7. júní 2013
Miðasala hefst á Laugardalsvelli kl. 12:00 á leikdag á leik Íslands og Slóveníu. Nú kl. 8:00 í morgun eru um 1.000 miðar eftir og um að gera að hafa hraðar hendur. Hægt er að kaupa miða á netinu fram að leik. Leikurinn hefst kl. 19:00 en völlurinn sjálfur opnar kl. 18:00 og eru vallargestir hvattir til þess að mæta tímanlega á völlinn.
6. júní 2013
Strákarnir í U21 leika í dag annan leik sinn í undankeppni EM en leikið verður við Armena í Jerevan kl. 15:00 að íslenskum tíma. Íslendingar lögðu Hvít Rússa í fyrsta leik sínum, einnig á útivelli, en þetta er fyrsti leikur mótherjanna í riðlinum.
6. júní 2013
Strákarnir í U21 unnu í dag sætan sigur á Armenum en leikurinn var í undankeppni EM. Lokatölur urðu 1 - 2 fyrir Ísland sem höfðu leitt í leikhléi, 0 - 1. Emil Atlason gerði bæði mörk Íslands í leiknum, það síðara á lokamínútum leiksins sem reyndist sigurmark leiksins.
6. júní 2013
Gott er að minna gesti Laugardalsvallar á að það er fjöldi bílastæða í Laugardalnum og aðeins lítill hluti þeirra beint fyrir utan Laugardalsvöllinn. Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að finna bílastæði í göngufæri við Laugardalsvöll. VIð minnum svo vallargesti að mæta tímanlega á leik Íslands og Slóveníu sem hefst kl. 19:00.
6. júní 2013
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Armenum í undankeppni EM í dag. Leikið verður í Jerevan en þetta er annar leikur Íslands í riðlinum. Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma.
6. júní 2013
Íslenska karlalandsliðið fer upp um 12 sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland er nú í 61. sæti listans en ef aðeins eru tekin til Evrópuþjóðirnar, er Ísland í 30. sæti af 53 þjóðum. Spánverjar eru sem fyrr á toppi listans.
5. júní 2013
Það verður dómarakvartett frá Þýskalandi sem verður við stjórnvölinn þegar Ísland tekur á móti Slóveníu í undankeppni HM. Dómarinn heitir Felix Zwayer og aðstoðardómarar hans verða Detlef Scheppe og Mike Pickel.
4. júní 2013
Karlalandsliðið undirbýr sig nú undir hinn mikilvæga leik gegn Slóvenum sem fram fer á Laugardalsvelli, föstudaginn 7. júní kl. 19:00. Liðið æfði í Kórnum í dag en æft verður á Laugardalsvelli á morgun.
4. júní 2013
Strákarnir í U21 karla eru komnir til Jerevan í Armeníu þar sem leikið verður við heimamenn í undankeppni EM, fimmtudaginn 6. júní. Liðið var komið á áfangastað í nótt eftir langt ferðalag og var tekinn göngutúr fyrri hluta dags en æft verður svo síðar í dag.
4. júní 2013
Gunnar Jarl Jónsson mun á morgun dæma vináttulandsleik Noregs og Finnlands hjá U21 karla. Leikið verður í Hönefoss og verða aðstoðarmenn Gunnars norskir í þessum leik, þeir Dag R. Nebben og Ivar Jahr. Fjórði dómari er einnig frá Noregi, Kristoffer Helgerud.
4. júní 2013
Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni, föstudaginn 7. júní, þegar hann dæmir leik Eistlands og Danmerkur sem leikinn verður í Tallinn. Leikurinn er liður í undankeppni EM U21 karla en aðstoðardómarar Þorvaldar verða þeir Áskell Þór Gíslason og Gylfi Þór Sigurðsson. Fjórði dómari verður Þóroddur Hjaltalín.
3. júní 2013
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland –Slóvenía í undankeppni HM 2014 afhenta miðvikudaginn 5. júní frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis.
3. júní 2013
Jóhann Gunnar Guðmundsson verður næstu daga að störfum í Ísrael þar sem hann starfar í úrslitakeppni EM U21 karla. Keppnin fer fram dagana 5. - 18. júní en Jóhann verður fjórði dómari á opnunarleik keppninnar, Ísrael - Noregur.
1. júní 2013
Ísland og Skotland mættust í vináttulandsleik í dag á Laugardalsvelli í fínu fótboltaveðri. Lokatölur urðu 2 - 3 eftir að Skotar höfðu leitt í leikhléi, 1 –3. Þetta var síðasti leikur íslenska liðsins á heimavelli áður en það etur kappi við bestu þjóðir Evrópu í úrslitakeppni EM í sumar.
31. maí 2013
A landslið karla hefur nú þegar hafið undirbúning sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Slóveníu föstudaginn 7. júní. Mánudaginn 3. júní kl. 17:30 verður opin æfing á Víkingsvelli í Reykjavík og er stuðningsmönnum velkomið að mæta í Víkina til að fylgjast með æfingunni.
31. maí 2013
Eins og kunnugt er munu stelpurnar okkar í A landsliði kvenna leika í úrslitakeppni EM í annað sinn þegar þær fara til Svíþjóðar í sumar. Síðasti heimaleikur þeirra fyrir keppnina fer fram á Laugardalsvelli á laugardag og þar mun vallargestum gefast kostur á því að skrifa á kveðjukort til stelpnanna.
31. maí 2013
Kvennalandslið Íslands og Skotlands mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 1. júní kl. 16:45. Þetta er síðasti heimaleikur íslenska liðsins áður en þær leika í úrslitakeppni EM í Svíþjóð í júlí. Miðasala á leikinn er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is en einnig verður hægt að kaupa miða á leikdag á Laugardalsvelli frá kl. 14:00.
31. maí 2013
Á vináttulandsleik kvennaliða Íslands og Skotlands á laugardag gefst miðakaupendum kostur á að taka þátt í sérstökum lukkuleik sem gefur möguleika á skemmtilegum og kannski svolítið óhefðbundnum vinningum. Settu aðgöngumiðann í pottinn!