Verslun
Leit
SÍA

14. október 2013

Æfingaáætlun yngri landsliða 2013 - 2014

Æfingaáætlun yngri landsliða veturinn 2013-2014 liggur nú fyrir og má sjá hana í skjali hér að neðan. Félög skulu heimila leikmönnum sínum þátttöku í æfingum og æfingaleikjum á þessum dögum og eru því minnt á að taka mið af þessum dagsetningum við skipulagningu æfinga og leikja hjá sér.

Landslið

14. október 2013

Ísland - Frakkland - A passar gilda við innganginn

Handhafar A passa frá KSÍ geta sýnt skírteini sitt við innganginn á leik Íslands og Frakklands í undankeppni EM U21 karla sem fram fer á Laugardalsvelli, mánudaginn 14. október kl. 18:30.  Ekki þarf því að sækja miða á skrifstofu KSÍ.

Landslið

14. október 2013

Frítt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega á Ísland - Frakkland

KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að leiknum  Ísland – Frakkland í undankeppni EM U21 karla sem fram fer á Laugardalsvelli mánudaginn 14. október kl. 18:30.

Landslið

14. október 2013

U21 karla - Ísland mætir Frökkum í kvöld

Íslendingar mæta Frökkum í kvöld, mánudaginn 14. október, í undankeppni EM og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli kl. 18:30.  Hér er um sannkallaðan stórleik að ræða en þarna eigast við tvö lið sem hafa fullt hús stiga til þessa í undankeppninni.

Landslið

14. október 2013

U21 karla - Naumt tap gegn Frökkum

Strákarnir í U21 töpuðu gegn Frökkum í kvöld í undankeppni EM en leikið var á Laugardalsvelli.  Lokatölur, í miklum markaleik, urðu 3 - 4 fyrir Frakka eftir að staðan hafði verið 1 - 1 í leikhléi.  Mjög fjörugur leikur sem boðið var upp á í Laugardalnum í kvöld og hafði íslenska liðið algjörlega í fullu tréi við franska liðið.

Landslið

14. október 2013

Bjarmi vann flug fyrir 2 með Icelandair

Bjarmi Kristinsson, ungur Valsari, var aldeilis heppinn á leik Íslands og Kýpur en hann tók þátt í leiknum "Skot í slána" en hann gerði sér lítið fyrir og hitti beint í slána og fyrir það skellir hann sér með einhverjum til útlanda.

Landslið

14. október 2013

Ósóttir miðar á Noreg - Ísland

Ennþá eru til miðar fyrir íslenska áhorfendur á leik Noregs og Íslands í undankeppni HM sem fram fer á Ullevaal í Osló, þriðjudaginn 15. október.  Ósótta miða er hægt að nálgast á Horgans Bar & Restaurant frá kl. 15:00 á leikdag en þar ætla stuðningsmenn Íslands að hittast fyrir leik og stilla saman strengi.

Landslið

12. október 2013

U19 karla - Tap gegn Belgum

Strákarnir í U19 biðu lægri hlut gegn Belgum í dag í undankeppni EM.  Leikið er einmitt í Belgíu og höfðu heimamenn betur, 2 - 0, eftir að hafa leitt með einu marki í leikhléi.  Belgar hafa þar með tryggt sér sæti í milliriðlum en hinar þrjár þjóðirnar berjast um annað sætið í riðlinum.

Landslið

12. október 2013

U19 karla - Byrjunarliðið gegn Belgum

Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Belgum í dag í undankeppni EM en leikið er í Belgíu.  Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og er minnt á textalýsingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.

Landslið

11. október 2013

Keflavík sektað vegna framkomu stuðningsmanna

Á fundi Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ 8. október 2013 var samþykkt að sekta Keflavík  um 30.000 krónur vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í leik Keflavíkur og ÍBV  í Pepsi-deild  karla 22. september síðastliðinn.

Agamál

11. október 2013

Kýpverjar lagðir í Laugardalnum

Íslendingar lögðu Kýpverja í kvöld í undankeppni EM fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland og komu bæði mörkin í síðari hálfleik.  Ísland mætir Noregi í lokaleiknum í Osló og Slóvenía sækir Sviss heim. Það er ljóst að með sigri er Ísland öruggt með annað sætið.

Landslið

11. október 2013

Magnaður stuðningur!

Stuðningur áhorfenda á Laugardalsvelli í kvöld var einfaldlega magnaður og óhætt að segja að framlag þeirra hafi átt stóran þátt í góðum sigri. Frá því að mætt var á völlinn létu áhorfendur svo sannarlega vel í sér heyra og hélt sá stuðningur áfram langt fram yfir leikslok.

Landslið

11. október 2013

Byrjunarliðið gegn Kýpur

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kýpur í undankeppni HM á Laugardalsvelli kl. 18:45. Sama byrjunarlið byrjar leikinn og í síðasta leik gegn Albaníu. Uppselt er á leikinn en minnt er á að leikurinn er í beinni útsendingu hjá RÚV.

Landslið

11. október 2013

FH leitar eftir metnaðarfullum þjálfara fyrir 2. flokk kvenna

Kvennaráð FH auglýsir stöðu þjálfara 2. flokk kvenna. lausa til umsóknar. Viðkomandi þarf að hafa lokið UEFA B gráðu og KSÍ V að auki, með reynslu af þjálfun og metnað til að vinna að frekari uppgangi í kvennaknattspyrnunni hjá FH. 2.fl. kvk. FH var Íslandsmeistari árið 2012 og lenti í öðru sæti í ár.

Fræðsla

11. október 2013

Þóroddur dæmir á Möltu

Þóroddur Hjaltalín dæmir leik Möltu og Grikklands í undankeppni EM hjá U21 karla en leikið verður þriðjudaginn 15. október. Þóroddi til aðstoðar verða þeir Áskell Þór Gíslason og Gylfi Már Sigurðsson og fjórði dómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.

Dómaramál

10. október 2013

EKKI MEIR - Fimm fræðsluerindi um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála

Æskulýðsvettvangurinn (ÆV),  samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar, stendur fyrir í október fimm fræðsluerindum um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála.  Fyrirlesari er Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og höfundur bókarinnar "EKKI MEIR".

Fræðsla

10. október 2013

Ekkert hatur - orðum fylgir ábyrgð

Föstudaginn 11. október næstkomandi verður farið af stað með verkefni gegn hatursorðræðu á Íslandi. Verkefninu, sem meðal annars er beint gegn hatursáróðri og kynþáttafordómum verður ýtt úr vör á landsleik Íslands gegn Kýpur á Laugardalsvelli.

Fræðsla

10. október 2013

Vefskrá fyrir leikinn við Kýpur

KSÍ hefur gefið út sérstaka vefskrá fyrir leikinn við Kýpur í undankeppni HM 2014, en liðin mætast á Laugardalsvelli á föstudag eins og kunnugt er. Í vefskránni er fjallað um leikinn, liðið og möguleika þess í riðlinum, auk þess sem fjallað er um einstaka leikmenn og verkefni annarra landsliða.

Landslið