Verslun
Leit
SÍA

6. ágúst 2014

Hæfileikamótun KSÍ og N1 í Fjarðabyggðarhöllinni 8. ágúst

Hæfileikamótun KSÍ og N1 verður föstudaginn 8.ágúst í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði. Strákar æfa frá 10.00-11.15 og stelpur frá 11.15-12.30.  Þá verður markmannsæfing fyrir 15 ára og eldri kl.13.00 í umsjón Þóru B. Helgadóttur landsliðsmarkmanns.

Fræðsla

6. ágúst 2014

Stjarnan leitar að yfirþjálfara yngri flokka

Stjarnan leitar að yfirþjálfara yngri flokka knattspyrnudeildar.  Yfirþjálfari hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á öllu faglegu barna- og unglingastarfi knattspyrnudeildar í samráði við barna- og unglingaráð og framkvæmdastjóra.

Fræðsla

1. ágúst 2014

U17 karla - Markalaust jafntefli gegn Finnum

Strákarnir í U17 gerðu markalaust jafntefli gegn Finnum í lokaleik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins sem fram fer í Danmörku.  Ísland leikur því um sjöunda sætið gegn Færeyingum og fer sá leikur fram á laugardaginn.

Landslið

31. júlí 2014

U17 karla - Leikið gegn Finnum í dag

Strákarnir í U17 leika í dag lokaleik sinn í riðlakeppni Norðurlandamótsins í Danmörku og hefst leikurinn kl .16:00.  Mótherjarnir eru Finnar en leikið verður í Kolding.  Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

30. júlí 2014

U15 karla - Æfingar og fundur hjá hópnum

Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur boðað hóp á æfingar og kynningarfund fyrir Ólympíuleika ungmenna.  Hópurinn er boðaður á fjórar æfingar á næstu dögum sem og á kynningarfund fyrir leikmenn og foreldra.

Landslið

30. júlí 2014

A karla - Vináttulandsleikur gegn Belgum 12. nóvember

Knattspyrnusambönd Íslands og Belgíu hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Brussel miðvikudaginn 12. nóvember næstkomandi.  Þetta verður í níunda skiptið sem karlalandslið þjóðanna mætast en Belgar hafa haft sigur í öll skiptin hingað til.

Landslið

30. júlí 2014

U17 karla - Naumt tap gegn Svíum

Strákarnir í U17 töpuðu gegn Svíum í öðrum leik þeirra á Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku.  Eftir að markalaust hafði verið í leikhléi skoruðu Svíar eina mark leiksins í síðari hálfleik og tryggðu sér sigur.

Landslið

29. júlí 2014

Áfrýjunardómstóll KSÍ - Úrskurður aganefndar staðfestur

Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð Aga- og úrskurðarnefndar varðandi leikbann leikmanns FH vegna atviks í leiks Breiðabliks og FH í Pepsi-deild karla sem fram fór 21. júlí síðastliðinn.

Agamál

29. júlí 2014

U17 karla - Byrjunarliðið sem mætir Svíum

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í dag á Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku.  Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en þetta er annar leikur íslenska liðsins á mótinu, töpuðu gegn Englandi í fyrsta leik á meðan Svía lögðu Finna.

Landslið

29. júlí 2014

Kristinn dæmir í Rússlandi

Kristinn Jakobsson mun dæma leik Dinamo Moskva frá Rússlandi og Hapoel Kiryat frá Ísrael í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Khimki í Rússlandi.  Kristni til aðstoðar verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson og varadómari verður Þóroddur Hjaltalín.

Dómaramál

29. júlí 2014

U17 karla - Enskur sigur í fyrsta leiknum

Strákarnir í U17 hófu leik í gær á Norðurlandamótinu í Danmörku þegar þeir mættu Englendingum.  Enskir höfðu betur, 5 - 1, eftir að þeir höfðu leitt í leikhléi, 2 - 0.  Leikið verður gegn Svíum í dag kl. 16:00 að íslenskum tíma.

Landslið

28. júlí 2014

U17 karla - Leikið gegn Englandi í dag

Strákarnir í U17 hefja í dag leik á Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku og er fyrsti leikurinn gegn Englandi.  Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma og hefur Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

25. júlí 2014

Úrtökumót KSÍ fyrir stúlkur á Laugarvatni 8. - 10. ágúst

Úrtökumót KSÍ árið 2014 fyrir stúlkur fæddar árið 1999 verður haldið á Laugarvatni, dagana 8. - 10. ágúst. Umsjón með mótinu hefur Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari U17 kvenna og honum til aðstoðar er Mist Rúnarsdóttir. Félög leikmanna og leikmenn eru beðin um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar:

Landslið

22. júlí 2014

Gunnar Jarl dæmir í Tromsö

Gunnar Jarl Jónsson mun á fimmtudaginn dæma leik Tromsö frá Noregi og Víkings frá Færeyjum í 2. umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA en leikið verður í Tromsö.  Gunnari til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Birkir Sigurðarson.  Varadómari verður Þorvaldur Árnason.

Dómaramál

22. júlí 2014

Rúnar Kristinsson útskrifast með UEFA Pro þjálfaragráðu

Nú á dögunum bættist enn í hóp íslenskra þjálfara sem hlotið hafa UEFA Pro þjálfaragráðu frá erlendu knattspyrnusambandi þegar Rúnar Kristinsson lauk námi sínu hjá enska knattspyrnusambandinu.

Fræðsla

17. júlí 2014

U17 karla - Hópurinn sem leikur á Norðurlandamótinu

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið  hópinn sem leikur á Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku, dagana 28. júlí til 2. ágúst.  Ísland leikur í riðli með Finnum, Svíum og Englendingum og verður síðastnefnda þjóðin fyrstu mótherjarnir.

Landslið

17. júlí 2014

Styrkleikalisti FIFA - Ísland upp um 5 sæti

Íslenska karlalandsliðið fer upp um fimm sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag.  Ísland er í 47. sæti listans en það eru nýkrýndir heimsmeistarar Þjóðverja sem tróna á toppi listans í fyrsta skiptið í um 20 ár.

Landslið

16. júlí 2014

Gylfi Már að störfum í Ungverjalandi

Gylfi Már Sigurðsson er nú í Ungverjalandi þar sem hann verður einn 8 aðstoðardómara sem verður við störf í úrslitakeppni EM U19 karla.  Keppnin stendur frá 19. júlí til 31. júlí en átta þjóðir berjast um titilinn.

Dómaramál