11. júlí 2013
Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni 17. júlí næstkomandi þegar hann dæmir leik The New Saints frá Wales gegn Legía Varsjá frá Póllandi í Meistaradeild UEFA. Leikið verður á Racecourse Ground í Wrexham en Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Gylfi Már Sigurðsson. Varadómari verður Magnús Þórisson.
11. júlí 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Noregi í úrslitakeppni EM kl. 16:00 í dag en leikið er í Kalmar. Stillt er upp í 4-4-2 en leikurinn verður í beinni útsendingu á RÚV.
11. júlí 2013
Stóra stundin rennur upp k. 16:00 í dag þegar Ísland mætir Noregi í úrslitakeppni EM kvenna en keppnin fer fram í Svíþjóð. Leikið er í Kalmar en en hinar þjóðirnar í riðlinum, Holland og Þýskaland mætast einnig í dag.
10. júlí 2013
Það er flestum okkar enn í fersku minni þegar Írar komu í heimsókn á frosinn Laugardalsvöllinn seint að hausti 2008, þegar EM-sætið var tryggt í fyrsta sinn. Þjóðin hreifst með og kvennalandsliðið hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi og eiga leikmenn það svo sannarlega skilið.
9. júlí 2013
Áhuginn fyrir úrslitakeppni EM 2013 í Svíþjóð er mikill og mun meiri en nokkru sinni áður.  Þá virðist vera sama hvar stigið er niður fæti.  Umgjörðin hefur aldrei verið glæsilegri og leggja UEFA, sænska Knattspyrnusambandið og borgirnar sem leikið er í mikið í verkefnið. 
9. júlí 2013
A-landslið kvenna æfði í dag, þriðjudag, í fyrsta sinn eftir komuna til Svíþjóðar þar sem liðið tekur þátt í úrslitakeppni EM í annað sinn í röð.  Allir 23 leikmennirnir í hópnum voru með á æfingunni, mikil keyrsla og greinilegt að hópurinn er vel stemmdur.
9. júlí 2013
Knattspyrnusamband Evrópu hefur boðið Íslandi að senda lið U15 karla, drengir fæddir 1999, til leiks í undankeppni Ólympíuleika æskunnar. Þessi undankeppni fjögurra þjóða verður leikinn í Nyon í Sviss og er ein þjóð sem tryggir sér þátttökurétt á Ólympíuleikum æskunnar sem fram fara í Nanjing í Kína, 16. - 28. ágúst 2014.
9. júlí 2013
Úrslitakeppni EM kvenna hefst í Svíþjóð á morgun en það verða Ítalía og Finnland sem hefja leik en þessar þjóðir leika í A-riðli. Formlegur opnunarleikur mótsins er svo síðar um kvöldið en þá taka gestgjafarnir í Svíþjóð á móti Dönum
6. júlí 2013
Þjóðverjar sigruðu á Opna Norðurlandamótinu U17 kvenna sem fram fór hér á Íslandi dagana 1. - 6. júlí.  Þjóðverjar lögðu Dani örugglega í úrslitaleik, 3 - 0, á Laugardalsvelli í dag.  Finnar lentu í þriðja sæti en íslenska liðið lenti í því áttunda eftir tap gegn Englendingum.
5. júlí 2013
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar um helgina 12. - 13. júlí og fara æfingarnar fram á grasvellinum við Kórinn. Alls eru 30 leikmenn valdir fyrir þessar æfingar að þessu sinni.
5. júlí 2013
Um helgina fara fram æfingar hjá sérstökum undirbúningshópi leikmanna fyrir EM U17 kvenna 2015.  Úlfar Hinriksson, þjálfari liðsins hefur valið hóp 30 leikmanna frá 15 félögum á æfingarnar, sem fara fram í Kórnum í Kópavogi.
5. júlí 2013
Gunnar Jarl Jónsson mun, þriðjudaginn 9. júlí, dæma leik TPS Turku frá Finnlandi og AS Jeunesse Esch frá Lúxemborg í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA.  Þetta er seinni viðureign liðanna en Jeunesse Esch vann fyrri leikinn, fremur óvænt, 2 - 0.
4. júlí 2013
Í dag lauk riðlakeppni Opna Norðurlandamótsins hjá U17 kvenna en leikstaðir dagsins voru Fylkisvöllur og N1-völlurinn í Sandgerði.  Eftir leiki dagsins er ljóst að Þýskaland og Danmörk leika til úrslita.  Noregur og Finnland leika um 3. sætið.  Holland og Svíþjóð leika um 5. sætið og Ísland og England um 7. sætið.  Allir þessir leikir fara fram laugardaginn 6. júlí og hefjast kl. 11:00 að undanskildum úrslitaleiknum sem hefst kl. 13:30
4. júlí 2013
Ólafur Rafnsson var öflugur málsvari íþrótta á Íslandi, það var honum í blóð borið enda sannur keppnismaður. Hann var leiðtogi okkar og miðlaði málum þannig að sátt og samlyndi ríkti innan vébanda ÍSÍ.
4. júlí 2013
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun, er Ísland í 73. sæti listans og fellur niður um 12 sæti síðan að síðasti listi var gefinn út. Spánverjar eru sem fyrr í efsta sæti listans og koma Þjóðverjar þar á eftir.
4. júlí 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Finnum í dag kl. 16:30 á N1-vellinum í Sandgerði. Með sigri á íslenska liðið möguleika á öðru sæti riðilsins sem mundi þýða að leikið yrði um 3. sætið á mótinu á laugardaginn.
4. júlí 2013
Lokaleikir riðlakeppni á opna UM U17 kvenna fara fram í dag og fara leikirnir fram á Fylkisvelli og N1 vellinum í Sandgerði. Danir hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitaleiknum og mikið þarf að gerast til að Þjóðverjar verði ekki mótherjar þeirra þar. Íslendingar geta, með sigri á Finnum, skotist upp í annað sæti riðilsins og þar með leikið um þriðja sætið á laugardaginn.
4. júlí 2013
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt breytingu á landsliði Íslands fyrir lokakeppni EM. Katrín Ásbjörnsdóttir, Þór/KA, er meidd og getur ekki verið með í Svíþjóð. Í hennar stað hefur Sigurður valið Soffíu Arnþrúði Gunnarsdóttur úr Stjörnunni.