6. janúar 2014
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfarar, hafa valið hópinn sem mætir Svíum í vináttulandsleik í Abu Dhabi, þriðjudaginn 21. janúar næstkomandi.  Það eru 20 leikmenn sem skipa hópinn að þessu sinni, þar af eru 5 leikmenn sem ekki hafa leikið A landsleik. 
2. janúar 2014
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fjölni og hefst kl. 18:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Námskeiðið er ókeypis.
28. desember 2013
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Tottenham, var rétt í þessu útnefndur íþróttamaður ársins 2013 af samtökum íþróttafréttamanna. Hann átti frábært ár með landsliðinu sem og félagsliði sínu á Englandi.
20. desember 2013
Dóra María Lárusdóttir og Gunnleifur Gunnleifsson, landsliðsfólk, heimsóttu í gær barnaspítala Hringsins en þau komu í jólaskapi með gjafir handa þeim frábæru krökkum sem þar dvelja. Krakkarnir fengu fótboltabækur, veggspjöld og auðvitað fótbolta. Einnig fékk barnaspítalinn landsliðstreyju áritaða af karlalandsliðinu en treyjan var árituð fyrir umspilsleikina gegn Króatíu.
20. desember 2013
Freyr Alexandarsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur boðað 35 leikmenn á vinnudag A landsliðs kvenna en hópurinn mun hittast, föstudaginn 3. janúar. Hópurinn mun hittast í höfuðstöðvum KSÍ en ýmislegt er á dagskránni á þessum vinnudegi.
20. desember 2013
Fyrstu helgina á nýju ári verða landsliðsæfingar hjá U17, U19 og U21 karla. Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason, Kristinn R. Jónsson og Eyjólfur Sverrisson, hafa valið leikmenn á þessar æfingar og eru 128 leikmenn boðaðir á þessar æfingar.
19. desember 2013
Íslenska karlalandsliðið fer upp um eitt sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland er í 49. sæti en litlar breytingar eru á efstu sætum listans þar sem Spánverjar tróna á toppnum sem fyrr.
18. desember 2013
Knattspyrnusambönd Íslands og Svíþjóðar hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 21. janúar næstkomandi. Leikið verður í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum, í höfuðborginni Abu Dhabi.
16. desember 2013
68. ársþing KSÍ verður haldið í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri 15. febrúar næstkomandi. Að neðan er listi yfir fjölda þingfulltrúa. Sambandsaðilar eru beðnir um að fara yfir listann og gera athugasemdir ef þörf krefur.
16. desember 2013
Knattspyrnudeild Fylkis leitar að þjálfara fyrir 4. flokk karla sem getur hafið störf strax. Viðkomandi þarf vera með reynslu af þjálfun og viðeigandi menntun. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttafulltrúa Fylkis, Hörð Guðjónsson með því að senda tölvupóst á netfangið hordur@fylkir.com eða með því að hringja í síma 571-5604.
13. desember 2013
Íslenska kvennalandsliðið fellur um fjögur sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland er nú í 19. sæti listans en Bandaríkin eru sem fyrr í efsta sæti listans og Þjóðverjar koma þar næstir.
11. desember 2013
KÞÍ í samvinnu við knattspyrnuþjálfarafélög á Norðurlöndum kynna glæsilega ráðstefnu um unglingaþjálfun.  Ráðstefnan er haldin í nýjum höfuðstöðvum enska knattspyrnusambandsins í St George´s Park.  Ráðstefnan er metin sem UEFA-B endurmenntun. Við getum nú boðið meðlimum okkar lækkað verð á ráðstefnuna. Verð 950 evrur í tvíbýli og 1200 evrur í einbýli á Hilton hótelinu sem er á svæðinu
10. desember 2013
Arnar Bill Gunnarsson hefur verið ráðinn fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands og tekur við af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni þann 1. febrúar næstkomandi.  Arnar Bill hefur starfað síðustu ár hjá Breiðabliki, fyrst sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla svo sem yfirþjálfari yngri flokka en hefur síðasta ár verið aðalþjálfari 2. og 3. flokks karla.
9. desember 2013
Framundan eru æfingar hjá U17 og U19 karla og fara þær fram í Kórnum og Egilshöllinni, helgina 14. og 15. desember næstkomandi. Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Kristinn R. Jónsson, hafa valið leikmenn á þessar æfingar en tveir hópar verða við æfingar hjá U17 karla.
9. desember 2013
Þorvaldur Árnason mun dæma leik Manchester United og Shaktar Donetsk í Meistaradeild ungmenna en leikið verður í Leigh, mánudaginn 9. desember. Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Ásgeir Þór Ásgeirsson og Andri Vigfússon.
9. desember 2013
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hóp sem kemur saman og æfir, laugardaginn 14. desember, í Kórnum. Alls eru 23 leikmenn boðaðir á þessa æfingu og eru þeir langflestir frá íslenskum félagsliðum.
5. desember 2013
Á vinnufundi með leyfisfulltrúum félaga, sem haldinn var í höfuðstöðvum KSÍ, var farið yfir breytingar á leyfisreglugerðinni milli ára og ýmis hagnýt atriði, auk þess sem ítarlega var farið yfir nýjar fjárhagsreglur um hámarksskuldabyrði og eiginfjárstöðu félaga.
5. desember 2013
68. ársþing KSÍ verður haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 15. febrúar næstkomandi. Tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi miðvikudaginn 15. janúar næstkomandi.