14. nóvember 2014
Leikið var í þremur riðlum í undankeppni EM á föstudagskvöld í þessari knattspyrnuviku, eða week og football", sem var að hefjast.  Þar bar helst til tíðinda að frændur okkar og bræður í Færeyjum unnu eins marks sigur á Grikkjum í Aþenu.  Þá unnu Danir Serba á útivelli.
14. nóvember 2014
Á sunnudaginn er stórleikur Tékklands og Íslands í undankeppni EM. Við viljum vita hvernig þú spáir úrslitum leiksins og fær einn heppinn Facebook-vinur okkar áritaða landsliðstreyju sem einmitt verður árituð af liðinu í Tékklandi.
14. nóvember 2014
Það verður Þjóðverjinn Wolfgang Stark sem dæmir leik Tékklands og Íslands í undankeppni EM sem leikinn verður í Plzen á sunnudaginn. Þessi reyndi dómari, sem m.a. dæmdi í úrslitakeppni HM 2010 og EM 2012, er að fara af lista FIFA yfir alþjóðlega dómara og því ekki loku fyrir það skotið að þetta verði hans síðasti alþjóðlegi leikur.
13. nóvember 2014
Arnar Þór Viðarsson var sérstakur gestur KSÍ á vináttulandsleik Belga og Íslendinga í gærkvöldi en leikið var í Brussel. Arnar tók við sem aðalþjálfari Cercle Brugge í efstu deild í Belgíu nú í október en hann var áður aðstoðarþjálfari liðsins og einnig leikmaður.
13. nóvember 2014
Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands (KÞÍ) verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 13. nóvember n.k. klukkan 20:00.  Dagskrá er með hefðbundnu sniði og verða veittar viðurkenningar ársins til félagsmanna.
12. nóvember 2014
Belgar höfðu betur gegn Íslendingum í vináttulandsleik sem leikinn var í Brussel í kvöld.  Lokatölur urðu 3 - 1 fyrir Belga eftir að staðan í leikhléi hafði verið jöfn, 1 - 1. Leikið verður gegn Tékkum í Plzen á sunnudaginn í undankeppni EM.
12. nóvember 2014
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Lúxemborg og Úkraínu í undankeppni EM en leikið verður í Luxemborg, laugardaginn 15. nóvember. Kristni til aðstoðar í þessum leik verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Aukaaðstoðardómarar verða þeir Þóroddur Hjaltalín og Þorvaldur Árnason og varadómari verður Sigurður Óli Þorleifsson.
12. nóvember 2014
Karlalandsliðið leikur í kvöld, miðvikudaginn 12. nóvember, vináttulandsleik gegn Belgum og verður leikið á King Bauduoin Stadion í Brussel. Leikurinn hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma og verður leikurinn sýndur í opinni dagskrá á SkjáSport.
11. nóvember 2014
Þjálfarar A landsliðs karla, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, hafa opinberað byrjunarlið sitt fyrir vináttuleikinn gegn Belgum í Brüssel í kvöld, miðvikudagskvöld.  Nokkuð er um breytingar frá mótsleikjunum þremur sem liðið hefur leikið í undankeppni EM 2016 og er því um að ræða kjörið tækifæri fyrir leikmenn til að láta ljós sitt skína.
11. nóvember 2014
Samkvæmt upplýsingum frá Knattspyrnusambandi Belgíu hafa nú selt um 25 þúsund miðar á vináttuleik Belgíu og Íslands, sem fram fer á miðvikudag. Laikvangurinn, King Bauduoin Stadion, eða gamli Heysel-leikvangurinn, tekur rúmlega 50 þúsund manns í sæti. Þó er reiknað með að eitthvað af miðum seljist á leikdag.
11. nóvember 2014
Leikmenn A landsliðs karla komu til Brussel í Belgíu á nánudag, en att verður kappi við heimamenn í vináttulandsleik á miðvikudag.  Æft var á keppnisvellinum sama dag og liðið kom saman, King Bauduoin Stadion, sem er gamli Heysel-leikvangurinn.
10. nóvember 2014
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Finnum 18. og 20. nóvember.  Leikið verður í Eerikkila í Finnlandi en þessir leikir eru undirbúningur fyrir úrslitakeppni U17 kvenna sem fram fer hér á landi næsta sumar.
9. nóvember 2014
Hólmar Örn Eyjólfsson, sem leikur með Rosenborg í Noregi, hefur verið kallaður inn í A-landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn við Belga á miðvikudag, þar sem fyrir liggur að Kári Árnason muni ekki taka þátt í þeim leik vegna meiðsla.
7. nóvember 2014
Uppselt er á leik Tékka og Íslendinga í undankeppni EM en leikið verður í Plzen, sunnudaginn 16. nóvember. Knattspyrnusamband Íslands fékk ríflega 600 miða á þennan leik fyrir íslenska stuðningsmenn og eru þeir allir búnir og margir sem bíða á biðlista.
7. nóvember 2014
Helgina 15. og 16. nóvember verða úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna og fara þær fram í Kórnum og Egilshöll. Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Þórður Þórðarson, hafa valið leikmenn á þessar æfingar en tveir hópar verða valdir hjá U17 og verður sá seinni tilkynntur á mánudaginn.
7. nóvember 2014
Landsliðsþjálfararnir, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, hafa tilkynnt landsliðshópinn sem mætir Belgum og Tékkum núna í nóvember.  Leikinn verður vináttulandsleikur gegn Belgum í Brussel, miðvikudaginn 12. nóvember, og við Tékka í undankeppni EM 2016 í Plzen, sunnudaginn 16. nóvember.
6. nóvember 2014
Aga-og úrskurðarnefnd KSÍ hefur tekið fyrir mál sem stjórn KSÍ vísaði til nefndarinnar vegna meints brots FH á lögum og reglugerðum KSÍ. Aga- og úrskurðarnefnd vísar málinu frá.
6. nóvember 2014
Belgar hafa tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir landsleiki gegn Íslandi og Wales en vináttulandsleikur Belga og Íslendingar fer fram í Brussel, miðvikudaginn 12. nóvember. Belgar leika svo gegn Wales í undankeppni EM, sunnudaginn 16. nóvember.