Verslun
Leit
SÍA

10. október 2013

Mætum tímanlega á Ísland - Kýpur

Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn.  Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll.

Landslið

10. október 2013

U19 karla - Frábær endurkoma hjá strákunum

Strákarnir í U19 náðu í frábært stig í fyrsta leik þeirra í undankeppni EM en leikstaðurinn er Belgía.  Frakkar voru mótherjar dagsins og lauk leiknum með jafntefli, 2 - 2, eftir að Frakkar höfðu leitt með tveimur mörkum í leikhléi.  Leikið verður við Belga á laugardaginn.

Landslið

10. október 2013

Guðmundur Ársæll dæmir í Wales

Guðmundur Ársæll Guðmundsson mun á laugardaginn dæma leik Rhyl og New Saints í velsku úrvalsdeildinni.  Þetta er verkefni er hluti af samstarfi knattspyrnusambanda Íslands og Wales en í sumar dæmdi Kris Hames frá Wales, leik Breiðabliks og Fylkis í Pepsi-deild karla.

Dómaramál

10. október 2013

U19 karla - Leikið gegn Frökkum í dag

Strákarnir í U19 hefja í dag leik í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Belgíu.  Mótherjar dagsins eru Frakkar og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma.  Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslendinga.  Minnt er á textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.

Landslið

9. október 2013

Ungverskir dómarar á leik Íslands og Kýpur

Það verða ungverskir dómarar sem munu dæma leik Íslands og Kýpur í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, föstudaginn 11. október kl. 18:45. Það verður István Vad sem dæmir leikinn en honum til aðstoðar verða þeir István Norbert Albert og Zsolt Attila Szpisják. Fjórði dómari verður Tamás Bognár.

Dómaramál

9. október 2013

Þóroddur fjórði dómari á leik Litháens og Lettlands

Þóroddur Hjaltalín verður fjórði dómari á leik Litháens og Lettlands í undankeppni HM sem fram fer í Vilníus, 11. október. Þóroddur starfar þar með færeyskum dómurum en það er Petur Reinert sem dæmir leikinn og honum til aðstoðar verða þeir Regin Egholm og Jan A Líðarenda.

Dómaramál

8. október 2013

U17 karla - Hópur valinn til úrtaksæfinga um helgina

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp til úrtaksæfinga sem fara fram um komandi helgi.  Valdir eru 36 leikmenn á þessar æfingar sem fara munu fram í Kórnum.

Landslið

8. október 2013

U21 karla - Aron Sigurðarson inn í hópinn

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið Aron Sigurðarson úr Fjölni í hópinn sem mætir Frökkum í undankeppni EM.  Aron kemur í stað Arnórs Ingva Traustasonar sem varð að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla.

Landslið

8. október 2013

U15 karla - Hópurinn valinn sem leikur í Sviss

Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið hópinn sem leikur í Sviss í undankeppni fyrir Ólympíuleika ungmenna.  Fjórar þjóðir leika um eitt laust sæti á þessum Ólympíuleikum sem fara fram í Nanjing á næsta ári.

Landslið

7. október 2013

Undirbúningshópur valinn hjá A kvenna

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið undirbúningshóp sem æfa mun saman á næstu dögum. Þetta er liður í undirbúningi fyrir landsleik Serbíu og Íslands sem fram fer ytra, 31. október næstkomandi.

Landslið

7. október 2013

KSÍ II þjálfaranámskeið í október

Knattspyrnusamband Íslands mun halda þrjú KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu í október, eitt helgina 18.-20. október og tvö helgina 25.-27. október. Stefnt er að því að hafa að hámarki 35 þátttakendur á hverju námskeiði. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig tímanlega.

Fræðsla

7. október 2013

Gunnar Jarl og Birkir að störfum í Rússlandi

Gunnar Jarl Jónsson og Birkir Sigurðarson verða að störfum í Rússlandi næstu daga en þar fer fram undankeppni EM U19 karla. Leikið verður í Kazan en auk heimamanna leika þarna Úkraína, Malta og Eistland. Leikið verður dagana 10. - 15. október.

Dómaramál

5. október 2013

U17 kvenna - Tap í síðasta leiknum í milliriðlinum

Stelpurnar í U17 luku keppni í milliriðlum EM í dag þegar þær léku gegn Spánverjum en riðillinn var leikinn í Rúmeníu. Lokatölur urðu 3 - 1 fyrir Spánverja sem tryggðu sér þar með sæti í úrslitakeppni EM.

Landslið

4. október 2013

A karla - Norski hópurinn sem mætir Íslendingum

Norðmenn hafa tilkynnt landsliðshópinn sem mætir Slóveníu og Íslendingum í undankeppni HM á næstu dögum.  Þetta er fyrsti landsliðshópurinn sem nýr landsliðsþjálfari, Per Mathias Hogmo, velur en Norðmenn mæta Slóvenum á útivelli 11. október og svo Íslendingum í Osló, 15. október.

Landslið

4. október 2013

Byrjunarlið Íslands gegn Kýpur

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kýpur í undankeppni HM á Laugardalsvelli kl. 18:45. Sama byrjunarlið byrjar leikinn og í síðasta leik gegn Albaníu. Uppselt er á leikinn en minnt er á að leikurinn er í beinni útsendingu hjá RÚV.

Landslið

4. október 2013

U17 kvenna - Byrjunarliðið gegn Spánverjum

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið byrjunarliðið sem mætir Spánverjum í lokaleik liðsins í milliriðli EM sem leikinn er í Rúmeníu.  Leikurinn hefst kl. 08:00 að íslenskum tíma á morgun, laugardag, en íslensku stelpurnar eru með þrjú stig eftir 2 leiki.

Landslið

4. október 2013

A karla - Hópurinn sem mætir Kýpur og Noregi

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt landsliðshópinn fyrir leikina mikilvægur gegn Kýpur og Noregi.  Leikið verður gegn Kýpur hér á Laugardalsvelli, föstudaginn 11. október, en leikurinn við Noreg verður á Ulleval í Osló, þriðjudaginn 15. október.

Landslið

4. október 2013

U21 karla - Hópurinn sem mætir Frökkum á Laugardalsvelli

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Frökkum í undankeppni EM en leikið verður á Laugardalsvelli, mánudaginn 14. október kl. 18:30.  Þarna er um sannkallaðan stórleik að ræða þar sem báðar þessar þjóðir eru með fullt hús stiga í riðlinum. 

Landslið