Verslun
Leit
SÍA

31. maí 2013

Knattspyrnuskóli stúlkna 2013 – Þátttakendur og dagskrá

Knattspyrnuskóli stúlkna fer fram í næstu viku að Laugarvatni. Leikmenn í skólanum í ár fæddir 1999. Mæting er stundvíslega kl. 13:30 mánudaginn 10. júní á skrifstofu KSÍ á Laugardalsvelli. Ganga þarf frá greiðslu fyrir dvölina fyrir brottför.

Fræðsla

30. maí 2013

Ísland - Skotland - Dómari leiksins kemur frá Svíþjóð

Það verður hin sænska Sara Persson sem dæmir vináttulandsleik Íslands og Skotlands á Laugardalsvelli. Leikurinn fer fram laugardaginn 1. júní og hefst kl. 16:45. Aðstoðardómarar Söru verða Rúna Kristín Stefánsdóttir og Gylfi Már Sigurðsson. Fjórði dómari verður Áskell Þór Gíslason.

Dómaramál

29. maí 2013

Ísland - Skotland - A passar gilda við innganginn

Handhafar A passa KSÍ 2013 geta sýnt passann við innganginn þegar komið er á vináttulandsleik Íslands og Skotlands, laugardaginn 1. júní kl. 16:45.  Ekki þarf að sækja miða á skrifstofu KSÍ heldur gildir skírteinið við innganginn.

Landslið

29. maí 2013

Ísland - Skotland - Frítt inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja

Frítt er inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja á vináttulandsleik Íslands og Skotlands. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, laugardaginn 1. júní og hefst kl 16:45. Hægt er að framvísa viðeigandi skírteinum við innganginn og þarf því ekki að sækja miða áður á skrifstofu KSÍ.

Landslið

29. maí 2013

Yngri iðkendum aðildarfélaga boðið á Ísland - Skotland

Eins og kunnugt er  leikur íslenska kvennalandsliðið vináttulandsleik gegn Skotum, næstkomandi laugardag kl. 16:45 á Laugardalsvelli.  Þetta er síðasti leikur liðsins á heimavelli fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í júlí í Svíþjóð.  Frítt er á leikinn fyrir 16 ára og yngri og hvetjum við aðildarfélög til þess að skipuleggja hópferðir á leikinn.

Landslið

29. maí 2013

A karla - Hópurinn gegn Slóvenum verður tilkynntur í dag

Í dag verður haldinn blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ þar sem Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, mun tilkynna hópinn sem leikur gegn Slóvenum á Laugardalsvelli 7. júní í undankeppni HM.

Landslið

29. maí 2013

A karla - Hópurinn sem mætir Slóvenum

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Slóvenum í undankeppni HM á Laugardalsvelli, föstudaginn 7. júní kl. 19:00. MIðasala á leikinn er í fullum gangi og óhætt að segja að hún gangi vel fyrir þennan mikilvæga leik.

Landslið

28. maí 2013

U21 karla - Hópurinn sem mætir Armeníu

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Armeníu í undankeppni EM. Leikið verður í Jerevan, fimmtudaginn 6. júní, og er þetta annar leikur Íslands í þessari undankeppni. Fyrsti leikurinn var gegn Hvít Rússum og höfðu Íslendingar þar betur.

Landslið

28. maí 2013

Treyjupottur Reykjadals

Treyjupottur Reykjadals er söfnunarátak sem knattspyrnumaðurinn Grétar Rafn Steinsson stendur að í samstarfi við íslenskt afreksfólk í knattspyrnu. Leikmennirnir hafa gefið treyjur sínar til þessa frábæra málefnis og rennur ágóðinn til Styrkarfélags lamaðra og fatlaðra sem rekur Reykjadal, sumardvalarheimili fyrir fötluð börn í Mosfellsdal.

Fræðsla
Landslið

28. maí 2013

A kvenna - Skoski hópurinn sem mætir Íslendingum á Laugardalsvelli

Framundan er vináttulandsleikur á milli Íslands og Skotlands en leikið verður á Laugardalsvelli, laugardaginn 1. júní kl. 16:45. Þetta verður síðasti heimaleikur íslensku stelpnanna fyrir úrslitakeppni EM sem hefst í Svíþjóð 10. júlí.

Landslið

27. maí 2013

Heldurðu að þú getir hitt þverslána frá vítateigsboganum?

Í hálfleik á vináttulandsleik kvennaliða Íslands og Skotlands, sem fram fer á Laugardalsvelli á laugardag kl. 16:45, munu þrír heppnir vallargestir Laugardalsvallar fá tækifæri til að spreyta sig í erfiðri þraut.  Vinningurinn ferð fyrir tvo til útlanda með Icelandair!

Landslið

23. maí 2013

Súpufundur KSÍ - Sigurður Ragnar fjallaði um leikjaálag ungra leikmanna

Súpufundur KSÍ, sá ellefti í röðinni, fór fram í hádeginu í gær í höfuðstöðvum KSÍ.  Þar flutti Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ og landsliðsþjálfari, hugleiðingar um leikjaálag hjá ungum leikmönnum.

Fræðsla

22. maí 2013

Feðgin dæmdu saman í 1. deild kvenna

Feðginin Bergur Þór Steingrímsson og Ellen Elísabet Bergsdóttir voru aðstoðardómarar á leik Fram og BÍ/Bolungarvíkur í 1. deild kvenna sem fram fór á mánudaginn. Áður höfðu þau starfað saman í tveimur leikjum í Borgunarbikar kvenna.

Dómaramál

21. maí 2013

Er of mikið álag á ungu leikmönnunum þínum?

Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands heldur erindi um álag á ungum og efnilegum leikmönnum í knattspyrnu miðvikudaginn 22. maí kl 12:15.  Erindið er öllum opið, er ókeypis og tími verður fyrir spurningar í lokin. KSÍ býður upp á súpu að venju. Skráning er hafin á dagur@ksi.is

Fræðsla

21. maí 2013

A kvenna - Hópurinn valinn fyrir vináttulandsleik gegn Skotum

SIgurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætir Skotum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli, laugardaginn 1. júní. Hópinn skipa 23 leikmenn og er einn leikmaður í hópnum sem ekki hefur leikið A-landsleik áður, Katrín Ásbjörnsdóttir úr Þór/KA.

Landslið

17. maí 2013

Réttur barna til að vera í fótbolta

Danska knattspyrnusambandið, í samvinnu við samtökin "Save the Children" stóð fyrir skemmtilegum viðburði á dögunum til að vekja athygli á þá sjálfsögðu réttindum barna til þess að iðka knattspyrnu. Blásið var til leiks þar sem danska kvennalandsliðinu mætti hvorki fleiri né færri en 100 börnum á knattspyrnuvellinum.

Fræðsla

17. maí 2013

Skemmtileg verkefni við Norðurlandamót U16 kvenna í júlí

Opna Norðurlandamót U16 kvenna verður haldið í júlí sumar og er skipulag þess í höndum KSÍ. Fyrstu leikir mótsins fara fram 1. júlí og leikið verður um sæti 6. júlí. Riðill A fer fram á Suðurnesjum en riðill B á höfuðborgarsvæðinu.

Landslið

13. maí 2013

Leikmenn og landsliðsþjálfarar heimsækja Växjö

Íslenska kvennalandsliðið mun leika 2 leiki í sumar í Växjö þegar liðið leikur í úrslitakeppni EM sem fram fer í Svíþjóð í sumar. Til að kynna íslenska liðið fyrir heimafólki fóru landsliðsþjálfararnir, Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Lars Lagerbäck ásamt landsliðskonunum Söru Björk Gunnarsdóttur og Þóru Helgadóttur, til Växjö.

Landslið