25. nóvember 2014
Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ II þjálfaranámskeið á Akureyri helgina 28.-30. nóvember. Þátttökurétt hafa allir þjálfarar sem lokið hafa 1. stigs þjálfaranámskeiði KSÍ.  Námskeiðsgjald er kr. 17.500,-
25. nóvember 2014
Andri Vigfússon sótti á dögunum ráðstefnu Futsaldómara sem haldin var í Split í Króatíu.  Á rástefnunni, sem 30 dómarar sóttu frá 25 löndum, var m.a. farið yfir þær breytingar sem hafa verið gerðar á reglum leiksins.
25. nóvember 2014
Laugardaginn 29. nóvember verður Knattspyrnusamband Íslands með tvo fyrirlestra er tengjast þjálfun ungra og efnilegra leikmanna. Aðgangur er ókeypis. Þó viljum við biðja fólk vinsamlegast um að skrá sig með því að senda nafn og kennitölu
24. nóvember 2014
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U16 karla í Boganum á Akureyri og hafa 22 leikmenn varið valdir á þessar æfingar frá sex félögum. Æfingarnar fara fram undir stjórn Freys Sverrissonar, landsliðsþjálfara U16 karla.
24. nóvember 2014
Kristinn Jakobsson mun dæma leik St. Etienne frá Frakklandi og Quarabag frá Aserbaídsjan í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Saint Etienne í Frakklandi.  Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson.  Aukaaðstoðardómarar verða Þóroddur Hjaltalín og Þorvaldur Árnason og fjórði dómari verður Gylfi Már Sigurðsson.
21. nóvember 2014
Helgina 29. og 30. nóvember verða æfingar hjá þremur landsliðshópum kvenna, U23, U19, og U17 kvenna.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og hafa landsliðsþjálfararnir, Freyr Alexandersson, Þórður Þórðarson og Úlfar Hinriksson, valið hópa á þessar æfingar.
21. nóvember 2014
Stelpurnar í U17 töpuðu naumlega fyrir finnska U18 liðinu en þetta var annar vináttulandsleikur Íslands í ferð þeirra til Finnlands. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir heimastúlkur eftir að markalaust hafði verið í hálfleik.
20. nóvember 2014
Stelpurnar í U17 leika í dag seinni vináttulandsleikinn gegn Finnum en leikið er í Eerikkla í Finnlandi. Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn og má sjá það að neðan. Leikurinn hefst kl 16.00 að íslenskum tíma og er í beinni á heimasíðu finnska sambandsins.
19. nóvember 2014
Dregið var í dag í milliriðla fyrir EM 2015 en leikið varður 4. - 9. april á næsta ári. Ísland er í riðli með Frökkum, Rússum og Rúmeníu og verður riðillinn leikinn í Frakklandi. Efsta þjóð hvers riðils tryggir sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Ísrael í júlí ásamt einni þjóð með bestan árangur í öðru sæti.
19. nóvember 2014
Gunnar Jarl Jónsson mun dæma leik Zenit og Benfica í Meistaradeild ungmenna en leikið verður í Pétursborg, miðvikudaginn 26. nóvember. Gunnari til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Frosti Viðar Gunnarsson.
19. nóvember 2014
Í dag var dregið í undankeppni EM 2016 en keppnin hefst að hausti 2015.  Stelpurnar í U17 kvenna munu leika í Svartfjallalandi gegn heimastúlkum, Finnum og Færeyingum en leikirnar fara fram 22. - 27. október.  Hjá U19 lentu stelpurnar í riðli með Sviss, Grikklandi og Georgíu og verður leikið í Grikklandi.
18. nóvember 2014
Stelpurnar í U17 töpuðu fyrri vináttulandsleik sínum gegn Finnum í dag en leikið var í Eerikkila. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir heimastúlkur eftir að staðan hafði verið markalaus í leikhléi. Mörk Finna komu á 54. og 66. mínútu leiksins að fram að því hafði leikurinn verið nokkuð jafn.
18. nóvember 2014
Það hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum að stemmingin í kringum landsliðin, ekki síst A landslið karla, hefur aukist jafnt og þétt undanfarið og síðustu leikir á Laugardalsvelli hafa verið ógleymanlegir vegna þess hversu mikill og kröftugur stuðningur hefur verið frá áhorfendum.
18. nóvember 2014
Íslenska U17 ára landslið kvenna leikur í dag við Finna en um er að ræða vináttuleik. Leikið er í Eerikkilä en þar er fínasta veður, samt verður leikið innandyra.
17. nóvember 2014
Það verður fundur með dómarastjórum í höfuðstöðvum KSÍ miðvikudaginn 19. nóvember kl. 16:30. Reiknað er með að fundinum ljúki fyrir kl. 18:00.
17. nóvember 2014
Helgina 22.-23. nóvember næstkomandi fara fram landsliðsæfingar U16, U17 og U19 karla.
17. nóvember 2014
Breyting hefur verið gerð á leikmannahópi U17 kvenna sem leikur við Finna þann 18. og 20. nóvember. Kristín Þóra Birgisdóttir hefur þurft að draga sig úr hópnum en Rannveig Bjarnadóttir er komin í hópinn í hennar stað.
16. nóvember 2014
Ísland tapaði 2-1 gegn Tékklandi í uppgjöri toppliðanna í A-riðli í undankeppni EM. Tékkar voru sterkari aðilinn í leiknum og Ísland náði aldrei að sýna sömu takta og það hefur gert í undanförnum leikjum.