Verslun
Leit
SÍA

3. september 2014

Kristinn dæmir vináttulandsleik Svíþjóðar og Eistlands

Kristinn Jakobsson verður við stjórnvölinn á vináttulandsleik Svíþjóðar og Eistlands sem fram fer á Friends Arena í Solna, fimmtudaginn 4. september.  Kristni til aðstoðar verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Áskell Þór Gíslason.

Dómaramál

3. september 2014

Undankeppni EM 2016 hefst í næstu viku

Í næstu viku hefst undankeppni EM 2016 og um leið er kynnt nýtt fyrirkomulag til sögunnar sem kallað er "Week of Football".  Núna í vikunni eru fjölmargir vináttulandsleikir á dagskránni, m.a. hjá andstæðingum Íslands í undankeppninni.

Landslið

2. september 2014

U19 kvenna - Hópurinn sem leikur í Litháen

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM í september en riðill Íslands er leikinn í Litháen.  Ísland leikur þar gegn heimastúlkum, Króatíu og Spáni og er fyrsti leikurinn gegn Litháen, laugardaginn 13. september.

Landslið

1. september 2014

Tyrkir tilkynna hópinn fyrir leiki gegn Danmörku og Íslandi

Tyrkir hafa tilkynnt landsliðshóp sinn fyrir tvo landsleiki 3. og 9. september.  Tyrkir leika vináttulandsleik gegn Dönum 3. september en mæta svo Íslendingum hér á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 9. september kl. 18:45 í undankeppni EM og er það fyrsti leikur þjóðanna í þeirri keppni.

Landslið

1. september 2014

U21 karla - Leikið við Armena miðvikudaginn 3. september

Strákarnir í U21 verða í eldlínunni á miðvikudaginn þegar þeir taka á móti Armenum á Fylkisvelli og hefst leikurinn kl. 16:30. Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn, 16 ára og yngri. Liðið heldur svo til Frakklands að leik lokum en leikið verður gegn heimamönnum, mánudaginn 8. september.

Landslið

29. ágúst 2014

Áfrýjunardómstóll KSÍ - Úrskurður aganefndar staðfestur

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð Aga- og úrskurðarnefndar varðandi leikbann leikmanns 2. flokks Grindavíkur vegna atviks í leik hjá liðinu þann 19. ágúst siðastliðinn.

Agamál

29. ágúst 2014

Súpufundur um vanmat í íþróttum

Mánudaginn 8. september klukkan 12.10-13.00 mun KSÍ standa fyrir fundi þar sem viðfangsefnið er vanmat í íþróttum. Fundurinn verður í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum, 3. hæð. Fyrirlesari er Hreiðar Haraldsson sem nýverið lauk meistaraprófi í íþróttasálfræði frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð.

Fræðsla

29. ágúst 2014

A karla - Hópurinn sem mætir Tyrkjum

Landsliðsþjálfararnir, Heimir Hallgrímsson  og Lars Lagerbäck, hafa valið hópinn sem mætir Tyrkjum í í fyrsta leik Íslands í undankeppni EM 2016.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 9. september, og hefst kl. 18:45.  Miðasala á leikinn er í fullum gangi, í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is

Landslið

27. ágúst 2014

U15 karla - Brons hjá Íslandi á Ólympíuleikum ungmenna

Strákarnir í U15 unnu í dag til bronsverðlauna á Ólympíuleikjum ungmenna sem fram fóru í Nanjing í Kína.  Leikið var gegn Grænhöfðaeyjum í dag og lauk leiknum með 4 - 0 sigri Íslands en staðan var 2 - 0 í leikhléi.

Landslið

27. ágúst 2014

U21 karla - Hópurinn sem mætir Armenum og Frökkum

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Armenum og Frökkum í lokaleikjum riðlakeppni EM hjá U21 karla.  Leikið verður gegn Armenum á Fylkisvelli, miðvikudaginn 3. september og gegn Frökkum í Auxerre, föstudaginn 8, september.

Landslið

27. ágúst 2014

U15 karla - Byrjunarliðið gegn Grænhöfðaeyjum

Strákarnir í U15 mæta Grænhöfðaeyjum í leik um þriðja sætið á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fara í Nanjing í Kína.  Leikurinn hefst kl. 10:00 að íslenskum tíma og hefur Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15, tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn.

Landslið

26. ágúst 2014

Hæfileikamótun KSÍ og N1 á Norðurlandi

Hæfileikamótun KSÍ og N1 verður á Dalvík föstudaginn 29. ágúst.  Þorlákur Árnason mun ásamt Þóru B. Helgadóttir vera með æfingu hjá bæði stelpum og strákum frá félögum á Norðurlandi.  Æfingarnar verða á Dalvíkurvelli.

Fræðsla

26. ágúst 2014

Háttvísidagar FIFA 2014

FIFA stendur fyrir sérstökum háttvísidögum 1. til 9. september næstkomandi. Minnt verður á háttvísidaga FIFA hér á Íslandi í tengslum við A landsleik karla gegn Tyrklandi þann 9. september og leik U21 karla þann 3. september, þegar Ísland mætir Armeníu á Fylkisvelli.

Landslið

25. ágúst 2014

U19 karla - Hópurinn sem mætir Norður Írum

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið 18 leikmenn fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Norður Írum sem fram fara 3. og 5. september.  Þessir leikir eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni EM en riðill Íslands verður leikinn í Króatíu í október.

Landslið

25. ágúst 2014

Hæfileikamótun KSÍ og N1 í Vestmannaeyjum

Hæfikleikamótun KSÍ og N1 verður í Vestmanneyjum miðvikudag og fimmtudag, 27. - 28. ágúst.  Þorlákur Árnason og Þóra B. Helgadóttir verða með æfingar fyrir 4. flokk drengja og stúlkna.  Að auki mun Þóra vera með markvarðaæfingu fyrir 15 - 19 ára á miðvikudagskvöldinu.

Fræðsla

25. ágúst 2014

U15 karla - Ísland leikur um þriðja sætið í Nanjing

Strákarnir í U15 stóðu í ströngu í gær þegar þeir mættu Suður Kóreu í undanúrslitum á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fara í Nanjing í Kína.  Jafnt var eftir venjulega leiktíma, 1 - 1, en Suður Kórea hafði betur eftir vítaspyrnukeppni, 1 - 3.

Landslið

24. ágúst 2014

Dómari frá Wales á leik ÍBV og Þórs

Það verður dómari frá Wales sem verður við stjórnvölinn á leik ÍBV og Þórs í Pepsi-deild karla í dag.  Hann heitir Ryan Stewart en þetta er liður í samstarfi knattspyrnusambanda Íslands og Wales um dómaraskipti.  Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag, sunnudaginn 24. ágúst, og hefst kl. 17:00.

Dómaramál

24. ágúst 2014

U15 karla - Byrjunarliðið gegn Suður Kóreu

Strákarnir í U15 verða í eldlínunni í dag þegar þeir mæta Suður Kóreu á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fara í Nanjing í Kína.  Leikurinn hefst kl. 12:45 að íslenskum tíma og hefur Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið