22. ágúst 2014
Þann 21. ágúst tók áfrýjunardómstóll KSÍ fyrir mál Víkings Ólafsvík gegn aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna úrskurðar nefndarinnar frá 12. ágúst um leikbann leikmanns félagsins og sektargreiðslu. Áfrýjunardómstóllinn féllst á kröfur Víkings.
22. ágúst 2014
Úrtökumót drengja var haldið að Laugarvatni dagana 15.-17. ágúst og var þar saman kominn flottur hópur efnilegra stráka til æfinga, á sjöunda tug.  Umsjón með mótinu hafði Þorlákur Árnason þjálfari U17 landsliðs karla.
22. ágúst 2014
Sá skemmtilegi atburður átti sér stað á Selfossi í vikunni að feðgar dæmdu leik Árborgar og Skínanda í 4. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu.  Sveinbjörn Másson, sem gegndi starfi aðstoðardómara, er faðir þeirra Karels Fannars og Adams Arnar.
22. ágúst 2014
Arna Sif Ásgrímsdóttir lék sinn fyrsta A-landsleik þegar hún kom inn á sem varamaður í leik Íslands og Danmerkur í undankeppni HM 2015, þegar liðin mættust á Laugardalsvelli á fimmtudagskvöld.  Arna Sif er þó ekki nýliði þegar kemur að landsliðum almennt
21. ágúst 2014
Íslensku stelpurnar töpuðu gegn Dönum í undankeppni HM í kvöld en leikið var á Laugardalsvelli. Lokatölur urðu 0 -1 eftir að staðan hafði verið markalaust í leikhléi. Með þessu tapi eru möguleikar Íslands á að komast á HM úr sögunni.
21. ágúst 2014
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Dönum í undankeppni HM í kvöld á Laugardalsvelli. Leikurinn, sem hefst kl. 19:30, er gríðarlega mikilvægur upp á framhaldið og sigur gefur íslenska liðinu góða von um að komast í umspil fyrir úrslitakeppni HM 2015.
21. ágúst 2014
Ísland tekur á móti Tyrklandi í fyrsta leiknum í undankeppni EM 2016 og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 9. september kl. 18:45.  Miðasala á leikinn hefst föstudaginn 22. ágúst kl. 12:00 á hádegi og fer, sem fyrr, fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
21. ágúst 2014
Rúna Kristín Stefánsdóttir knattspyrnudómari er að störfum fyrir FIFA í kvöld, miðvikudagskvöld.  Hún er aðstoðardómari á viðureign Rúmeníu og Makedóníu í undankeppni HM 2015, en liðin eigast við í Búkarest í Rúmeníu.
21. ágúst 2014
Knattspyrnudeild ÍR leitar að einstaklingi sem vill slást í hóp metnaðarfullra þjálfara sem nú þegar starfa hjá deildinni. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september, þegar knattspyrnuæfingar hefjast aftur hjá deildinni.
21. ágúst 2014
Sala mótsmiða á undankeppni EM 2016 hefur gengið afar vel en henni lýkur á hádegi í dag, fimmtudaginn 21. ágúst.  Það er því síðustu forvöð að tryggja sér sitt sæti en mótsmiði gildir á alla fimm heimaleiki Íslands í keppninni. 
21. ágúst 2014
Ísland tekur á móti Dönum í kvöld í undankeppni HM 2015 og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli kl. 19:30. Mikilvægi leiksins er mikið fyrir báðar þjóðir en þær berjast um annað sæti í riðlinum sem getur gefið sæti í umspili fyrir úrslitakeppnina í Kanada.
20. ágúst 2014
Ísland og Danmörk hafa mæst 8 sinnum hjá A landsliðum kvenna og hafa allir þeir leikir farið fram á erlendri grundu. Leikurinn á fimmtudaginn í undankeppni HM verður sá fyrsti sem fer fram hér á landi en leikið verður á Laugardalsvelli kl. 19:30.
20. ágúst 2014
A landslið kvenna mætir Danmörku í algjörum lykilleik í undankeppni HM 2015 á Laugardalsvelli fimmtudaginn 21. ágúst næstkomandi. Leikurinn hefst kl. 19:30 og er knattspyrnuáhugafólk hvatt til að fjölmenna á völlinn og styðja stelpurnar okkar í þessu mikilvæga verkefni.
20. ágúst 2014
Eins og kunnugt er þá mæta Íslendingar og Danir í undankeppni HM kvenna á Laugardalsvelli á morgun, fimmtudaginn 21. ágúst. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir báðar þjóðir varðandi möguleika þeirra á því að komast í umspil fyrir úrslitakeppnina. Hér að neðan má sjá rafræna leikskrá fyrir þennan mikilvæga leik en hann hefst kl. 19:30.
18. ágúst 2014
Sala mótsmiða á undankeppni EM 2016 hefur gengið afar vel og hafa nú þegar um 500 mótsmiðar verið seldir.  Mótsmiði gildir á alla fimm heimaleiki Íslands í keppninni.  Opið verður fyrir sölu mótsmiða til hádegis á fimmtudag og lýkur henni þá.
18. ágúst 2014
Ísland tapaði 2-1 gegn sterku liði Perú á Ólympíuleikum æskunnar sem fram fara í Kína. Perú komst í 2-0 í fyrri hálfleik en undir lok fyrri hálfleiks skoraði Torfi Gunnarsson mark fyrir Ísland.
16. ágúst 2014
Tæplega 30 leikmenn fæddir 1996 og 1997 hafa verið valdir til æfinga U19 landsliðs kvenna.  Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni EM, en Ísland leikur í riðli um miðjan september ásamt Spáni, Króatíu og Litháen.
15. ágúst 2014
U15 landslið karla vann í dag stórsigur á Hondúras í fyrsta leik sínum á Ólympíuleikum æskunnar, sem fram fara í Nanjing í Kína. Lokatölur voru 5-0 fyrir Ísland. Næsti leikur Íslands er gegn Perú á mánudag, og loks mætast Perú og Hondúras fimmtudaginn 21. ágúst í lokaleik riðilsins.