27. september 2013
Á fundi Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ 24. september 2013 var samþykkt að sekta KV um 25.000 krónur vegna framkomu stuðningsmanna félagsins í leik KV og Gróttu í 2.. deild karla 21. september síðastliðinn. Stuðningsmenn KV kveiktu á blysum eftir að leik lauk.
27. september 2013
Diljá Rut Gísladóttir, 10 ára knattspyrnusnillingur, var aldeilis heppin í gær en hún tók þátt í "skot í slánna" leikinn sem er í hálfleik á landsleikjum. Diljá gerði sér lítið fyrir og skaut í slánna og í markið og fyrir það fékk hún gjafabréf fyrir 2 til Evrópu með Icelandair.
27. september 2013
Alþjóðlegi hjartadagurinn er um næstu helgi, en þessi dagur var fyrst haldinn hátíðlegur árið 2000, og er slagorð hans „Fetaðu veginn að heilbrigðu harta“. Markmiðið var og er enn að upplýsa fólk um þá staðreynd að hjartasjúkdómar og heilablóðföll eru helsta dánarorsök alls mannkyns og draga til dauða allt að 17,3 milljónir manns ár hvert í heiminum.
26. september 2013
Íslenska kvennalandsliðið hefur undankeppni HM í kvöld þegar það mætir Sviss á Laugardalsvelli kl. 18:30. Þetta er fyrsti leikurinn undir stjórn Freys Alexanderssonar, nýs landsliðsþjálfara, og jafnframt kveðjuleikur Katrínar Jónsdóttur. Miðasala á leikinn er í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is og kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Miðasala verður á Laugardalsvelli frá kl. 16:00 í dag.
26. september 2013
Íslenska kvennalandsliðið hóf leik í kvöld í undankeppni HM með því að etja kappi við Sviss á Laugardalsvelli. Lokatölur urðu 0 - 2 fyrir gestina sem leiddu með einu marki í leikhléi. Næsti leikur Íslands er gegn Serbíu á útivelli, 31. október næstkomandi.
26. september 2013
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Sviss á Laugardalsvelli kl. 18:30 í undankeppni HM. Katrín Jónsdóttir, fyrirliði, leikur í kvöld sinn 133. og síðasta landsleik. Frítt er inn fyrir 16 ára og yngri en 1.000 krónur kostar fyrir fullorðna.
26. september 2013
Strákarnir í U17 unnu glæsilegan sigur á Rússum í undankeppni EM í dag en þetta var lokaleikur liðsins í riðlinum sem var leikinn í Rússlandi. Íslendingar höfðu sigur, 2 - 1, í hörkuleik og tryggðu sér með efsta sætið í riðlinum og sæti í milliriðlum.
26. september 2013
Frakkar lögðu Íslendinga í lokaleik undankeppni EM en riðillinn var leikinn í Búlgaríu. Lokatölur urðu 3 - 0 fyrir Frakka og komu öll mörkin í fyrri hálfleik. Fyrir leikinn höfðu báðar þjóðirnar tryggt sér sæti í milliriðlum.
26. september 2013
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Frökkum í undankeppni EM en leikið er í Búlgaríu. Þetta er lokaleikur Íslands í riðlinum en gestgjafarnir voru lagðir í fyrsta leiknum, 5 – 0 og sama markatala var upp á teningnum þegar Slóvakar voru lagðir.
26. september 2013
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Rússum í undankeppni EM í dag. Leikið er í Rússlandi og hefst leikurinn í dag kl. 12:30 að íslenskum tíma. Þetta er lokaleikur liðsins í undankeppninni en jafntefli varð gegn Aserum í fyrsta leik, 3 – 3 og sigur vannst á Slóvakíu, 4 – 2.
25. september 2013
Þóroddur Hjaltalín mun dæma leik Dortmund og Marseille í Meistaradeild ungmenna sem UEFA heldur samhliða Meistaradeild UEFA. Þar mætast ungmennalið sömu félaga og mætast í Meistaradeildinni sjálfri. Leikið verður í Dortmund, þriðjudaginn 1. október.
24. september 2013
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp til æfinga um helgina en æfingarnar verða þrjá talsins.  Æfingarnar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni EM en riðill Íslands verður leikinn í Belgíu í október.
24. september 2013
Um komandi helgi verða úrtaksæfingar um komandi helgi hjá U15 karla og hefur Freyr Sverrisson valið 26 leikmenn á þessar æfingar.  Þessar æfingar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni Ólympíuleika ungmenna.
24. september 2013
KSÍ hefur ákveðið að bjóða öryrkjum og ellilífeyrisþegum ókeypis aðgang að leiknum  Ísland – Sviss í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli fimmtudaginn 26. september næstkomandi kl. 18:30.
24. september 2013
Handhafar A passa frá KSÍ geta sýnt skírteini sitt við innganginn á leik Íslands og Sviss í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 26. september kl. 18:30. Ekki þarf því að sækja miða á skrifstofu KSÍ.
24. september 2013
Knattspyrnudeild Fylkis leitar að þjálfara fyrir 6. og  5.flokk.   Viðkomandi þarf að vera með reynslu af þjálfun og viðeigandi menntun. Einnig þarf viðkomandi vera laus kl. 15:00 á daginn. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við íþróttafulltrúa Fylkis Hörð Guðjónsson með því að senda tölvupóst á netfangið hordur@fylkir.com eða með því að hringja í síma 571-5604.
24. september 2013
KSÍ vill vekja athygli aðildarfélaga á því að frítt er inn fyrir 16 ára og yngri á landsleik Íslands og Sviss í undankeppni HM kvenna sem fram fer fimmtudaginn 26. september kl. 18:30 á Laugardalsvelli.  Félögin eru hvött til þess að koma þessu á framfæri við iðkendur sína.
23. september 2013
Það er ljóst að svissneska liðið, sem mætir Íslendingum í undankeppni HM á Laugardalsvelli á fimmtudaginn, er virkilega sterkt.  Liðið lék gegn Serbum á heimavelli um helgina og unnu stórsigur, 9 - 0.