnar var "Hvernig finnum við og vinnum með hæfileikaríka leikmenn?"  Hér fyrir neðan má finna glærurnar sem þeir félagar fóru yfir auk vídeóupptöku af ráðstefnunni.

Fræðsla

3. desember 2014

U17 karla - Ísland í milliriðli með Austurríki, Rússlandi og Wales

Í dag var dregið í milliriðil í EM hjá U17 karla en leikið verður 21. - 26. mars í Krasnodar í Rússlandi.  Ísland dróst í riðil með Austurríki, Rússlandi og Wales og mun efsta þjóðin í riðlinum tryggja sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Búlgaríu í maí.

Landslið

3. desember 2014

U19 karla - Leikið gegn Ísrael, Möltu og Danmörku

Dregið var í undankeppni EM hjá U19 karla en þetta er keppni sem hefst að hausti 2015.  Riðill Íslands fer fram á Möltu, dagana 10. - 15. nóvember og verður leikið gegn heimamönnum, Ísrael og Danmörku.

Landslið

3. desember 2014

U17 karla - Ísland leikur á heimavelli í undankeppni EM

Í dag var dregið í undankeppni EM 2015/16 hjá U17 karla var dregið í höfuðstöðvum UEFA í Sviss.  Ísland er í riðli með Danmörku, Grikklandi og Kasakstan og verður leikið hér á landi dagana 22. - 27. september.

Landslið

1. desember 2014

Þróttur auglýsir eftir þjálfara

Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfara sem er tilbúinn til að vinna skv. stefnu félagsins. Um er að ræða þjálfun í 11-manna bolta.

Fræðsla

1. desember 2014

23 leikmenn frá 6 félögum valdir á landshlutaæfingar U17 kvenna

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið 23 leikmenn á landshlutaæfingar U17 kvenna sem fram fara á Akureyri 6. og 7. desember næstkomandi.  Leikmennirnir 23 koma frá alls 6 félögum á Norðurlandi.

Landslið

1. desember 2014

65 leikmenn á úrtaksæfingum U17 og U19 karla

Úrtaksæfingar fyrir U17 og U19 landslið karla fara fram dagana 6. og 7. desember, í Kórnum í Kópavogi og Egilshöll í Reykjavík.  U19 æfingahópurinn telur 29 leikmenn og eru þeir allir fæddir 1997.  U17 æfingahópurinn telur alls 36 leikmenn fædda 1998 og 1999, og er þeim skipt í tvo hópa.

Landslið

1. desember 2014

48 leikmenn boðaðir á úrtaksæfingar U21 karla

Úrtaksæfingar fyrir U21 landslið karla fara fram í Kórnum í Kópavogi dagana 6. og 7. desember næstkomandi.  Alls hafa 48 leikmenn fæddir 1994 og 1995 verið boðaðir til æfinganna, sem fara fram undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar, þjálfara U21 landsliðs karla.  Leikmennirnir 48 koma víðs vegar af landinu, frá 21 félagi.

Landslið

29. nóvember 2014

Halldór Björnsson ráðinn þjálfari U17 karla

KSÍ hefur gengið frá ráðningu Selfyssingsins Halldórs Björnssonar sem þjálfara U17 landsliðs karla, og mun hann jafnframt taka við hæfileikamótun KSÍ.  Halldór, sem hefur störf í byrjun nýs árs, hefur lokið KSÍ-A þjálfaragráðu og markmannsþjálfaragráðu.

Fræðsla
Landslið

28. nóvember 2014

U23 landslið kvenna leikur gegn Póllandi í Kórnum

U23 landslið kvenna mun í janúar, leika vináttulandsleik gegn A landsliði Póllands og verður leikið í Kórnum.  Leikið verður 14. janúar og þjóðirnar munu svo mætast aftur, þá í Póllandi, árið 2016.  Landslið leikmanna U23 kvenna hefur aðeins leikið einn leik áður en það var árið 2012 þegar leikið var gegn Skotum ytra. 

Landslið

28. nóvember 2014

KSÍ og Icelandair vinna markaðsverðlaun hjá UEFA

Herferðin "Við erum öll í sama liði" sem Icelandair framleiddi í samstarfi við KSÍ vann "Creativity and innovation award" á KISS verðlaunahátíðinni sem evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, stendur fyrir. Verðlaunahátíðin er haldin á tveggja ára fresti. 

Landslið

27. nóvember 2014

Styrkleikalisti FIFA - Ísland niður um fimm sæti

Íslenska karlalandsliðið fellur niður um 5 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun.  Ísland er í 33. sæti listans en var í 28. sæti síðast þegar listinn var birtur.  Þjóðverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans og Argentína kemur þar næst.

Landslið