30. september 2014
Handhafar A og DE skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Hollands í undankeppni EM, fimmtudaginn 2. október frá kl. 12:00 á hádegi til kl. 16:00 eða á meðan birgðir endast. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
29. september 2014
Icelandair endurnýjaði nýverið samninga um að vera aðalstyrktaraðili Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fjögurra sérsambanda innan þess, þ.e. Knattspyrnusambands Íslands, Handknattleikssambands Íslands, Körfuknattleikssambands Íslands og Golfsambands Ísl
29. september 2014
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp fyrir æfingar sem fara fram í Fagralundi, föstudaginn 3. október og laugardaginn 4. október. Alls eru valdir 22 leikmenn á þessar æfingar og koma þeir frá 12 félögum.
29. september 2014
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna, hefur valið hópa til æfinga sem fram fara um komandi helgi. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll en ríflega 50 leikmenn eru boðaðir til þessara æfinga.
29. september 2014
U19 landslið karla leikur í undankeppni EM í október, og fer riðill Íslands fram í Króatíu dagana 5.-13. október. Kristinn Rúnar Jónsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur valið 18 manna hóp í verkefnið. Þriðjungur hópsins er á mála hjá erlendum félagsliðum
29. september 2014
KSÍ mun halda þrjú KSÍ I þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í október. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði sem þýðir 70 laus pláss helgina 17.-19. október og 35 laus pláss helgina 24.-26. október.
29. september 2014
Eins og kynnt hefur verið hér á vef KSÍ mun úrslitakeppni EM U17 landsliða kvenna fara fram á Íslandi, nánar tiltekið á suðvesturhorni landsins, sumarið 2015. Um er að ræða eitt allra viðamesta verkefni sem KSÍ hefur tekið að sér og er ljóst að kröfurnar frá UEFA eru miklar.
25. september 2014
Um síðustu helgi fór fram Hæfileikamót KSÍ og N1 hjá stúlkum og var þetta í fyrsta sinn sem slíkt mót var haldið. Hátt í 80 leikmenn voru boðaðir til leiks frá 35 félögum. Það er Þorlákur Árnason sem hefur yfirumsjón með verkefninu.
23. september 2014
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er faglega góður, drífandi og með brennandi áhuga á að þjálfa unglinga.
22. september 2014
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið 26 leikmenn fyrir úrtaksæfingar sem fara fram um komandi helgi.  Æfingarnar fara fram að þessu sinni í Fagralundi í Kópavogi og má sjá nafnalista hér að neðan.
22. september 2014
Hæfileikamót KSÍ og N1 fer fram í Kórnum í Kópavogi um komandi helgi, dagana 27. - 28. september.  Mótið fer fram undir stjórn Þorláks Árnasonar og hér að neðan má sjá nafnalista þeirra leikmanna sem boðaðir eru til leiks.
22. september 2014
Knattspyrnudeild HK óskar eftir því að ráða þjálfara fyrir 3. fl. ka. starfsárið 2014-2015. Óskað er eftir þjálfara með góða menntun og reynslu.
22. september 2014
Hæfileikamótunin er verkefni sem N1 og KSÍ standa að og er ætlað yngri iðkendum  knattspyrnu af báðum kynjum til að auka áhuga á íþróttinni og einnig til að efla grasrótarstarf í knattspyrnu um land allt.
19. september 2014
Heimsókn til Borussia Dortmund og Borussia Mönchengladbach þar sem fylgst verður með æfingum yngri liða félaganna og félögin bjóða upp á fyrirlestra um starf sitt. Verð á bilinu 90 - 100 þúsund krónur í tveggja manna herbergi og 120 - 130 þúsund krónur í eins manns herbergi.
19. september 2014
Knattspyrnufélagið Valur leitar að metnaðarfullum þjálfurum fyrir 2. 3. og 6. flokk kvenna í knattspyrnu fyrir komandi tímabil.  Áhugasamir sendi umsókn á vidar@valur.is fyrir 25.september.
19. september 2014
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun, er íslenska kvennalandsliðið í 20. sæti og lækkar um þrjú sæti frá síðasta lista. Bandaríkin er í efsta sæti listans sem fyrr en Þjóðverjar nálgast þær mjög í öðru sætinu.
19. september 2014
Þann 21. september næstkomandi verður alþjóðlegur dagur friðar haldinn í 16. sinn – Peace One Day . Markmið verkefnisins er að hvetja stríðandi fylkingar um heim allan til að leggja niður vopn í einn dag, þennan mánaðardag ár hvert og hefur knattspyrnuhreyfingin á Íslandi vakið athygli á þessum verðuga málstað undanfarin ár.
18. september 2014
Stelpurnar í U19 léku í dag lokaleik sinn í undankeppni EM en riðillinn var leikinn í Litháen.  Andstæðingar dagsins voru Spánverjar sem unnu nauman sigur, 2 - 1, og kom sigurmark leiksins í uppbótartíma.  Spánverjar tryggðu sér þar með efsta sætið í riðlinum en Ísland hafnaði í öðru sæti en kemst einnig áfram í milliriðla með Spánverjum.