Verslun
Leit
SÍA

5. nóvember 2014

Tékkar tilkynna landsliðshópinn

Tékkneski landsliðsþjálfarinn, Pavel Vrba, hefur tilkynnt leikmannahópinn sem mætir Íslendingum í undankeppni EM, sunnudaginn 16. nóvember, í Plzen.  Valdir eru 22 leikmenn og er markvörðurinn kunni, Petr Cech, þeirra leikreyndastur þegar kemur að landsleikjum en hann hefur leikið 111 slíka.

Landslið

5. nóvember 2014

Landsdómararáðstefna verður haldin 8. nóvember

Landsdómararáðstefna verður haldin í höfuðstöðvum KSÍ laugardaginn 8. nóvember næstkomandi en þar verður farið yfir nýliðin tímabil og undirbúningur hefst fyrir næsta tímabil.  Ýmsir fyrirlestrar verða á dagskránni, farið yfir innlendar og erlendar klippur sem og að farið verður yfir æfingar vetrarins hjá dómurum.

Dómaramál

5. nóvember 2014

Þóroddur dæmir á Spáni

Þóroddur Hjaltalín verður í eldlínunni í dag þegar hann dæmir leik Athletic Bilbao og Porto í Meistaradeild ungmenna en leikið verður í Baracaldo á Spáni.  Þóroddi til aðstoðar verða þeir Áskell Þór Gíslason og Jóhann Gunnar Guðmundsson.

Dómaramál

4. nóvember 2014

KSÍ V þjálfaranámskeið haldið 7. - 9. nóvember

Helgina 7. - 9. nóvember mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B/UEFA B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 af 100 í skriflega KSÍ B prófinu. Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu.

Fræðsla

4. nóvember 2014

KSÍ III þjálfaranámskeið 21.- 23. nóvember 2014

Knattspyrnusamband Íslands mun halda 3. stigs þjálfaranámskeið helgina 21.-23. nóvember. Námskeiðið er opið öllum sem lokið hafa við fyrstu tvö stigin, þ.e. KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið.

Fræðsla

3. nóvember 2014

Úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla framundan

Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og verða æfingarnar í Kórnum og Egilshöll.  Tveir hópar verða við æfingar hjá U17 að þessu sinni og verða þær æfingar undir stjórn landsliðsþjálfarans Þorláks Árnasonar en Ólafur Ólafsson, aðstoðarþjálfari U19 karla, mun stjórna æfingum hjá U19.

Landslið

3. nóvember 2014

"Ótrúlega skemmtilegt að vera dómari"

Bríet Bragadóttir var á dögunum valin besti dómari ársins í Pepsi-deild kvenna en hún var bæði valin af leikmönnum deildarinnar sem og af valnefnd Ölgerðarinnar og KSÍ. Bríet hefur undanfarin misseri unnið sig hægt og bítandi upp innan dómarastéttarinnar og setur hún stefnuna á að dæma meira erlendis á vegum FIFA og UEFA.

Dómaramál

31. október 2014

Áfrýjunardómstóll KSÍ - Úrskurðir aganefndar staðfestir

Áfrjýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurði Aga- og Úrskurðarnefndar í tveimur málum sem knattspyrnudeild FH skaut til til dómstólsins.  Úrskurðir nefndarinnar varðandi sekt vegna framkvæmd leiks annars vegar og leikbanns leikmanns FH hinsvegar standa því óhaggaðir.

Agamál

31. október 2014

Ný leyfisreglugerð samþykkt

Ný leyfisreglugerð, útgáfa 2.4, var samþykkt á fundi stjórnar KSÍ þriðjudaginn 28. október.  Hægt er að skoða efnislegar breytingar á reglugerðinni undir hlekknum hér að neðan og eru breytingarnar rauðmerktar í skjalinu.

Leyfiskerfi

30. október 2014

Nýr tveggja ára samningur við Frey Alexandersson

Knattspyrnusamband Íslands hefur gert nýjan tveggja ára samning við Frey Alexandersson um þjálfun A landsliðs kvenna.  Samningurinn gildir út árið 2016 en Freyr tók við kvennalandsliðinu í ágúst 2013.  Þá gerði KSÍ einnig nýja samninga við Ásmund Haraldsson, aðstoðarþjálfara,  og Ólaf Pétursson, markvarðaþjálfara, um að vera Frey áfram innan handar.

Landslið

29. október 2014

U23 kvenna - Fjórir leikmenn bætast við æfingahópinn

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið fjóra leikmenn til viðbótar í æfingahóp hjá U23 kvenna sem æfir tvívegis um komandi helgi.  Þetta eru þær: Silvía Rán Sigurðardóttir úr Þór, Lára Einarsdóttir úr KA, Sóley Guðmundsdóttir úr ÍBV og Karitas Tómasdóttir úr Selfoss

Landslið

26. október 2014

Æfingar hjá U17, U19 og U23 kvenna um komandi helgi

Landsliðsþjálfararnir, Freyr Alexandersson, Þórður Þórðarson og Úlfar Hinriksson, hafa valið hópa fyrir æfingar um komandi helgi.  Þá æfa landslið U23, U19 og U17 kvenna og fara æfingarnar fram í Kórnum og Egilshöll.  Einnig verða mælingar hjá U17 og U19 kvenna sem verða á föstudagskvöldinu.

Landslið

23. október 2014

Íslenskir dómarar að störfum í Ungverjalandi

Fjórir íslenskir dómarar eru þessa dagana að störfum í Ungverjalandi þar sem þeir dæma á mótum á vegum UEFA.  Þeir Gunnar Jarl Jónsson og Birkir Sigurðarson eru við störf í undankeppni EM U17 karla og Þorvaldur Árnason og Oddur Helgi Guðmundsson eru að dæma á Regions Cup.

Dómaramál

23. október 2014

Styrkleikalisti FIFA - Ísland í 28. sæti

Á nýjum styrkleikalista FIFA karla, sem gefinn var út í morgun, fer Ísland upp um sex sæti og situr nú í 28. sæti listans.  Íslenska karlalandsliðið hefur aldrei verið ofar á þessum lista en það eru heimsmeistarar Þjóðverja sem eru í efsta sætinu sem fyrr og Argentínumenn koma þar næstir.

Landslið

22. október 2014

Mikill áhugi fyrir leiknum í Tékklandi

Ljóst er að mikill áhugi er fyrir leik Tékklands og Íslands í undankeppni EM en leikið verður í Plzen í Tékklandi, sunnudaginn 16. nóvember.  Ferðaskrifstofur hér á landi hafa sett upp sérstakar ferðir á leikinn og virðist mikill áhugi fyrir þessum ferðum.

Landslið

21. október 2014

U17 karla - Úrtaksæfingar á föstudag og laugardag

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið 36 leikmenn fyrir úrtaksæfingar sem fram fara í Kórnum og Egilshöll, föstudaginn 24. og laugardaginn 25. október.  Nafnalistann með þessum leikmönnum má sjá hér að neðan.

Landslið

20. október 2014

Íslenskur dómarasextett í Glasgow á fimmtudag

Íslenskur dómarasextett verður að störfum á Celtic Park í Glasgow næstkomandi fimmtudag þegar skoska liðið Celtic og FC Astra frá Rúmeníu mætast í Evrópudeild UEFA.  Kristinn Jakobsson verður dómari og með honum tveir aðstoðardómarar, fjórði dómari og tveir aukaaðstoðardómarar.

Dómaramál

20. október 2014

Byrjunarlið U17 karla gegn Ítalíu í dag

U17 landslið karla mætir Ítalíu í dag, mánudag kl. 12:00 að íslenskum tíma, í undankeppni EM.  Riðillinn fer fram í Moldavíu og er þetta lokaumferð riðilsins.  Jafntefli gegn Ítalíu tryggir íslenska liðinu sæti í milliriðlum. Hægt að fylgjast með textalýisingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.

Landslið