10. september 2013
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Vatnaliljanna gegn Ými vegna leik félaganna í 4. deild karla C riðli sem fram fór 24. ágúst síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða.
10. september 2013
Strákarnir í U21 lögðu Kasakstan í dag þegar þjóðirnar mættust í undankeppni EM á Kópavogsvelli. Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Ísland eftir að markalaust hafði verið í leikhléi. Íslenska liðið er í efsta sæti riðilsins með fullt hús stiga eftir fjóra leiki.
10. september 2013
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM. Riðill Íslands verður leikinn í Búlgaríu og fer fram dagana 21. - 26. september en mótherjar Íslendinga eru, auk heimastúlkna, Slóvakía og Frakkland.
10. september 2013
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp sem leikur á Svíþjóðarmótinu sem fram fer dagana 17. - 21. september. Mótherjar Íslendinga á þessu móti verða, auk heimamanna, Noregur og Slóvakía.
10. september 2013
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kasakstan í undankeppni EM. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli og hefst kl. 16:00. Teflt er fram sama byrjunarliði og í sigurleiknum gegn Hvít Rússum.
10. september 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til æfinga um komandi helgi. Þessar æfingar eru hluti af undirbúningi fyrir keppni milliriðlum EM en íslenska liðið mun leika í Rúmeníu um mánaðarmótin.
10. september 2013
Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. Við minnum svo vallargesti á að mæta tímanlega á leik Íslands og Albaníu sem hefst kl. 19:00.
10. september 2013
Framundan eru tveir gríðarlega mikilvægir leikir hjá landsliðum Íslands en bæði A landslið karla og U21 karla verða í eldlínunni. Strákarnir í U21 leika gegn Kasakstan á Kópavogsvelli kl. 16:00 í undankeppni EM. Á Laugardalsvelli verður svo karlalandsliðið í flóðljósunum þegar þeir taka á mót Albaníu í undankeppni HM kl. 19:00. Uppselt er á þann leik.
10. september 2013
Sigursöngvar ómuðu í Laugardalnum í kvöld þegar 9.768 áhorfendur fögnuðu dýrmætum sigri Íslands á Albaníu í kvöld. Lokatölur urðu 2 - 1 fyrir okkar menn en staðan var jöfn í leikhléi, 1 - 1. Íslenska liðið er nú í öðru sæti riðilsins með 13 stig en Sviss, sem lagði Noreg í kvöld, er í efsta sætinu með 18 stig.
9. september 2013
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur bætt Hauki Páli Sigurðssyni inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Albaníu. Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudaginn 10. september kl. 19:00, á Laugardalsvelli og er í undankeppni HM.
9. september 2013
Strákarnir í U21 verða líka í eldlínunni á morgun, þriðjudaginn 10. september, þegar þeir mæta Kasakstan í undankeppni EM á Kópavogsvelli kl. 16:00. Íslenska liðið hefur byrjað riðilinn frábærlega unnið alla þrjá leiki sína til þessa.
9. september 2013
Miðarnir fara hratt út núna á leik Íslands og Albaníu, í undankeppni HM, sem fram fer þriðjudaginn 10. september. Rúmlega 8.000 miðar eru þegar seldir og, ef fer sem horfir, verður uppselt á leikinn.
9. september 2013
Enski dómarinn Andy Marriner mun dæma leik Íslands og Albaníu í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 10. september kl. 19:00. Honum til aðstoðar verða þeir Peter Kirkup og Darren England. Varadómari verður svo Lee Probert.
6. september 2013
KÞÍ býður félagsmönnum sínum í samvinnu við norska Knattspyrnuþjálfarafélagið í námsferð til AC Milan á Ítalíu. Ferðin verður frá 1. - 4. nóvember og eru einungis örfá sæti í boði fyrir félagsmenn KÞÍ.
6. september 2013
Handhafar A-skírteina frá KSÍ fá afhenta aðgöngumiða á leik Íslands og Albaníu í undankeppni HM mánudaginn 9. september kl. 10:00 til kl. 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis
6. september 2013
Íslendingar gerðu magnað jafntefli við Sviss í undankeppni HM í kvöld en leikið var í Bern.  Lokatölur hreint ötrúlegar, 4 - 4 og leiddu heimamenn í leikhléi, 3 - 1.  Heimamenn komust í 4 - 1 á 55. mínútu en síðustu þrjú mörk voru Íslendinga. Jóhann Berg Guðmundsson skoraði þrjú mörk í leiknum hvert öðru glæsilegra.
6. september 2013
Byrjunarlið Íslands í leiknum á móti Sviss birtist sjálfkrafa á viðkomandi mótasíðu á vef KSÍ einni klukkustund áður en leikurinn hefst. Leikskýrslan er skráð í mótakerfi KSÍ, sem stýrir birtingunni eins og í öðrum leikjum.
6. september 2013
Íslenskir dómarar verða við störf í Noregi og Svíþjóð á næstu dögum en þetta er hluti af norrænum dómaraskiptum knattspyrnusambanda Norðurlandanna. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæma leik Strömmen og Ullensaker/Kisa í norsku 1. deildinni og Valdimar Pálsson dæmir leik GAIS og Värnamo í sænsku "Superettan" deildinni.