Verslun
Leit
SÍA

24. júní 2013

A kvenna - 23 leikmenn valdir fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt 23 leikmenn sem skipa hópinn í úrslitakeppni EM í Svíþjóð. Mótið hefst 10. júlí en fyrsti leikur Íslands er degi síðar, 11. júlí, þegar liðið mætir Noregi í Kalmar.  Einn nýliði er í hópnum, Anna Björk Kristjánsdóttir úr Stjörnunni.

Landslið

24. júní 2013

Mínútu þögn kl. 10:00 til að minnast Ólafs Rafnssonar

Til að minnast Ólafs Rafnssonar, forseta ÍSÍ, óskar Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þess við aðildarfélög sín með starfsemi í dag að mínútu þögn verði kl. 10:00 í dag, mánudaginn 24. júní. Tilkynningu þess efnis má sjá hér að neðan.

Fréttir

21. júní 2013

Vegna umræðu um notkun spjaldtölva á varamannabekk

Vegna umræðu um notkun spjaldtölva á varamannabekk og við boðvang á knattspyrnuleikjum er rétt að fram komi að samkvæmt túlkun FIFA er bannað samkvæmt knattspyrnulögunum að skoða beinar útsendingar af leikjum á boðvangi (technical area) á meðan á leik stendur.

Dómaramál

21. júní 2013

Fundur 15 aðildarlanda UEFA

Dagana 18. og 19. júní fór fram vinnufundur UEFA um leyfismál í höfuðstöðvum KSÍ og er þetta í fyrsta skipti sem þessi árlegi fundur fer fram hér á landi. Á þessum fundum er jafnan fjallað almennt um leyfiskerfið, regluverkið, vinnulag, þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar og þær breytingar sem framundan eru.

Leyfiskerfi

21. júní 2013

Styrkleikalisti FIFA - Stelpurnar áfram í 15. sæti

Íslenska kvennalandsliðið er í 15. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Liðið er því í sama sæti og á síðasta lista en Bandaríkin tróna á toppnum sem fyrr og, mótherjar Íslendinga á EM í sumar, Þjóðverjar eru í öðru sæti listans.

Landslið

20. júní 2013

Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ er látinn

Forseti ÍSÍ, Ólafur Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri. Vegna fráfalls Ólafs fer KSÍ þess á leit við aðildarfélög sín að þau hafi mínútu þögn fyrir næstu leiki í meistaraflokki karla og kvenna, hvort sem næsti leikur er í bikarkeppni eða Íslandsmóti. A landslið kvenna mætir Dönum í Viborg í dag og mun leika með sorgarbönd.

Fréttir

20. júní 2013

A kvenna - Leikið gegn Dönum í dag

Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag vináttulandsleik gegn Dönum og fer leikurinn fram í Viborg. Leikurinn hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en þetta er síðasti leikur Íslands fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð sem hefst 10. júlí. Aðstæður eru hinar bestu í Viborg á æfði íslenska liðið á keppnisvellinum í gær.  Allir leikmenn hópsins eru heilir og klárir í slaginn.

Landslið

20. júní 2013

A kvenna - Tveggja marka tap í Viborg

Íslensku stelpurnar biðu lægri hlut í dag gegn sterku liði Dana í vináttulandsleik sem fram fór í Viborg.  Lokatölur urðu 2 - 0 fyrir Dani sem skoruðu mörkin í sitt hvorum hálfleiknum.  Þetta var síðasti leikur Íslands fyrir úrslitakeppni EM sem hefst í Svíþjóð 10. júlí.  Fyrsti leikur Íslands verður gegn Noregi, í Kalmar, þann 11. júlí.

Landslið

20. júní 2013

A kvenna - Byrjunarliðið er mætir Dönum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Dönum í vináttulandsleik kl. 16:00 í dag. Leikið verður í Viborg og er þetta síðasti leikur Íslands fyrir úrslitakeppni EM í Svíþjóð.  Fylgst verður með leiknum á Facebook síðu KSÍ.

Landslið

18. júní 2013

A kvenna - Mist Edvardsdóttir inn í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, gerði eina breytingu til viðbótar á hópnum sem hélt til Danmerkur í gær að leika vináttulandsleik gegn Dönum á fimmtudaginn. Mist Edvardsdóttir kemur inn fyrir Önnu Björk Kristjánsdóttur.

Landslið

13. júní 2013

A kvenna - Elísa Viðarsdóttir inn í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið Elísu Viðarsdóttur í landsliðshópinn sem mætir Dönum í vináttulandsleik 20. júní. Elísa kemur í stað Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur sem er meidd.

Landslið

13. júní 2013

A kvenna - Sandra kemur inn í hópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á hópnum sem mætir Dönum í vináttulandsleik í Viborg þann 20. júní næstkomandi. Markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir kemur inn í hópinn í stað Þóru Helgadóttur sem er meidd.

Landslið

12. júní 2013

U17 kvenna - Æfingar um komandi helgi

Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið hóp til æfinga um komandi helgi.  Þessar æfingar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Norðurlandamót stúlkna sem fram fer hér á landi, 1. - 6. júlí. 

Landslið

12. júní 2013

A kvenna - Hópur 40 leikmanna tilkynntur

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hóp 40 leikmanna og tilkynnt hann til UEFA samkvæmt reglugerð úrslitakeppni EM.  Úr þessum leikmannahópi verða svo valdir þeir 23 leikmenn sem fara til Svíþjóðar í júlí.

Landslið

12. júní 2013

A kvenna - Hópurinn sem mætir Dönum í Viborg

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur tilkynnt hópinn sem mætir Dönum í vináttulandsleik í Viborg, fimmtudaginn 20. júní.  Þetta er síðasti leikur Íslands áður en úrslitakeppni EM hefst í Svíþjóð þann 10. júlí næstkomandi.

Landslið

10. júní 2013

Knattspyrnuskóli drengja 2013 - Dagskrá og þátttakendur

Knattspyrnuskóli karla 2013 fer fram að Laugarvatni 17. - 21. júní næstkomandi. Freyr Sverrisson, þjálfari U16 karla hefur umsjón með skólanum og eru leikmenn í skólanum í ár fæddir 1999.

Fræðsla

7. júní 2013

Slóvenar höfðu betur í Laugardalnum

Slóvenar höfðu betur á Laugardalsvelli í kvöld en Íslendingar tóku á móti þeim í undankeppni HM. Lokatölur urðu 2 - 4 eftir að staðan hafði verið jöfn, 2 - 2 í leikhléi.  Næsti leikur Íslands í riðlinum er gegn Sviss á útivelli, 6. september, en næsta verkefnið er hinsvegar vináttulandsleikur gegn Færeyingum á Laugardalsvelli, 14. ágúst.

Landslið

7. júní 2013

Byrjunarliðið gegn Slóveníu

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Slóvenum á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn hefst nú kl. 19:00 og er liður í undankeppni HM 2014. Byrjunarliðið er þannig skipað:

Landslið