6. mars 2014
U19 landslið karla vann 2-0 sigur á Svíum í vináttulandsleik sem fram fór í Egilshöll í dag, fimmtudag. Sigurinn var talsvert öruggari en tölurnar gefa til kynna, því sænska liðið missti tvo leikmenn af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik og náði ekki að ógna íslenska markinu.
6. mars 2014
U19 landslið karla mætir Svíum í annað sinn á þremur dögum í Egilshöll í dag, fimmtudag, og hefst leikurinn, sem er í beinni útsendingu á Sport TV, kl. 09:45. Kristinn Rúnar Jónsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands.
6. mars 2014
A landslið kvenna tapaði með fimm mörkum gegn engu þegar liðið mætti Þýskalandi í fyrsta leik á Algarve-mótinu í Portúgal á miðvikudag. Þýska liðið, sem var ógnarsterkt að venju, skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik og tvö í þeim seinni.
5. mars 2014
U21 landslið karla tapaði með grátlegum hætti 3-2 gegn Kasakstan í undankeppni EM 2015, en leikið var í Astana í Kasakstan í dag, miðvikudag.  Þrátt fyrir úrslit dagsins er Ísland í vænlegri stöðu og stefnir enn hraðbyri í umspil um sæti í lokakeppninni.
5. mars 2014
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið byrjunarliðið sem mætir Þýskalandi í dag á Algarve-mótinu. Tveir leikmenn stíga sín fyrstu spor á stóra sviðinu en Ásgerður Stefanía og Soffía Arnþrúður byrja inn á í leiknum, sem hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.
5. mars 2014
U21 landslið karla mætir Kasakstan í undankeppni EM 2015 í dag, miðvikudag.  Leikið er í Astana og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Hægt er að fylgjast með gangi mála á vef UEFA.  Byrjunarlið Íslands hefur verið opinberað.
5. mars 2014
Það er óhætt að segja að dýrasti knattspyrnumaður heims, Gareth Bale, hafi átt góðan dag í Cardiff þegar Wales mætti Íslandi í vináttulandsleik.  Bale, sem leikur eins og kunnugt er með Real Madrid á Spáni, lagði upp tvö fyrstu mörk heimamanna og skoraði svo það þriðja í 3-1 sigri á Íslendingum. 
5. mars 2014
Byrjunarlið A karla gegn Wales hefur verið opinberað, en liðin mætast í vináttulandsleik í Cardiff sem hefst kl. 19:45 í kvöld, miðvikudagskvöld, og er í beinni útsendingu á Skjásport.  Það er ekki margt sem hefur á óvart í liðsvali og uppstillingu þeirra Lars og Heimis, en þó er athyglisvert að Theodór Elmar Bjarnason leikur í hægri bakverði.
4. mars 2014
Dóra María Lárusdóttir er orðin varafyrirliði íslenska landsliðsins en þetta var tilkynnt á fundi með liðinu í kvöld á Algarve. Sara Björk Gunnarsdóttir er fyrirliði liðsins en hún tók við fyrirliðabandinu af Margréti Láru Viðarsdóttur.
4. mars 2014
Framundan er vináttulandsleikur hjá karlalandsliði okkar gegn Wales á morgun, miðvikudaginn 5. mars kl. 19:45.  Liðið æfði í dag á æfingasvæði úrvalsdeildarliðs Cardiff en það er í göngufæri frá hóteli íslenska liðsins.  Létt æfing verður þar einnig á leikdag en æfingavellirnir eru nokkuð blautir eftir miklar rigningar síðustu misseri en engu að síður í þokkalegu ástandi.
4. mars 2014
Ísland mætti Svíþjóð í vináttuleik U19 karla í Kórnum fyrr í dag, þriðjudag, og fór Ísland með öruggan 3-0 sigur af hólmi. Íslenska liðið leiddi með einu marki í hálfleik og bætti við öðru marki fljótlega í þeim seinni, auk þess sem Svíar skoruðu eitt sjálfsmark. 
4. mars 2014
Borgun hefur framlengt samstarfssamningi sínum við Knattspyrnusamband Íslands til fjögurra ára. Borgun hefur verið einn af bakhjörlum KSÍ og mun áfram vera meðal þeirra öflugu fyrirtækja sem hafa séð sóknarfærin í því að vera öflugur samherji KSÍ.
4. mars 2014
Nú er hafinn marsmánuður, sem er auðvitað miklu meira en bara einn af tólf mánuðum ársins.  Þetta er Mottumars, og mun knattspyrnuhreyfingin að sjálfsögðu taka virkan þátt eins og áður.  KSÍ hvetur alla sem þetta lesa til að skrá sig til þátttöku.
3. mars 2014
Karlalandsliðið er komið til Cardiff en framundan er vináttulandsleikur gegn Wales sem fram fer á miðvikudaginn.  Æft var á keppnisvellinum, Cardiff City Stadium, í dag en á þeim velli leikur landsliðsfyrirliðinn , Aron Einar Gunnarsson, heimaleiki með félagsliði sínu Cardiff.
3. mars 2014
Knattspyrnusamband Íslands hefur neyðst til að aflýsa 3. stigs þjálfaranámskeiði, sem fara átti fram helgina 21.-23. mars á Akureyri. Ástæða aflýsingarinnar er dræm þátttaka.
3. mars 2014
Úrtaksæfing fyrir drengi fædda 1999 verður á Reyðarfirði næstkomandi miðvikudag kl. 18.30. Æfingin verður í Fjarðabyggðarhöllinni og er mæting kl.18.00. Freyr Sverrisson þjálfari U16 mun sjá um æfinguna.
3. mars 2014
Hæfileikamótun KSÍ verður í Fjarðarbyggðarhöllinni í Reyðarfirði næstkomandi miðvikudag. Þar verða æfingar fyrir bæði stelpur og stráka í 4. flokki.  Stúlkurnar byrja kl.16.00 og strákarnir kl.17.15.  Smellið hér að neðan til að skoða nánar.
3. mars 2014
Það verður svo sannarlega nóg um að vera hjá landsliðunum okkar  í vikunni, bæði hér heima og á erlendri grundu.  Alls leika fjögur landslið sex landsleiki á fjórum dögum.  U19 karla leikur tvo leiki hérlendis, U21 karla leikur í Kasakstan, A karla í Wales, og A kvenna leikur tvo leiki í Algarve-bikarnum.