Verslun
Leit
SÍA

18. september 2014

Uppselt á leik Íslands og Hollands

Uppselt er á leik Íslands og Hollands sem fram fer á Laugardalsvelli, mánudaginn 13. október kl. 18:45.  Miðasala fór fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is og varð uppselt á skömmum tíma eftir að sala hófst.

Landslið

18. september 2014

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Spáni

Stelpurnar í U19 leika í dag lokaleik sinn í undankeppni EM en riðill Íslands er leikinn í Litháen.  Mótherjar dagsins eru Spánverjar og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Þessar tvær þjóðir hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í riðlakeppninni og keppast því um efsta sæti riðilsins.

Landslið

18. september 2014

Þróttur auglýsir eftir þjálfara fyrir 2.flokk kvenna

Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir metnaðarfullum þjálfara sem er tilbúinn til að vinna skv. stefnu félagsins.

Fræðsla

18. september 2014

Styrkleikalisti FIFA - Ísland í 34. sæti

Ísland fer upp um 12 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA karla sem gefinn var út í morgun.  Ísland er í 34. sæti listans, ásamt Serbíu, og hefur karlalandsliðið ekki komist hærra áður á þessum lista.  Ísland er í 22. sæti á meðal aðildarþjóða UEFA en heimsmeistarar Þjóðverja tróna á toppi listans.

Landslið

18. september 2014

Hæfileikamót KSÍ og N1 - Tveimur leikmönnum bætt við

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni þá fer Hæfileikamót stúlkna KSÍ og N1 fram um helgina í Kórnum.  Verkefnið er undir yfirumsjón Þorláks Árnasonar sem hefur bætt við tveimur leikmönnum í hópinn, þeim Auði Líf Benediktsdóttur BÍ/Bolungarvík og Maríu Björt Hjálmarsdóttur Þrótti.

Landslið

17. september 2014

Stórsigur á Serbum í síðasta landsleik Þóru

Íslendingar lögðu Serba örugglega að velli í kvöld á Laugardalsvelli en þetta var lokaleikur Íslands í undankeppni HM.  Lokatölur urðu  eftir að staðan hafði verið 3 – 0 í leikhléi.  Íslenska liðið endaði í öðru sæti í riðlinum en komust þó ekki í umspil fyrir úrslitakeppni HM sem fram fer í Kanada 2015.  Þóra Helgadóttir lék sinn 108. og síðasta landsleik í kvöld og skoraði sitt fyrsta mark.

Landslið

17. september 2014

Landsliðin okkar

Það er svolítið sérstakt að finnast maður vera að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um góðan árangur landsliðanna okkar á síðustu árum.  Það er eitt að ná góðum árangri í einni undankeppni stórmóts, en það er enn meira afrek að endurtaka leikinn og viðhalda góðum árangri til lengri tíma.

Pistlar

17. september 2014

Landinn á Laugardalsvellinum

Einhver viðamesta sjónvarpsútsending af íþróttaleik hér á landi fór fram þriðjudaginn 9. september þegar Íslendingar tóku á móti Tyrkjum í undankeppni EM 2016.  Landi allra landsmanna, Gísli Einarsson, var á vellinum og fylgdist með undirbúningi starfsfólks sjónvarps fyrir útsendinga og sýndi okkur afraksturinn.

Landslið

17. september 2014

A kvenna - Ísland mætir Serbíu í dag

Íslenska kvennalandsliðið tekur á móti því serbneska í dag en leikið verður á Laugardalsvelli kl. 17:00.  Þetta er lokaleikur Íslands í undankeppni HM og ennfremur er þetta síðasti landsleikur Þóru Helgadóttur sem nú leggur landsliðshanskana til hliðar eftir farsælan landsliðsferil.

Landslið

16. september 2014

Dómarar frá Grikklandi á leik Íslendinga og Serba

Það verða dómarar frá Griklandi sem verða við stjórnvölinn á leik Íslendinga og Serba í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 17. september kl. 17:00.  Dómarinn heitir Thalia Mitsi og henni til aðstoðar verða löndur hennar Urania Foskolou og Panagiota Koutsoumpou.  Fjórði dómari leiksins er svo Bríet Bragadóttir.

Dómaramál

16. september 2014

Fyrstu sem útskrifast með Markmannsþjálfaragráðu KSÍ

Nýverið útskrifaði KSÍ fyrstu markmannsþjálfarana með Markmannsþjálfaragráðu KSÍ. Útskriftin fór fram í tengslum við landsleik Íslands og Ísrael í undankeppni HM.  Um er að ræða 11 þjálfara. Stefnt er að því að halda annað námskeið á komandi vetri og verður það auglýst á næstu vikum.

Fræðsla

15. september 2014

Miðasala á Ísland – Holland hefst fimmtudaginn 18. september kl. 12:00

Mánudaginn 13. október tekur Ísland á móti Hollandi í undankeppni EM á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 18:45.  Miðasala á leikinn hefst kl. 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 18. september, og fer fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið

15. september 2014

A kvenna - Miðasala hafin á Ísland - Serbía

Íslenska kvennalandsliðið tekur á móti því serbneska í lokaleik sínum í undankeppni HM og verður leikið á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 17. september kl. 17:00.  Þó svo að Ísland eigi ekki möguleika á því að komast í úrslitakeppnina í Kanada þá skiptir miklu máli að ljúka keppninni á jákvæðum nótum og setja þar með tóninn fyrir undankeppni EM.

Landslið

15. september 2014

Sigrún Ella fékk nýliðamerki

Sigrún Ella Einarsdóttir lék sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætti Ísrael í undankeppni HM 2015 á laugardag.  Hún kom inn á sem varamaður á 70. mínútu, lék vel og var síógnandi á hægri kantinum.  Að leik loknum fékk hún afhent nýliðamerki A landsliða.

Landslið

15. september 2014

U21 karla - Staðfestur leiktími á Ísland - Danmörk

Staðfestur hefur verið leiktími á leik Íslands og Danmerkur en um er að ræða seinni leik þjóðanna í umspili um sæti í úrslitakeppni U21 karla.  Leikið verður á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 14. október kl. 16:00.

Landslið

15. september 2014

U19 kvenna - Góður sigur á Króatíu

Stelpurnar í U19 unnu í dag annan sigur sinn í undankeppni EM þegar þær lögðu Króatíu að velli, 1 - 0.  Eina mark leiksins kom strax á 5. mínútu leiksins þegar Ingibjörg Sigurðardóttir setti boltann í netið.  Íslenska liðið lék manni færri frá 32. mínútu þegar Guðrún Sigurðardóttir fékk að líta rauða spjaldið.

Landslið

15. september 2014

Hæfileikamót KSÍ og N1 - Stúlkur

Hæfileikamót KSÍ og N1 fer fram í Kórnum í Kópavogi um komandi helgi, dagana 20. - 21. september.  Mótið fer fram undir stjórn Þorláks Árnasonar og hér að neðan má sjá nafnalista þeirra leikmanna sem boðaðir eru til leiks.

Landslið

15. september 2014

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Króatíu

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Króatíu í dag í undankeppni EM.  Þetta er annar leikur Íslands í keppninni en Ísland vann öruggan sigur á gestgjöfunum í Litháen í fyrsta leiknum, 8 - 0.

Landslið