Verslun
Leit
SÍA

21. nóvember 2013

Félögum í öðrum deildum velkomið að undirgangast leyfiskerfið

Leyfisferlið fyrir keppnistímabilið 2014 hófst í liðinni viku.  Leyfiskerfið sem slíkt nær eingöngu til efstu tveggja deilda karla.  Engu að síður er þeim félögum sem leika í öðrum deildum velkomið að undirgangast leyfiskerfið, óski þau þess. 

Leyfiskerfi

21. nóvember 2013

U19 kvenna - Stelpurnar leika í Króatíu

Stelpurnar í U19 drógust í riðil með Skotum, Rússum og Króötum þegar dregið var í milliriðla EM. Leikið verður í Króatíu dagana 5. - 10. apríl. Þá var einnig dregið í undankeppni fyrir EM 2015 og lenti Ísland þar í riðli með Spánverjum, Króötum og Litháum.

Landslið

20. nóvember 2013

Umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga hjá ÍSÍ

Ferðasjóður íþróttafélaga hefur fengið árlegt framlag á Fjárlögum Alþingis, allt frá árinu 2007, til úthlutunar til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu vegna keppnisferða innanlands.  Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var falin umsjón á útreikningi og úthlutunum úr sjóðnum.  Umsóknarfrestur er til miðnættis 10. janúar næstkomandi.

Fræðsla

19. nóvember 2013

Draumurinn úti í bili - Króatía á HM

Íslenska karlalandsliðið beið lægri hlut í kvöld gegn sterku liði Króata í seinni umspilsleiknum um laust sæti á HM í Brasilíu á næsta ári. Lokatölur í leiknum í Zagreb urðu 2 - 0 fyrir heimamenn sem leiddu einnig í leikhléi með einu marki. Króatar komust því á HM með því að hafa betur, samanlagt, í tveimur leikjum, 2 - 0.

Landslið

18. nóvember 2013

Svona gerðust hlutirnir á Laugardalsvelli

Það fór ekki framhjá neinum að Laugardalsvöllur skartaði sínu fegursta á föstudaginn þegar Ísland lék við Króata í fyrri leik liðanna í umspli fyrir sæti á HM. Það var í mörg horn að líta til að allt gæti gengið upp en vallarstarfsfólk KSÍ ásamt mörgum öðrum lögðu nótt við dag til að hafa völlinn í sem bestu ásigkomulagi.

Landslið

18. nóvember 2013

Dregið í milliriðla hjá U19 kvenna á miðvikudaginn

Dregið verður í milliriðla EM hjá U19 kvenna, miðvikudaginn 20. nóvember, og verður dregið í höfuðstöðvum UEFA. Sama dag verður dregið í undankeppni EM 2015 hjá sama aldursflokki en Ísland verður í pottinum í bæði skiptin.

Landslið

18. nóvember 2013

Æft var á keppnisvellinum í dag

Íslensku strákarnir æfðu í dag á Maksimir vellinum í Zagreb en þar leika Króatía og Ísland í seinni umspilsleiknum um laust sæti á HM á næsta ári. Leikurinn hefst kl. 19:15 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu hjá RÚV.

Landslið

18. nóvember 2013

Gunnar Jarl dæmir í Englandi

Gunnar Jarl Jónsson mun dæma leik Englands og San Marínó í undankeppni EM U21 karla en leikið verður í Shrewsbury, þriðjudaginn 19. nóvember. Gunnari til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Birkir Sigurðarson og fjórði dómari verður Erlendur Eiríksson.

Dómaramál

18. nóvember 2013

Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands 21. nóvember

Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 21. nóvember næstkoandi klukkan 20:00.  Veittar viðurkenningar fyrir þjálfara ársins í efstu deild karla og kvenna Veittar viðurkenningar fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka. 

Fræðsla

15. nóvember 2013

Ísland - Króatía í kvöld kl. 19:00

Fyrri umspilsleikur Íslands og Króatía um sæti í úrslitakeppni HM hefst kl. 19:00 í kvöld á Laugardalsvelli.  Áhorfendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn til að forðast biðraðir en völlurinn opnar kl. 18:00. Spáin er prýðileg fyrir kvöldið en allir hvattir samt til þess að klæða sig vel og ekki skemmir fyrir að mæta í bláu. 

Landslið

15. nóvember 2013

Námskeið í markmannsþjálfun - Námskeiðinu frestað

KSÍ mun halda grunnnámskeið í markmannsþjálfun helgina 29. nóv.-1. des og fer það fram í höfuðstöðvum KSÍ og í Hamarshöllinni í Hveragerði. Námskeiðið er ætlað þeim markmannsþjálfurum sem eru að stíga sín fyrstu skref og eins þeim þjálfurum sem búa ekki svo vel að hafa markmannsþjálfara en vilja sinna sínum markmönnum á góðan hátt. Námskeiðinu hefur verið frestað og er fyrirhugað í janúar eða febrúar 2014.

Fræðsla

15. nóvember 2013

Magnaður stuðningur áhorfenda í kvöld

Stuðningur áhorfenda á Laugardalsvelli í kvöld var einfaldlega magnaður.  Frá því löngu fyrir leik voru áhorfendur byrjaðir að hvetja og það hélt áfram allan leikinn og rúmlega það.  Stórkostleg stemning sem lengi verður í minnum höfð.

Landslið

15. nóvember 2013

Markalaust jafntefli gegn Króatíu

Jafntefli varð í fyrri umspilsleik Íslands og Króatíu um laust sæti á HM 2014 en leikið var á Laugardalsvelli.  Ekkert mark var skorað í leiknum en íslenska liðið lék manni færra síðustu 40 mínútur leiksins. Seinni leikur Króatíu og Íslands fer fram í Zagreb næstkomandi þriðjudag, þar verður allt undir en það er allt hægt.

Landslið

15. nóvember 2013

Leyfisferlið fyrir 2014 hafið

Samkvæmt leyfisreglugerð KSÍ hefur þeim félögum sem hyggjast sækja um þátttökuleyfi í Pepsi-deild og 1. deild karla 2014 verið sendar nauðsynlegar upplýsingar, áður en vinna við leyfisumsókn hefst.

Leyfiskerfi

15. nóvember 2013

Byrjunarlið Íslands gegn Króatíu

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Króötum í fyrri umspilsleik þjóðanna um laust sæti á HM 2014.  Leikurinn hefst kl. 19:00 á Laugardalsvelli og verður í beinni útsendingu hjá RÚV.

Landslið

15. nóvember 2013

Aukamiðar á Ísland – Króatía

Um 300 miðar á umspilsleik Ísland – Króatía fara í sölu kl. 14:00 í dag og fer salan fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.  Þessir miðar eru aðeins í K hólfi og eru komnir til vegna þess að stuðningsmenn Króata verða færri en reiknað var með og skiluðu þeir hluta af þeim miðum sem þeim var úthlutað.

Landslið

14. nóvember 2013

Mætum tímanlega á Ísland - Króatía

Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn.  Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll.  Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Króatíu sem hefst kl. 19:00, föstudaginn 15. nóvember.  Hlið Laugardalsvallar ljúkast upp kl. 18:00.

Landslið

13. nóvember 2013

Styrkjum neyðaraðstoð UNICEF

Landslið karla í knattspyrnu beinir í aðdraganda stórleikjanna við Króatíu athyglinni að börnum sem eiga um sárt að binda.  Leikmenn hvetja landsmenn til að leggja neyðarstarfi UNICEF á Filippseyjum lið í kjölfar eins stærsta fellibyls sögunnar.

Fræðsla