9. október 2014
Eins og kunnugt er þá leika strákarnir í U21 fyrri leik sinn í umspili um sæti í úrslitakeppni EM 2015 á föstudaginn og verður leikið í Álaborg. Íslendingar á svæðinu ætla ekki að láta sitt eftir liggja og ætla að hittast á John Bull Pub fyrir leikinn.
8. október 2014
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur gert eina breytingu á hópnum sem fer til Moldóvu og leikur í undankeppni EM. Ásgrímur Þór Bjarnason úr Fjölni kemur inn í hópinn í stað liðsfélaga síns, Ægis Jarls Jónassonar, sem er meiddur.
8. október 2014
Þórður Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari hjá U19 kvenna og tekur við af þeim Ólafi Þór Guðbjörnssyni og Úlfari Hinrikssyni, en Úlfar stjórnaði liðinu í síðasta verkefni í Litháen.  Þórður er með KSÍ A gráðu og hefur þjálfað bæði meistaraflokk karla og kvenna hjá ÍA í efstu deild.
8. október 2014
Íslensku U19 lið karla tapaði 7-3 fyrir Tyrklandi í riðlakeppni í undankeppni EM. Tyrkirnir léku betur en íslenska liðið eins og tölurnar gefa til kynna en við þurfum bara að hrista ósigurinn úr okkur og koma sterk til næsta leiks.
7. október 2014
Strákarnir i U21 liðinu kom til Álaborgar í dag en á föstudaginn verður leikið við Dani í umspili um sæti í úrslitakeppni EM. Um er að ræða fyrri leik þjóðanna en seinni leikurinn verður á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 14. október kl. 16:15.
7. október 2014
Í vetur mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir Markmannsþjálfaragráðu KSÍ. Námskeiðið er samtals 120 tímar. Það samanstendur af þremur helgarnámskeiðum og verklegri hópavinnu. Námskeiðsgjaldið er 150.000 kr. og umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2014.
7. október 2014
Knattspyrnusamband Íslands mun halda þrjú KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í október, eitt helgina 24.-26. október og tvö helgina 31. okt.-2. nóv. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig tímanlega.
6. október 2014
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U16 karla og hefur Þorlákur Árnaons valið hóp fyrir þessar æfingar.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og hafa 38 leikmenn verið valdir frá 16 félögum.
6. október 2014
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM en riðill Íslands fer fram í Moldóvu, dagana 15. - 20. október.  Ísland leikur þar gegn Ítalíu, Armeníu og gestgjöfunum sem verða fyrstu mótherjarnir.
3. október 2014
Ívar Orri Kristjánsson mun um helgina dæma leik Bangor City og Carmarthen Town í welsku úrvalsdeildinni en leikið verður á Book People vellinum í Bangor.  Úrvalsdeildin þar er nýlega farin af stað en verkefni þetta er hluti af dómaraskiptum á milli knattspyrnusambanda Íslands og Wales.
3. október 2014
Á blaðamannafundi sem haldinn var í höfuðstöðvum KSÍ í dag voru tilkynntir landsliðshópar A karla og U21 karla fyrir mikilvæga leiki sem framundan eru.  Þar voru einnig boðnir formlega velkomnir í landsliðið samstarfsaðilar KSÍ en staðfestir voru samningar til fjögurra ára við þessi frábæru fyrirtæki.
3. október 2014
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfarar, hafa tilkynnt landsliðshópinn sem mætir Lettlandi og Hollandi í undankeppni EM.  Leikið verður gegn Lettum ytra, föstudaginn 10. október en gegn Hollendingum á Laugardalsvelli, mánudaginn 13. október.
3. október 2014
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Dönum í tveimur umspilsleikjum um sæti í úrslitakeppni EM 2015 í Tékklandi.  Fyrri leikurinn verður í Álaborg, föstudaginn 10. október en sá seinni á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 14. október kl. 16:15.  Það lið sem hefur betur úr þessum viðureignum samanlagt, tryggir sér sæti í úrslitakeppni EM.
1. október 2014
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. KSÍ styður sem fyrr baráttuna gegn krabbameinum og verður slaufan sýnileg á vef KSÍ í októbermánuði.  Allt um þetta verkefni á vef Bleiku slaufunnar.
1. október 2014
Æfingaáætlun yngri landsliða veturinn 2014 - 2015 liggur nú fyrir og má sjá hana í skjali hér að neðan. Félög skulu heimila leikmönnum sínum þátttöku í æfingum og æfingaleikjum á þessum dögum og eru því minnt á að taka mið af þessum dagsetningum við skipulagningu æfinga og leikja hjá sér.
30. september 2014
Þóroddur Hjaltalín dæmir á morgun, miðvikudaginn 1. október, leik Arsenal og Galatasaray í Meistaradeild ungmenna.  Leikið verður á Borehamwood vellinum og Þóroddi til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gylfi Már Sigurðsson.
30. september 2014
Um leið og KSÍ þakkar góðar viðtökur á sölu mótsmiða viljum við bjóða hverjum og einum þeim sem keyptu slíka miða á landsleik U21 liðs karla sem fram fer á Laugardalsvelli 14. október n.k. en þá mætir liðið Danmörku í leik um sæti í úrslitakeppni EM sem fram fer í Tékklandi næsta sumar.
30. september 2014
Strákarnir í U21 mæta Dönum á Laugardalsvelli en um er að ræða seinni leik þjóðanna í umspili fyrir úrslitakeppni U21 karla.  Í húfi er sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Tékklandi á næsta ári.  Það er ljóst að stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum í þessu leik og eru landsmenn hvattir til þess að fjölmenna og styðja strákana.