3. júlí 2013
Að tveimur umferðum loknum á Opna NM U17 kvenna, sem fram fer hér á landi, er ekki úr vegi að kíkja á markahæstu leikmenn mótsins. Í A-riðli hafa Þjóðverjar skorað langmest af mörkum og því eðlilegt að þeirra leikmenn séu áberandi. Í B-riðli hafa tveir leikmenn skorað þrjú mörk.
2. júlí 2013
Í dag, þriðjudag, fer fram önnur umferð á Opna Norðurlandamóti U17 landsliða kvenna. Ísland mætir Hollandi á Nettó-vellinum í Reykjanesbæ kl. 16:00 og hefur Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins tilkynnt byrjunarlið sitt. Gerðar eru þrjár breytingar frá fyrsta leik.
2. júlí 2013
Petrea Björt Sævarsdóttir varð fyrir meiðslum í leik með U17 kvenna á mánudag og verður ekki meira með á Opna NM. Í samræmi við reglugerð mótsins hefur Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins, kallað Nínu Kolbrúnu Gylfadóttur, leikmann Vals, inn í hópinn í stað Petreu.
2. júlí 2013
Annar leikdagur á Opna Norðurlandamóti U17 landsliða kvenna er runninn upp og í dag, þriðjudag, er leikið á Nettó-vellinum í Reykjanesbæ og á Fjölnisvelli í Grafarvogi. Ísland leikur suður með sjó kl. 16:00 og mætir þar Hollandi í lykilleik fyrir bæði lið, sem eru án stiga eftir fyrstu umferð.
2. júlí 2013
Línurnar tóku heldur betur að skýrast í toppbaráttu riðlanna á Opna NM eftir leiki dagsins. Ljóst er að Danir verða í efsta sæti B-riðils og leika þar með til úrslita í mótinu og miðað við stöðuna í A-riðli virðist fátt geta komið í veg fyrir að mótherjar þeirra verði Þjóðverjar.
2. júlí 2013
Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar FH og Ajax Online Academy hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning, sem felur í sér að þjálfarar FH fá aðgang að upp undir 1000 æfingum auk þess sem það auðveldar þjálfurum að skipuleggja æfingar, gera áætlanir og halda betur utan um sína iðkendur, skv. fréttatilkynningu frá FH.
1. júlí 2013
Fyrsta leikdegi á Opna Norðurlandamóti U17 landsliða kvenna lauk með markaveislu á Hertz-vellinum í Breiðholti, þar sem leiki í B-riðli fóru fram.  Ísland lék í grindavík gegn Þýskalandi, þar sem þær þýsku höfðu betur.  Finnar unnu Hollendinga í Grindavík í opnunarleiknum.
1. júlí 2013
Vefsíðan Sport TV (http://www.sporttv.is/) mun sýna beint frá leikjum í Opna Norðurlandamóti U17 kvenna, alls 7-8 leiki. Sýnt verður beint frá tveimur leikjum á sama leikstað á hverjum leikdegi í riðlakeppninni og síðan frá úrslitaleiknum sjálfum, sem fram fer á Laugardalsvelli.
1. júlí 2013
Opna NM U17 landsliða kvenna byrjar í dag, mánudag, og í dag er leikið í Grindavík og á Hertz-vellinum í Breiðholti (ÍR). Ísland mætir Þýskalandi á Grindavíkurvelli kl. 16:00 og hefur Úlfar Hinriksson, þjálfari íslenska liðsins tilkynnt byrjunarlið sitt.
28. júní 2013
Við kveðjum einn besta talsmann knattspyrnunnar og góðan félaga með söknuði en minningin um Hemma Gunn mun lifa. Við sendum ættingjum og vinum Hermanns innilegar samúðarkveðjur.
28. júní 2013
Það verða ekki einungis íslensk félagslið og íslenskir leikmenn í eldlínunni þann 4. júlí næstkomandi, þegar fram fer 1. umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Íslenskur dómarakvartett verður einnig að störfum með Þórodd Hjaltalín fremstan í flokki.
28. júní 2013
Mánudaginn 1. júlí hefst Opna Norðurlandamót U17 landsliða kvenna, og fer það fram hér á landi í ár, í Reykjavík og á Suðurnesjum.  Fyrsti leikur Íslands er gegn Þýskalandi á Grindavíkurvelli á mánudag.  Sett hefur verið upp sérstök Facebook-síða fyrir mótið.
28. júní 2013
Um 70 krakkar mættu á opna æfinga hjá A landsliði kvenna, sem fram fór á Valbjarnarvelli í dag, föstudag, í tengslum við alþjóðlega Ólympíuviku. Eftir æfinguna gafst kostur á myndatöku með leikmönnum landsliðsins og eiginhandaráritunum.
28. júní 2013
KSÍ heldur 6. stigs þjálfaranámskeið í Wokefield Park, Englandi dagana 8.-15. nóvember 2013.  Umsækjendur verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði og er síðasti dagur umsókna 15. ágúst næstkomandi, en fræðslunefnd stefnir á að taka inn 20 þjálfara á námskeiðið.
26. júní 2013
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Breiðabliks gegn KR í leik félaganna í eldri flokki karla 40+ sem fram fór 11. júní síðastliðinn. Kært var á grundvelli þess að um ólöglega skipað lið væri um að ræða. 
26. júní 2013
Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Fylkis gegn Gróttu vegna leiks félaganna í 2. flokki kvenna B deild sem fram fór 30. maí síðastliðinn en kært var á grundvelli þess að ekki voru aðstoðardómarar á leiknum. Samkvæmt úrskurði skulu úrslit leiksins standa óhögguð.
25. júní 2013
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur fyrir Íslands hönd á Opna Norðurlandamótinu sem fer fram hér á landi dagana 1. - 6. júlí. Ísland verður í riðli með Finnlandi, Þýskalandi og Hollandi og verður riðill Íslands leikinn á Suðurnesjum.
25. júní 2013
Á hverju ári er haldið upp á alþjóðlega Ólympíudaginn út um allan heim Hér á landi hefur þessi dagur verið haldinn hátíðlegur undanfarin ár. En í stað þess að vera með einn dag hefur undanfarin ár verið boðið uppá Ólympíuviku.  Hægt verður að fara á æfingu hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu í Ólympíuvikunni. Föstudaginn 28. júní munu stelpurnar æfa á Valbjarnarvelli í Laugardal og hefst æfingin kl.10:00 og stendur til 11:30.