15. ágúst 2014
U15 landslið karla hefur leik í dag á Ólympíuleikum æskunnar, sem fram fara í Nanjing í Kína.  Freyr Sverrisson er þjálfari liðsins og hefur hann tilkynnt byrjunarlið Íslands.  Mótherjinn er Hondúras og hefst leikurinn kl. 10:00 að íslenskum tíma.
14. ágúst 2014
Þann 16. ágúst verða Ólympíuleikar ungmenna settir í borginni Nanjing í Kína.  Ísland sendir keppendur í knattspyrnu drengja (U15) og í sundi á leikana, ásamt fylgdarmönnum, og er fjöldi keppenda 20 talsins.
13. ágúst 2014
Á fundi aga- og úrskurðarnefndar þann 12. ágúst síðastliðinn voru ÍBV og Víkingur Ólafsvík sektuð.  ÍBV var sektað vegna framkomu stuðningsmanna á leik gegn KR í Borgunarbikar karla og Víkingur Ól. vegna framkomu leikmanns eftir leik gegn Grindavík í 1. deild karla.
13. ágúst 2014
Freyr Alexandersson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt 20 manna hóp fyrir leikinn mikilvæga við Dani þann 21. ágúst.  Með sigri í þeim leik á Ísland góða möguleika á sæti í umspili fyrir lokakeppni HM 2015, sem fram fer í Kanada næsta sumar.
13. ágúst 2014
Kristinn Jakobsson sækir um þessar mundir sérstakt undirbúningsnámskeið fyrir toppdómara sem dæma alþjóðlega leiki. Á námskeiðinu er sérstök áhersla lögð á undirbúning fyrir undankeppni EM karlalandsliða 2016 og svo riðlakeppni Meistaradeildar UEFA og Evrópudeildar UEFA.
13. ágúst 2014
Opnað hefur verið að nýju fyrir mótsmiðasölu á leiki Íslands í undankeppni EM 2016 og fer salan fram á vefsíðunni midi.is sem fyrr. Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á á Laugardalsvelli á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni.
13. ágúst 2014
A landslið kvenna mætir Danmörku í algjörum lykilleik í undankeppni HM 2015 á Laugardalsvelli fimmtudaginn 21. ágúst næstkomandi.  Leikurinn hefst kl. 19:30 og er knattspyrnuáhugafólk hvatt til að fjölmenna á völlinn og styðja stelpurnar okkar í þessu mikilvæga verkefni.
12. ágúst 2014
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Stjörnunnar gegn Breiðabliki vegna leik félaganna í bikarkeppni 2. flokks karla sem fram fór 19. júlí síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða.
11. ágúst 2014
Úrtökumót drengja (fæddir 1999) fer fram að Laugarvatni um næstu helgi.  Umsjón með mótinu hefur Þorlákur Árnason þjálfari U17 landsliðs karla.  Alls hafa 64 drengir frá félögum víðs vegar af landinu verið boðaðir til æfinga.
11. ágúst 2014
Opnað verður fyrir mótsmiðasölu á leiki Íslands í undankeppni EM 2016 kl. 12:00 á hádegi í dag, mánudag. Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á á Laugardalsvelli á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni.
11. ágúst 2014
Í síðustu viku framkvæmdi fulltrúi SGS gæðaúttekt á leyfiskerfi KSÍ. SGS er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki sem framkvæmir árlegar úttektir á leyfiskerfum aðildarlanda UEFA og gildir hver vottun í eitt ár. Gæðavottun á leyfiskerfi KSÍ hefur verið framlengt í eitt ár.
11. ágúst 2014
Sala mótsmiða á alla heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2016 hefur farið vel af stað og seldist m.a. upp í ódýrasta svæðið á stuttum tíma.  Miðasölunni hefur verið lokað um sinn og verður opnuð að nýju, þegar fleiri miðum hefur verið bætt í sölu.  
11. ágúst 2014
Úrtökumót KSÍ fyrir stúlkur var haldið að Laugarvatni dagana 8.-10. ágúst.  Hópurinn sem tók þátt var glæsilegur og greinilegt að þarna var samankominn hópur efnilegra knattspyrnustúlkna sem á vonandi eftir að láta mikið að sér kveðja í framtíðinni.
8. ágúst 2014
Í fyrsta sinn verður nú hægt að kaupa mótsmiða sem gildir á alla fimm heimaleiki Íslands í undankeppninni.  Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni.  Að auki fá mótsmiðahafar forkaupsrétt á aðgöngumiðum fyrir vináttuleiki A landsliðs karla. 
8. ágúst 2014
Nýr landsliðsbúningur Íslands í knattspyrnu var kynntur til sögunnar með formlegum hætti á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag, föstudag.  Hönnun búningsins er íslensk og er innblásin af íslenska fánanum.  
8. ágúst 2014
ÍR og Grótta mætast í toppslag í 2. deild karla í dag, föstudag.  Leikið er á Hertz-vellinum og hefst leikurinn kl. 19:00.  Dómarinn í leiknum heitir Dagfinn Forná og kemur hann frá Færeyjum. 
7. ágúst 2014
Hæfileikamótun KSÍ og N1 verður mánudaginn 11. ágúst á Ísafirði. Strákar æfa frá 09.45 - 11.00 og stelpur frá 11.00 - 12.15. Þá verður markmannsæfing fyrir 15 ára og eldri kl. 12.15 og fyrir 10-12 ára kl.13.00 í umsjón Þóru B. Helgadóttur landsliðsmarkmanns.
7. ágúst 2014
Árið 2015 verður úrslitakeppni EM U17 kvenna haldin á Íslandi. Um er að ræða eitt stærsta verkefni sem KSÍ hefur tekið að sér og því leitar KSÍ eftir aðstoð sjálfboðaliða, sem munu koma til með að gegna lykilhlutverki í framkvæmd mótsins.  Viltu taka þátt í skemmtilegu og gefandi verkefni?