5. desember 2013
Fimmtudaginn 5. desember 2013 er alþjóðadagur sjálfboðaliðans.  Af því tilefni kynnir ÍSÍ sjálfboðaliðavefinn Allir sem einn sem tekinn var í notkun á síðasta íþróttaþingi. Meðlimir knattspyrnufjölskyldunnar eru hvattir til að kynna sér vefinn og skrá sína sjálfboðaliðavinnu þar.
4. desember 2013
Hér á vefnum er hægt að leita upplýsinga um öll aðildarfélög innan KSÍ. Mikilvægt er að þessar upplýsingar séu sem nákvæmastar og er þeim tilmælum beint til forsvarsmanna félaganna að fara yfir upplýsingar tengdar sínu félagi og láta vita ef þær eru ekki réttar.
4. desember 2013
Helgina 7.-8. desember mun Magni Mohr halda námskeið um líkamsþjálfun knattspyrnumanna. Námskeiðið verður haldið í Reykjavík og í Hveragerði. Námskeiðið er opið öllum sem áhuga hafa. Magni hefur tvisvar áður komið hingað til lands og haldið námskeið við mjög góðan orðstír.
28. nóvember 2013
Íslenska karlalandsliðið fellur niður um fjögur sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag.  Ísland er nú í 50. sæti listans en sem fyrr eru Spánverjar í efsta sæti listans og Þjóðverjar koma þar næstir.
28. nóvember 2013
Dregið hefur verið í milliriðla EM U17 og U19 karla 2014, en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í dag, fimmtudag. U17 karla er í riðli með Portúgal og U19 karla er í riðli með Serbum, sem eru ríkjandi Evrópumeistarar í aldursflokknum.  
28. nóvember 2013
Dregið hefur verið í undankeppni EM U17 og U19 karla 2015, en drátturinn fór fram í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í dag, fimmtudag. Ítalir verða á meðal andstæðinga U17 karla og mótherjar U19 karla verða Tyrkir, Króatar og Eistlendingar.
27. nóvember 2013
Á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember, verður dregið í milliriðla EM 2014 hjá U17 og U19 karla og í undankeppni EM 2015 hjá sömu aldursflokkum. Ísland verður í öllum pottum þegar dregið verður í höfuðstöðvum UEFA en hægt verður að fylgjast með á heimasíðu UEFA og hefst fyrsti drátturinn kl. 08:00 að íslenskum tíma.
27. nóvember 2013
Helgina 7. - 8. desember verða úrtaksæfingar hjá yngri landsliðum kvenna og eru rúmlega 100 leikmenn boðaðir á þessar æfingar.  Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U19 kvenna og Úlfar Hinriksson landsliðsþjálfari U17 kvenna hafa valið eftirtalda leikmenn á þessar landsliðsæfingar.
27. nóvember 2013
Hátt í 300 leikmenn hjá félögunum 12 í Pepsi-deild karla undirgangast læknisskoðun á ári hverju vegna þeirra krafna sem settar eru fram í leyfisreglugerð KSÍ. Félag sem sækir um þátttökuleyfi fyrir keppnistímabilið 2014 leggur þannig fram staðfestingu á að læknisskoðun leikmanna hafi farið fram á árinu 2013.
26. nóvember 2013
Knattspyrnuþjálfarafélagið mun standa fyrir tveimur fundum í desember. Tilgangurinn er að draga fram álit þjálfara og hagsmunaaðila í þessum flokkum, rýna til gagns og vonandi leggja fram tillögur til KSÍ í kjölfarið.
26. nóvember 2013
UEFA hefur gefið út umfangsmikla skýrslu um stöðu knattspyrnu kvenna í aðildarlöndum sínum. Í skýrslunni er ítarleg greining á stöðunni og áhugaverður samanburður milli landa í Evrópu með fjölbreyttri tölfræði og eru helstu niðurstöður settar fram með myndrænum og skýrum hætti.
25. nóvember 2013
Svíinn Lars Lagerbäck var ráðinn þjálfari A landsliðs karla í október 2011 og var Heimir Hallgrímsson ráðinn aðstoðarþjálfari. Þeir Lars og Heimir hafa nú undirritað nýja samninga um áframhaldandi þjálfun liðsins. Samningurinn við Lars gildir næstu tvö árin, en samningur Heimis næstu fjögur ár. Heimir og Lars starfa báðir sem aðalþjálfarar liðsins næstu tvö árin og mun Heimir taka einn við liðinu sem aðalþjálfari næstu tvö árin þar á eftir.
25. nóvember 2013
Úrtaksæfingar fara fram um komandi helgi og verða æfingarnar í Kórnum og Egilshöll. Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Kristinn R. Jónsson, hafa valið hópa fyrir þessar æfingar en tveir hópar verða við æfingar hjá U17 karla.
25. nóvember 2013
Kristinn Jakobsson dæmir leik HNK Rijeka frá Króatíu og Vitória frá Portúgal í Evrópudeild UEFA, fimmtudaginn 28. nóvember, en leikið verður í Króatíu. Aðstoðardómarar Kristins verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Áskell Þór Gíslason og fjórði dómari verður Sigurður Óli Þorleifsson. Aukaaðstoðardómarar verða þeir Þóroddur Hjaltalín og Þorvaldur Árnason.
22. nóvember 2013
Á dögunum voru tveir nemendur úr fjölmiðlafræði 103 við Fjölbrautarskólann við Ármúla í heimsókn hjá okkur og fylgdust með fjölmiðlum á leik Íslands og Frakklands hjá U21 karla.  Þau gerðu svo verkefni um þessa reynslu sína og má sjá afraksturinn hér að neðan.
22. nóvember 2013
Fjármálaráðstefna ÍSÍ verður haldin í Laugardalshöll föstudaginn 29. nóvember næstkomandi kl. 13:00-16:00.  Ráðstefnan mun að þessu sinni fjalla um rekstrarumhverfi íþróttafélaga og íþróttahreyfingarinnar í heild sinni.
21. nóvember 2013
Helgina 7.-8. desember mun Magni Mohr halda námskeið um líkamsþjálfun knattspyrnumanna. Námskeiðið verður haldið á höfuðborgarsvæðinu. Magni hefur tvisvar áður komið hingað til lands og haldið námskeið við mjög góðan orðstír. Magni er íþróttalífeðlisfræðingur með sérhæfingu í þjálfun knattspyrnumanna og er í fremstu röð í heiminum í sínu fagi.
21. nóvember 2013
Hvað gerist ef félag í Pepsi-deild eða 1. deild karla fær ekki útgefið þátttökuleyfi? Hvaða félög taka sæti þeirra sem ekki fá leyfi? Hér að neðan má sjá viðeigandi ákvæði í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót.