Verslun
Leit
SÍA

18. september 2013

Ísland - Kýpur : Miðar fyrir handhafa A-skírteina

Handhafar A-skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Kýpur  í undankeppni HM miðvikudaginn 18. september kl. 09:00 til kl. 16:00 eða eins og miðarnir endast.  Gríðarleg eftirspurn er eftir miðum á þennan leik og því er ekki hægt að verða við óskum um að kaupa aukamiða í þetta skiptið. 

Landslið

17. september 2013

U19 karla - Jafntefli gegn Slóvakíu í fyrsta leik á Svíþjóðarmótinu

Strákarnir í U19 gerðu jafntefli í fyrsta leik sínum á Svíþjóðarmótinu en um er að ræða æfingamót fjögurra þjóða. Leikið var gegn Slóvakíu í dag og lauk leiknum með jafntefli, 1 - 1.  Næsti leikur liðsins á mótinu er gegn Noregi og fer hann fram á fimmtudaginn.

Landslið

17. september 2013

Futsal 2014

Nú í lok ágúst tók Víkingur Ólafsvík þátt í Evrópukeppni félagsliða í Futsal (innanhúsfótbolta) en þeir tryggðu sér þar þátttökurétt sem ríkjandi Íslandsmeistarar.  Stórhuga, eins og Ólafsvíkingum sæmir, þá sóttu þeir um að halda riðil á heimavelli sem þeir og fengu. 

Pistlar

17. september 2013

U19 karla - Byrjunarliðið gegn Slóvakíu

Strákarnir í U19 hefja í dag leik á Svíþjóðarmótinu en fyrsti leikur liðsins hefst kl. 14:30 að íslenskum tíma og er gegn Slóvakíu. Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið.

Landslið

17. september 2013

A kvenna - Hópurinn sem mætir Sviss

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Sviss í undankeppni HM 2015. Leikið verður á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 26. september kl. 18:30. Þetta er fyrsti leikur Íslands í þessari undankeppni sem og fyrsti leikurinn undir stjórn Freys sem landsliðsþjálfara.

Landslið

16. september 2013

U17 kvenna - Æfingar um komandi helgi

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til æfinga um komandi helgi en æfingarnar fara fram í Kórnum í Kópavogi. Þessar æfingar eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir milliriðla EM sem fram fer í Rúmeníu um næstu mánaðarmót.

Landslið

16. september 2013

Uppselt á leik Íslands og Kýpur

Uppselt er á leik Íslands og Kýpur í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli, föstudaginn 11. október kl. 18:45. Gríðarlegur áhugi er fyrir leiknum og seldust síðustu miðarnir nú um helgina en opnað var fyrir miðasölu síðastliðinn fimmtudag.

Landslið

16. september 2013

Markmannsskóli stúlkna á Akranesi 2013

Markmannsskóli stúlkna fer fram á Akranesi, dagana 20. - 22. september og má sjá upplýsingar hér að neðan um þáttakendur og dagskrá. Gist verður í Þorpinu/Hvíta Húsið, Þjóðbraut 13 Akranesi.

Fræðsla

16. september 2013

Hvöt óskar eftir þjálfurum yngri flokka

Knattspyrnudeild Hvatar á Blönduósi óska eftir því að ráða þjálfara fyrir alla yngri flokka félagsins. Viðkomandi þarf að vera með reynslu í þjálfun barna og unglinga í knattspyrnu auk reynslu og þekkingu af starfi íþróttafélaga.

Fræðsla

16. september 2013

Kristinn dæmir í Róm

Kristinn Jakobsson verður í eldlínunni, fimmtudaginn 19. september næstkomandi, þegar hann dæmir leik Lazio og Legia Varsjá í Evrópudeild UEFA. Aðstoðardómarar Kristins í leiknum verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson og fjórði dómari verður Sigurður Óli Þorleifsson.

Dómaramál

16. september 2013

U17 karla - Hópurinn sem fer til Rússlands

Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem heldur til Rússlands og leikur þar í undankeppni EM, dagana 21. - 26. september. Auka heimamanna leika í riðlinum Slóvakía og Aserbaídsjan og er leikið gegn síðastnefnda liðinu, laugardaginn 21. september.

Landslið

13. september 2013

Umsóknir um þjálfarastyrki ÍSÍ

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ.  Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi. 

Fræðsla

13. september 2013

Miðasala á Noregur - Ísland  - Frestur framlengdur til 11. október

Ísland mætir Noregi í undankeppni HM 2014, þriðjudaginn 15. október næstkomandi.  Leikið verður á Ullevaal vellinum í Noregi og hefst leikurinn kl. 20:00 að staðartíma eða kl. 18:00 íslenskum tíma.  Ákveðið hefur verið að framlengja frest til miðakaupa á þennan leik og er hann til föstudagsins 11. október.

Landslið

12. september 2013

Knattspyrnudeild KV sektuð vegna ummæla leikmanns

Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir erindi frá framkvæmdastjóra KSÍ vegna ummæla Jóns Kára Eldon leikmanns KV, sem hann  viðhafði í kjölfar leiks Njarðvíkur og KV í 2. deild karla, þriðjudaginn 13. ágúst 2013, með skrifum á Twitter síðu sína. 

Agamál

12. september 2013

Styrkleikalisti FIFA - Karlalandsliðið í 54. sæti

Karlalandsliðið fer upp um 16 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í dag. Íslenska liðið er nú í 54. sæti listans en Spánverjar tróna á toppi listans sem fyrr en Argentína fer upp í annað sætið á kostnað Þjóðverja.

Landslið

12. september 2013

Miðasala hafin á Ísland - Kýpur

Framundan er æðisgengin barátta um annað sæti í riðli Íslands í undankeppni HM, sæti sem getur komið Íslandi í umspil fyrir HM í Brasilíu 2014.  Næstu mótherjar Íslands eru Kýpur en þeir koma á Laugardalsvöll, föstudaginn 11. október kl. 18:45.  Þetta er síðasti heimaleikur Íslands í riðlakeppninni en liðið er sem stendur í öðru sæti riðilsins.  Miðasala á leikinn er nú hafin í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is

Landslið

11. september 2013

U15 karla - Úrtaksæfingar um helgina í Kórnum

Úrtakshópur hefur verið valinn yfir æfingar hjá U15 karla og fara æfingarnar fram um komandi helgi í Kórnum. Þessar æfingar eru liður í undirbúningi fyrir undankeppni Ólympíuleika ungmenna en þar munu fjórar þjóðir, Ísland, Finnland, Armenía og Moldóva, keppa um eitt sæti.

Landslið

11. september 2013

Ísland - Kýpur - Miðasala hefst á morgun

Mikill áhugi er fyrir leik Íslands og Kýpur í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, föstudaginn 11. október kl. 18:45. Þetta er síðasti heimaleikur Íslands í riðlakeppninni og hefst miðasala á leikinn á morgun, fimmtudaginn 12. september í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.

Landslið