23. september 2013
Rúna Kristín Stefánsdóttir er að störfum þessa dagana í Ungverjalandi þar sem hún er aðstoðardómari í undankeppni U19 kvenna. Rúna starfar með dómurum frá Írland og Póllandi en í riðlinum leika, auk heimastúlkna, Svartfjallaland, Belgía og Tyrkland.
23. september 2013
Strákarnir í U17 unnu frábæran sigur á jafnöldum sínum frá Slóvakíu í dag í undankeppni EM en leikið var í Volograd í Rússlandi.  Lokatölur urðu 2 - 4 fyrir Ísland eftir að Slóvakar höfðu leitt í leikhléi, 2 - 1.  Lokaleikur Íslands í riðlinum fer svo fram fimmtudaginn 26. september þegar leikið verður gegn gestgjöfum Rússa.
23. september 2013
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Slóvakíu í undankeppni EM en leikið er í Búlgaríu.  Þetta er annar leikur Íslands í riðlinum en gestgjafarnir voru lagðir í fyrsta leiknum, 5 - 0.  Leikurinn hefst kl. 13:30 að íslenskum tíma og er minnt á textalýsingu á heimasíðu UEFA.
23. september 2013
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Slóvökum í undankeppni EM í dag. Leikið er í Rússlandi og hefst leikurinn í dag kl. 09:00 að íslenskum tíma eða kl. 13:00 að staðartíma.
23. september 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn sem fer til Rúmeníu og leikur í milliriðlum EM, dagana 30. september til 5. október.  Mótherjar Íslendingar eru, auk heimastúlkna, Írland og Spánn.
23. september 2013
Stelpurnar í U19 unnu annan stórsigur í dag í undankeppni EM en leikið er í Búlgaríu. Mótherjarnir í dag voru frá Slóvakíu og unnu okkar stelpur öruggan sigur, 5 - 0. Með þessum sigri er íslenska liðið öruggt með sæti í milliriðlum.
23. september 2013
Þýski dómarinn Bibiana Steinhaus verður við stjórnvölinn á leik Íslands og Sviss í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 26. september kl. 18:30. Bibiana er einn þekktasti dómari Þýskalands og dæmdi m.a. úrslitaleik HM kvenna 2011.
22. september 2013
Í liðinni viku heimsóttu nemendur úr FÁ höfuðstöðvar KSÍ og hlýddu á fyrirlestur um samskipti og þjónustu við fjölmiðla í tengslum við landsleiki, með áherslu á leiki á Laugardalsvelli. Um var að ræða hóp 15 nemenda í fjölmiðlafræði
21. september 2013
Strákarnir í U19 unnu góðan sigur á Svíum í lokaleik liðsins á Svíþjóðarmótinu. Lokatölur urðu 3 - 2 fyrir Ísland sem leiddu í leikhléi, 1 - 0. Íslenska liðið hafnaði í þriðja sæti á þessu móti en Norðmenn höfðu sigur.
21. september 2013
Stelpurnar byrjuðu undankeppni EM á besta mögulegan máta þegar þær lögðu Búlgari í fyrsta leik sínum í dag en leikið var við gestgjafana. Lokatölur urðu 5 - 0 fyrir okkar stelpur sem leiddu í leikhléi 2 - 0.
21. september 2013
Strákarnir í U17 hófu leik í dag í undankeppni EM en riðill þeirra er leikinn í Rússlandi. Mótherjar dagsins voru Aserar og eftir hörkuleik lauk leiknum með jafntefli, 3 - 3. Næsti leikur íslenska liðsins er gegn Slóvakíu og fer fram mánudaginn 23. september og hefst kl. 09:00 að íslenskum tíma.
21. september 2013
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Svíum í lokaleik liðsins í Svíþjóðarmótinu.  Leikurinn hefst kl. 13:30 að íslenskum tíma en Ísland gerði jafntefli í fyrsta leik sínum gegn Slóvakíu en beið svo lægri hlut gegn Norðmönnum.
21. september 2013
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Aserum í undankeppni EM í dag.  Leikið er í Rússlandi og hefst leikurinn í dag kl. 09:00 að íslenskum tíma eða kl. 13:00 að staðartíma:
20. september 2013
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar auglýsir eftir þjálfara fyrir meistaraflokk karla. Lárus Orri Sigurðsson hefur ákveðið að hætta með KF eftir tímabilið en hann hefur þjálfað liðið undanfarin þrjú ár
19. september 2013
Strákarnir í U19 töpuðu gegn Norðmönnum á Svíþjóðarmótinu í dag en þetta var annar leikur liðsins á mótinu. Norðmenn höfðu betur, 1 - 2, eftir að Íslendingar höfðu leitt í leikhléi, 1 - 0.  Lokaleikur Íslands er svo gegn heimamönnum í Svíþjóð á laugardaginn en Svíar leika gegn Slóvakíu í kvöld
19. september 2013
Þann 21. september næstkomandi verður alþjóðlegur dagur friðar haldinn í 15. sinn – Peace One Day . Markmið verkefnisins er að hvetja stríðandi fylkingar um heim allan til að leggja niður vopn í einn dag, þennan mánaðardag ár hvert.
19. september 2013
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Noregi í dag á Svíþjóðarmótinu. Þetta er annar leikur liðsins en jafntefli varð í fyrsta leiknum gegn Slóvakíu, 1 - 1. Á sama tíma lögðu Norðmenn gestgjafa Svía, 3 - 1.
18. september 2013
Miðasala er hafin á leik Íslands og Sviss í undankeppni HM kvenna 2015 en leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 26. september kl. 18:30. Þetta er fyrsti leikur Íslands í þessari undankeppni og einnig fyrst leikurinn undir stjórn nýs landsliðsþjálfara, Freys Alexanderssonar.