13. janúar 2009
Íslandsmeistarar FH urðu í dag fimmta félagið til að skila leyfisgögnum vegna leyfisumsóknar fyrir keppnistímabilið 2009. Um er að ræða fylgigögn með leyfisumsókn og snúa þau að öllum þáttum öðrum en fjárhagslegum.
13. janúar 2009
Á næstunni verður hleypt af stokkunum knattspyrnuæfingum fyrir fatlaða hjá KR og munu þeir kynna verkefnið á næstunni og æfingar hefjast í kjölfarið. Markmiðið er að gefa fötluðum börnum og unglinum tækifæri að vera virkir þátttakendur hjá almennu knattspyrnufélagi.
12. janúar 2009
Föstudaginn 16. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands KSÍ VI þjálfaranámskeið á Lilleshall á Englandi. Þetta verður í þriðja sinn sem KSÍ heldur slíkt námskeið á Englandi en fyrst var það haldið árið 2004.
12. janúar 2009
Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið æfingahópa fyrir úrtaksæfingar hjá U17 og U19 kvenna sem fram fara um komandi helgi.
12. janúar 2009
Fullgildir meðlimir í KÞÍ eiga þess kost að slást í för með norska þjálfarafélaginu til Englands á þjálfararáðstefnu og fylgjast með þjálfun og leikjum. Ferðin verður farin 23. febrúar og formlegri dagskrá lýkur 27. februar 2009.
9. janúar 2009
Knattspyrnusambandi Íslands og Knattspyrnusamband Færeyja hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, sunnudaginn 22. mars.
9. janúar 2009
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið leikmenn á landsliðsæfingu sem fram fer í Boganum miðvikudaginn 14. janúar næstkomandi. Í hópinn eru valdir leikmenn frá félögum á Norðurlandi.
9. janúar 2009
Fjórir íslenskir þjálfarar sendu inn umsókn á UEFA Pro Licence námskeið á Englandi. Ákvað fræðslunefnd KSÍ að mæla með umsóknum Willums Þórs Þórsssonar og Þorvaldar Örlygssonar.
8. janúar 2009
Föstudaginn 16. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands KSÍ VI þjálfaranámskeið á Lilleshall á Englandi. Þetta verður í þriðja sinn sem KSÍ heldur slíkt námskeið á Englandi en fyrst var það haldið árið 2004.
7. janúar 2009
Íslenska kvennalandsliðið leikur vináttulandsleik við Holland í Kórnum 25. apríl næstkomandi. Leikurinn átti upphaflega að fara fram 23. apríl en hefur verið færður aftur um tvo daga að ósk Hollendinga.
6. janúar 2009
Landsliðsþjálfararnir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson hafa valið æfingahópa til æfinga hjá U16 og U17 karla. Æfingar fara fram í Kórnum og Egilshöll um næstu helgi.
6. janúar 2009
Stjarnan í Garðabæ kom við hjá leyfisstjórn í dag og varð fjórða félagið til að skila leyfisgögnum fyir keppnistímabilið 2009. Þau gögn sem skilað er nú snúa að öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum.
6. janúar 2009
Næstkomandi laugardag hefjast knattspyrnuæfingar fyrir fatlaðra á Akranesi og fara þær fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Þessar æfingar eru samstarfsverkefni á milli Knattspyrnusambands Íslands, ÍA og Þjóts.
5. janúar 2009
Dagana 14. og 15. janúar næstkomandi munu fulltrúar FIFA halda námskeið um TMS kerfi FIFA fyrir félögin í Landsbankadeild karla 2009. Félögum í Landabankadeild karla ber að nota kerfið strax á þessu ári.
5. janúar 2009
Vert er að minna á ákvæði um samningsskyldu leikmanna í Landsbankadeild karla eins og fram kemur í grein 23.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Ákvæði þetta varð virkt þann 1. janúar 2009.
5. janúar 2009
63. ársþing Knattspyrnusambands Íslands verður haldið í húsakynnum KSÍ laugardaginn 14. febrúar 2009. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi efnisatriði tengd þinghaldinu:
30. desember 2008
Ársins 2008 verður kannski fyrst og fremst minnst hjá íslenskum íþróttamönnum fyrir góðan árangur í hópíþróttum, silfur á Ólympíuleikum í handknattleik og landslið kvenna í knattspyrnu tryggði sér sæti í úrslitakeppni EM fyrst landsliða Íslands.
30. desember 2008
Landsliðsþjálfararnir, Þorlákur Árnason og Ólafur Þór Guðbjörnsson, hafa valið hópa til æfinga um næstu helgi hjá U17 og U19 kvenna. Æfingarnar fara fram í Egilshöllinni og Kórnum.