4. ágúst 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Ungverjum í dag í undankeppni EM. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma en leikið er í Moldavíu. Báðar þessar þjóðir hafa tryggt sér sæti í milliriðlum en efsta sæti riðilsins er í húfi
2. ágúst 2013
Knattspyrnudeild Gróttu auglýsir eftir knattspyrnuþjálfurum fyrir yngri flokka deildarinnar. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn í að leggja sitt af mörkum til að efla yngri flokka félagsins.
2. ágúst 2013
Á nýjum styrleikalista FIFA kvenna, sem gefinn var út í morgun, er Ísland í 15. sæti sem er sama sæti og á síðasta lista. Bandaríkin tróna sem fyrr á toppnum og nýkrýndir Evrópumeistarar, Þýskaland, eru í öðru sæti.
1. ágúst 2013
Stelpurnar í U17 unnu í dag öruggan sigur á Moldavíu í öðrum leik liðsins í undankeppni EM en riðillinn er einmitt leikinn í Moldavíu. Lokatölur urðu 6 – 0 eftir að staðan í leikhléi var 2 - 0.  Með sigrinum er Ísland öruggt áfram í milliriðla en tvær efstu þjóðirnar tryggja sér sæti þangað. Ísland vann Lettland í fyrsta leik sínum, 5 – 0, og er því með sex stig
1. ágúst 2013
Úrtökumót KSÍ 2013 fyrir stúlkur fæddar árið 1998 fer fram á Laugarvatni í ár. Félög leikmanna eru beðin um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar:
1. ágúst 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Moldavíu í dag kl. 15:00 að íslenskum tíma. Þetta er annar leikur liðsins í undankeppni EM en riðillinn er einmitt leikinn í Moldavíu. Fyrsta leik Íslands í riðlinum lauk með 5 - 0 sigri á Lettlandi og á sama tíma unnu Ungverjar heimastúlkur með sömu markatölu.
31. júlí 2013
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Steua Búkarest frá Rúmeniú og Dinamo TIblisi frá Georgíu í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar UEFA. Leikið verður í Búkarest 6. ágúst næstkomandi og Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Birkir Sigurðarson. Varadómari verður Gunnar Jarl Jónsson.
30. júlí 2013
Stelpurnar í U17 hófu í dag leik í undankeppni EM en riðill þeirra er leikinn í Moldavíu.  Mótherjar dagsins voru Lettar og höfðu okkar stúlkur öruggan sigur, 5 - 0.  Næstu mótherjar Íslands eru heimastúlkur í Moldavíu en sá leikur fer fram á fimmtudaginn.
30. júlí 2013
Aron hefur síðasta árið ekki getað svarað kalli A-landsliðsþjálfara KSÍ vegna meiðsla en á sama tíma bárust fregnir um að landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefði áhuga á leikmanninum. Tengsl Arons við knattspyrnu í Bandaríkjunum eru engin.
30. júlí 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Lettum í dag í undankeppni EM.  Riðill Íslands er leikinn í Moldavíu og í hinum leik riðilsins leika heimastúlkur gegn Ungverjum.  Báðir leikir dagsins hefjast kl. 15:00 að íslenskum tíma og má fylgjast með textalýsingu frá leikjunum á heimasíðu UEFA
30. júlí 2013
Þó svo að venjulega sé ekki mikið um að vera í knattspyrnulífinu um verslunarmannahelgar hér á landi þá er svo sannarlega mikið um að vera í aðdraganda helgarinnar. Í dag og á morgun eru hvorki fleiri né færri en 109 starfsmenn að störfum í dómaramálum á vegum KSÍ.
29. júlí 2013
Þjóðverjar tryggðu sér í gær Evrópumeistaratitilinn þegar þær þýsku lögðu Noreg að velli í úrslitaleik sem fram fór í Stokkhólmi. Lokatölur urðu 1 - 0 fyrir Þjóðverja en naum var það því norska liðið brenndi af tveimur vítaspyrnum í leiknum.
26. júlí 2013
Það er orðið ljóst að það verða Þýskaland og Noregur sem leika til úrslita á EM kvenna sem fram fer í Svíþjóð. Báðar þessar þjóðir léku með Íslandi í riðli en Þjóðverjar lögðu gestgjafana í undanúrslitum og Norðmenn lögðu Dani eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.
24. júlí 2013
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hópinn sem leikur á Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi dagana 5. - 10. ágúst. Ísland leikur sinn fyrsta leik gegn Noregi 2, mánudaginn 5. ágúst, en aðrar þjóðir í riðlinum eru Danmörk og Svíþjóð. Leikið verður um sæti 10. ágúst.
23. júlí 2013
Þrjár Norðurlandaþjóðir eru komnar í undanúrslit í úrslitakeppni EM kvenna sem fram fer í Svíþjóð þessa dagana. Heimastúlkur mæta Þjóðverjum í fyrri undanúrslitaleiknum sem fram fer í Gautaborg, miðvikudaginn 24. júlí. Það verða svo Noregur og Danmörk sem leika í Norköpping, fimmtudaginn 25. júlí.
22. júlí 2013
A landslið kvenna hefur nú lokið keppni í úrslitakeppni EM í Svíþjóð en liðið náði þar þeim merka áfanga að leika í úrslitum 8 bestu liða Evrópu. Þjálfarateymi liðsins, starfsmenn og leikmennirnir settu sér það eina og raunhæfa markmið að gera betur en áður, stíga skrefinu lengra en áður hefur verið stigið og það tókst með miklum ágætum.
22. júlí 2013
Kristinn Jakobsson dæmir, fimmtudaginn 25. júlí, leik Gefle frá Svíþjóð og Anorthosis Famagusta frá Kýpur í Evrópudeild UEFA. Leikið verður í Sundsvall í Svíþjóð en Kristni til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Áskell Þór Gíslason. Varadómari verður Þorvaldur Árnason.
21. júlí 2013
Katrín Jónsdóttir hefur átt ótrúlegan feril með A landslið kvenna.  Hún lauk honum með því að leiða liðið út á völlinn í Halmstad, í 8-liða úrslitum EM.  Það er ótrúlegt til þess að hugsa að fyrsti leikur hennar af þeim 132 sem hún lék var árið 1994, eða áður en yngstu leikmennirnir í landsliðshópnum í dag voru fæddir.