Verslun
Leit
SÍA

16. september 2009

Ísland - Eistland fimmtudaginn 17. september kl. 20:00

Það styttist í að Ísland og Eistland mætist á Laugardalsvellinum í undankeppni fyrir HM 2011.  Flautað verður til leiks á morgun, fimmtudaginn 17. september, kl. 20:00 og vonumst við eftir þér á völlinn til þess að styðja við bakið á stelpunum.  Miðaverði er stillt í hóf, 1.000 krónur kostar fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri

Landslið

16. september 2009

Tvö KSÍ I þjálfaranámskeið verða haldin í október

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október.

Fræðsla

15. september 2009

Dómaratríó frá Írlandi á leik Íslands og Eistlands

Dómaratríóið á viðureign Íslands og Eistlands í undankeppni HM kvennalandsliða, sem fram fer á Laugardalsvelli á fimmtudagskvöld kl. 20:00, kemur frá Írlandi.  Fjórði dómarinn er íslenskur.  Eftirlitsmaður UEFA er frá Litháen.

Dómaramál
Landslið

15. september 2009

Markmannsnámskeið Gunnleifs Gunnleifssonar

Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður stendur fyrir markmannsnámskeiði í knattspyrnuhúsinu Kórnum næstu vikurnar.  Farið verður yfir alla meginþætti markvörslu og þátttakendum skipt í tvennt - Eldri og yngri hóp. 

Fræðsla

15. september 2009

Úrtaksæfingar fyrir U17 karla á Tungubökkum um helgina

Gunnar Guðmundsson, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur boðað 25 leikmenn á úrtaksæfingar um komandi helgi.  Æft verður á Tungubökkum í Mosfellsbæ og koma leikmennirnir frá félögum víðs vegar af landinu.

Landslið

15. september 2009

Dregið í riðla fyrir EM 2012 þann 7. febrúar 2010

Þann 7. febrúar 2010 verður dregið í riðla fyrir undankeppni Evrópumóts karlalalandsliða 2012, sem fram fer í Póllandi og Úkraínu.  Drátturinn fer fram í miðstöð menningar og vísinda í Varsjá í Póllandi.  Sextán lið komast í úrslitakeppnina.

Landslið

14. september 2009

Silvía Rán Sigurðardóttir inn í A landsliðshópinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á hóp sínum fyrir leikinn gegn Eistlandi í undankeppni HM 2011.   Silvía Rán Sigurðardóttir úr Þór kemur inn í hópinn í fyrir Guðrúnu Sóley Gunnarsdóttur sem er meidd.

Landslið

14. september 2009

Vináttulandsleikur gegn Lúxemborg 14. nóvember

Knattspyrnusambönd Íslands og Lúxemborg hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik þann 14. nóvember næstkomandi.  Leikið verður í Lúxemborg og er þetta í sjöunda skiptið sem karlalandslið þjóðanna mætast.

Landslið

14. september 2009

Kristín Ýr inn í hópinn gegn Eistlandi

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum sem mætir Eistlandi, fimmtudaginn 17. september.  Kristín Ýr Bjarnadóttir úr Val kemur inn í hópinn í stað Dóru Stefánsdóttur sem er meidd.

Landslið

13. september 2009

Magnaður september

Það hefur verið nóg um að vera hjá landsliðunum okkar fyrri hluta septembermánaðar og óhætt að segja að árangurinn úr þessum verkefnum hafi verið frábær.  Fimm sigrar í átta leikjum, þar af þrír á einum og sama deginum.

Pistlar

11. september 2009

U19 kvenna leikur í Portúgal - Hópurinn valinn

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið landsliðshóp sinn er leikur í Portúgal í riðlakeppni EM.  Mótherjar liðsins að þessu sinni eru ásamt heimastúlkum, Sviss og Rúmenía. 

Landslið

11. september 2009

Ekkert stöðvar Þjóðverjana

Þýska kvennalandsliðið í knattspyrnu virðist vera óstöðvandi.  Þær þýsku tryggðu sér á fimmtudag sjöunda Evrópumeistaratitil sinn með 6-2 sigri á Englendingum á Ólympíuleikvanginum í Helsinki í Finnlandi.

Landslið

10. september 2009

Ísland - Eistland á fimmtudag

Ísland og Eistland mætast í undankeppni HM 2011 á Laugardalsvelli á fimmtudag kl. 20:00. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti hóp sinn fyrr í vikunni.

Landslið

10. september 2009

Treffoloni með fyrirlestur fyrir íslenska kollega

Ítalski dómarinn Matteo Treffoloni, sem dæmdi vináttulandsleik Íslands og Georgíu í gærkvöldi, hélt á þriðjudagskvöldið fyrirlestur fyrir íslenska A og B dómara.  Treffoloni er einn virtasti og reyndasti dómari Ítala í dag og var mikill fengur í komu hans fyrir íslenska kollega.

Dómaramál

9. september 2009

Ítalskt dómaratríó á Ísland-Georgía

Ítalskt dómaratríó verður á vináttulandsleik Íslands og Georgíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli í kvöld, miðvikudagskvöld, og hefst leikurinn kl. 19:30.  Fjórði dómarinn er hins vegar íslenskur, sem og eftirlitsmaðurinn.

Dómaramál
Landslið

9. september 2009

Góð stemmning á lokaæfingunni fyrir Georgíuleikinn

Það var góð stemmning á síðustu æfingu landsliðsins fyrir vináttulandsleikinn gegn Georgíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli í kvöld, miðvikudagskvöld.  Hópurinn er þó nokkuð breyttur frá því í síðustu viku, fyrir leikinn gegn Norðmönnum í undankeppni HM 2010. 

Landslið

9. september 2009

Aftur sigur gegn Skotum hjá U19 karla

U19 landslið karla gerði svo sannarlega góða ferð til Skotlands í vikunni, þar sem liðið lék tvo vináttuleiki við heimamenn, og kemur til baka til Íslands með tvo sigra í farteskinu.  Síðari leikurinn var í dag, miðvikudag, og lokatölur þess leiks urðu 3-1.

Landslið

9. september 2009

Georgíumenn lagðir í Laugardalnum

Íslendingar lögðu Georgíumenn í vináttulandsleik sem fram fór á Laugardalsvellinum í kvöld.  Lokatölur urðu 3 - 1 eftir að Íslendingar höfðu leitt í leikhléi, 2 - 1.  Garðar Jóhannsson, Ólafur Ingi Skúlason og Veigar Páll Gunnarsson skoruðu mörk Íslendinga í leiknum.

Landslið