13. mars 2014
Stelpurnar í U19 leika í dag, seinni vináttulandsleik sinn gegn Finnum en leikið er í Eerikkilä Sport School. Fyrri leiknum lauk með 4 - 1 sigri Finna og ljóst að erfiður leikur bíður stelpnanna í dag. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið og má sjá það hér að neðan.
12. mars 2014
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Víking og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
12. mars 2014
Ísland tryggði sér þriðja sætið á Algarve mótinu sem lýkur í dag en þær lögðu Svía í frábærum leik, 2 - 1.  Þetta er aðeins í annað skiptið sem Ísland leggur Svíþjóð hjá A landsliði kvenna í 15 leikjum.
12. mars 2014
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Knattspyrnudeild UMFG og hefst kl. 20:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem verða 15 ára á almanaksárinu og eldri.
12. mars 2014
Dóra María Lárusdóttir leikur sinn 100 landsleik í dag fyrir íslenska landsliðið en liðið leikur við Svía um bronsið á Algarve-mótinu. Leikurinn hefst klukkan 11:00 og fer fram í Lagos.  Dóra verður fyrirliði íslenska liðsins en Freyr Alexandersson hefur tilkynnt byrjunarliðið og má sjá það að neðan.
11. mars 2014
Íslenska A-landslið kvenna leikur um bronsið á Algarve-mótinu á mótinu en leikurinn fer fram klukkan 11:00 í Lagos. Upphaflega stóð til að leikurinn yrði seinna um daginn en Svíar óskuðu eftir breytingu á leiktíma sem var samþykkt af íslenska liðinu.
11. mars 2014
Stelpurnar í U19 leika í dag fyrri vináttulandsleik sinn gegn Finnum og er leikið ytra, í Eerikkilä Sport School.  Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn í dag og má sjá það hér að neðan.
11. mars 2014
Knattspyrnulögin 2013 - 2014 eru nú aðgengileg hér á heimasíðunni í íslenskri þýðingu. Alþjóðanefndin (IFAB) kom saman 1. mars síðastliðinn og voru engar efnislegar breytingar gerðar á lögunum heldur var eingöngu um smávægilegar breytingar á texta laganna.
11. mars 2014
FIFA aðstoðardómararnir, Frosti Viðar Gunnarsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson, eru þessa dagana staddir í Lissabon í Portúgal þar sem þeir sitja UEFA ráðstefnu fyrir aðstoðardómara. Þetta er í fyrsta sinn sem UEFA heldur slíka ráðstefnu sem einblínir eingöngu á aðstoðardómara.
11. mars 2014
Stelpurnar í U19 töpuðu gegn Finnum í fyrri vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Eerikkilä Sport School í dag.  Lokatölur urðu 4 - 1 fyrir heimastúlkur sem leiddu í leikhléi, 2 - 0. Liðin eigast við aftur, á sama stað, fimmtudaginn 13. mars og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma.
10. mars 2014
Fyrri fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2014 fór fram í kvöld, mánudagskvöld.  Ekki voru gefin út nein þátttökuleyfi á fundi leyfisráðs í kvöld og bíða þau öll lokaafgreiðslu á seinni fundi ráðsins, sem fram fer næstkomandi föstudag.
10. mars 2014
Ísland vann sætan sigur á Kínverjum í lokaleik liðsins í riðlakeppninni á Algarve mótinu í Portúgal.  Íslenska liðið vann með einu marki gegn engu og kom markið í uppbótartíma þegar Fanndís Friðriksdóttir skoraði beint úr hornspyrnu.  Þessi sigur þýðir að íslenska liðið mætir því sænska í leik um þriðja sætið á miðvikudaginn
10. mars 2014
Hæfileikamótun KSÍ verður á Ísafirði á þriðjudaginn og miðvikudaginn 11. - 12. mars. Þorlákur Árnason verður með æfingar fyrir bæði stelpur og stráka í 3. og 4. flokki.
10. mars 2014
Um komandi helgi verða æfingar hjá U16 og U17 karla og hafa landsliðsþjálfararnir, Freyr Sverrisson og Þorlákur Árnason, valið leikmenn fyrir þessar æfingar og má sjá nöfn þeirra hér að neðan. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll.
10. mars 2014
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kína í síðasta leik riðlakeppni Algarve mótsins. Leikurinn hefst kl. 17:30 og með sigri tryggir Ísland sér annað sætið í riðlinum.
7. mars 2014
Stelpurnar unnu góðan sigur á Noregi í dag á Algarve mótinu en þetta var annar leikur Íslands á mótinu. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir íslenska liðið eftir að markalaust hafði verið í leikhléi.  Síðasti leikur Íslands í riðlakeppninni verður svo á mánudaginn þegar leikið verður gegn Kína.
7. mars 2014
Byrjunarliðið Íslands gegn Noregi hefur verið opinberað og má sjá það með því að smella hér að neðan.  Fjölmargar breytingar eru gerðar frá leiknum gegn Þýskalandi. Þóra B. Helgadóttir leikur sinn 100 leik og mun því bera fyrirliðabandið í leiknum.
7. mars 2014
Helgina 8. - 9. mars verða æfingar hjá U16, U17 og U19 kvenna og fara þær fram í Kórnum og Egilshöll.  Landsliðsþjálfararnir, Úlfar Hinriksson og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið leikmenn á þessar æfingar og má sjá nöfn þeirra hér að neðan.