Verslun
Leit
SÍA

21. júlí 2013

Svíar og Þjóðverjar áfram

Eins og kunnugt er tryggðu Svíar sér sæti í undanúrslitum EM með 4-0 sigri á Íslendingum í Halmstad á sunnudag.  Þjóðverjar gerðu slíkt hið sama með eins marks sigri á Ítölum í Växjö og mætast Svíar og Þjóðverjar í undanúrslitum.  Sigurmarkið gerði Simone Laudehr um miðjan fyrri hálfleik.

Landslið

21. júlí 2013

EM ævintýrið á enda

EM ævintýri A landsliðs kvenna er á enda eftir fjögurra marka ósigur gegn gestgjöfum Svía í Halmstad í dag, sunnudag, þar sem liðin mættust í 8-liða úrslitum.  Þrjú sænsk mörk á fyrstu 20 mínútunum gerðu í raun út um leikinn og var sigur Svía verðskuldaður.  Engu að síður getur íslenska liðið borið höfuðið hátt eftir þessa keppni, því það hefur skrifað nýjan kafla í íslenskri knattspyrnusögu.

Landslið

20. júlí 2013

Stóri dagurinn

Sunnudagurinn 21. júlí verður stór dagur í íslenskri knattspyrnusögu.  Þá leikur A landslið kvenna við Svía í 8-liða úrslitum EM 2013.  Svíar þykja mun sigurstranglegri í leiknum og af umfjöllun sænskra fjölmiðla að dæma tekur því varla að spila leikinn. 

Pistlar
Landslið

19. júlí 2013

U17 kvenna - Hópurinn sem leikur í Moldavíu

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM. Riðillinn verður leikinn í Moldavíu dagana 30. júlí til 4. ágúst. Mótherjar Íslendinga eru, auk heimastúlkna, Lettar og Ungverjar.

Landslið

19. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Miðar á Svíþjóð - Ísland

Töluvert hefur verið spurt um miða á leik Svíþjóðar og Íslands í 8-liða úrslitum úrslitakeppni EM kvenna sem fram fer í Halmstad á sunnudaginn. Panta þarf miða með því að senda tölvupóst á Ragnheiði Elíasdóttur, ragnheidur@ksi.is.

Landslið

18. júlí 2013

Svíar mótherjar Íslands í 8-liða úrslitum EM 2013

Riðlakeppni EM kvennalandsliða lauk nú í kvöld (fimmtudagskvöld) og fyrst þá varð ljóst hverjir yrðu mótherjar Íslands í 8-liða úrslitum.  Draga þurfti um hvort Danmörk eða Rússland myndi hreppa sæti í 8-liða úrslitum, og sá dráttur hafði áhrif á það hverjir yrðu mótherjar Íslendinga.  Svo fór að mótherjarnir verða gestgjafar Svía, sem hafa leikið afar vel það sem af er móti og unnu sannfærandi sigra á Finnum og Ítölum í A-riðli. 

Landslið

17. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Ísland mætir Hollandi í úrslitaleik um sæti í 8-liða úrslitum

Íslenska kvennalandsliðið mætir því hollenska í dag í lokaumferðinni í riðlakeppni úrslitakeppni EM. Mikilvægi leiksins er gríðarlegt, sigur kemur íslenska liðinu áfram í 8-liða úrslita en jafntefli eða tap þýðir að íslenska liðið er úr leik. Leikið verður í Växjö og hefst leikurinn kl. 16:00 að íslenskum tíma í beinni útsendingu hjá RÚV.

Landslið

17. júlí 2013

Úrslitakeppni EM: 8 liða úrslit - Takk fyrir!

Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum úrslitakeppni EM.  Hollendingar voru lagðir að velli, 1 - 0 og áframhaldandi þátttökuréttur í keppninni tryggður. Það voru óvænt úrslit í hinum leik dagsins í riðlinum en Noregur lagði þá Þýskaland með einu marki gegn engu. Íslendingar mæta annað hvort

Landslið

17. júlí 2013

Gestgjafarnir komnir áfram

Keppni í A-riðli í úrslitakeppni EM kvennalandsliða lauk á þriðjudagskvöld og er því ljóst að a.m.k. Svíþjóð og Ítalía, sem höfnuðu í efstu tveimur sætunum, eru komin í 8-liða úrslit.  Ekki er þó öll nótt úti Fyrir Dani, sem eiga enn möguleika, en þurfa þó að treysta á hagstæð úrslit í öðrum riðlum og jafnvel á drátt UEFA.

Landslið

17. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Byrjunarlið Íslands gegn Hollandi

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Hollandi í dag í lokaumferð riðlakeppni úrslitakeppni EM kvenna. Það má segja að þetta sé hreinn úrslitaleikur um það hvort liðið komist áfram í 8-liða úrslit en með sigri tryggir íslenska liðið sér áframhaldandi keppnisrétt í Svíþjóð.

Landslið

16. júlí 2013

Stuðningsmenn á opinni æfingu í Växjö

Á mánudagsmorguninn var stuðningsmönnum íslenska kvennalandsliðsins boðið á opna æfingu á æfingasvæði liðsins í Växjö.  Fjölmargir nýttu tækifærið og mættu, spjölluðu við leikmenn og þjálfara, fengu eiginhandaráritanir og myndir af sér með íslensku stjörnunum, og fengu jafnframt að leika sér með bolta á æfingasvæðinu. 

Landslið

16. júlí 2013

Aðeins eitt lið öruggt áfram

Þrátt fyrir að 2/3 hlutar liðanna sem leika í úrslitakeppni EM kvennalandsliða komist upp úr riðlunum og í 8-liða úrslit er aðeins eitt lið með öruggt sæti þar eftir tvær umferðir.  Frakkar eru eina liðið sem hefur unnið tvo fyrstu leiki sína og eru þær frönsku því öruggar með sæti í 8-liða úrslitum.  Ísland verður að vinna sinn leik í þriðju umferð til að eiga möguleika.

Landslið

14. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Þær þýsku sterkari

Íslensku stelpurnar biðu lægri hlut gegn Þjóðverjum í kvöld í öðrum leik liðsins í úrslitakeppni EM en leikið var í Växjö í Svíþjóð. Lokatölur urðu 0 - 3 fyrir þær þýsku en þær leiddu í leikhléi, 0 - 1.  Framundan er lokaleikur Íslands í riðlakeppninni þegar leikið verður gegn Hollandi, miðvikudaginn 17. júlí.

Landslið

14. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Ísland mætir Þýskalandi í kvöld

Íslensku stelpurnar mæta Þjóðverjum í kvöld í öðrum leik sínum í úrslitakeppni EM.  Leikið er í Växjö og hefst leikurinn kl. 18:30 að íslenskum tíma.  Báðar þjóðirnar eru með eitt stig, eins og reyndar allar þjóðirnar í riðlinum. Leikur Íslands og Þýskalands verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu hjá RÚV og hefst útsending kl. 18:20. Leikur Noregs og Hollands verður einnig sýndur og hefst útsending þar kl. 15:50.

Landslið

13. júlí 2013

Fyrsta umferð EM gerð upp

Að loknum fyrstu tveimur leikdögunum á EM kvenna í Svíþjóð var engu líkara en liðin myndu öll vera komin með stig eftir fyrstu umferðina, en það breyttist þó á þriðja leikdegi þegar Frakkar og Spánverjar unnu sigur á sínum andstæðingum í C-riðli.

Landslið

12. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Stelpurnar komnar til Växjö

Íslenski hópurinn er nú kominn til Växjö frá Kalmar en þar verður leikið gegn Þjóðverjum og Hollendingum, sunnudaginn 14. júlí og miðvikudaginn 17. júlí.  Hópurinn þekkir ágætlega til á staðnum en þar var leikinn vináttulandsleikur gegn Svíum, 6. apríl síðastliðinn.

Landslið

11. júlí 2013

Úrslitakeppni EM - Eitt stig í hús

Bæði lið gengu nokkuð vonsvikin af velli þegar Ísland og Noregur gerðu jafntefli í dag í fyrsta leik B-riðils úrslitakeppni EM kvenna sem fram fer í Svíþjóð.  Lokatölur urðu 1 -1 eftir nokkuð kaflaskiptan leik þar sem Noregur leiddi í leikhléi en íslenska liðið jafnaði verðskuldað í síðari hálfleik.

Landslið

11. júlí 2013

Hinn enski Sebastian Stockbridge starfar á þremur leikjum

Enski dómarinn Sebastian Stockbridge mun á næstu dögum starfa á þremur leikjum í íslensku deildar keppninni.  Hann mun dæma leik Þróttar og KA á morgun, föstudaginn 12. júlí og sömuleiðis dæmir hann leik Fjölnis og Leiknis sem fer fram 16. júlí.  Báðir þessir leikir eru í 1. deild karla og einnig verður hann aðstoðardómari á leik Keflavíkur og Breiðabliks í Pepsi-deild karla, sunnudaginn 14. júlí

Dómaramál