Verslun
Leit
SÍA

29. desember 2008

Keflavík þriðja félagið til að skila leyfisgögnum

Keflvíkingar hafa skilað leyfisgögnum sínum, fylgigögnum með leyfisumsókn fyrir keppnistímabilið 2009.  Keflavík er þar með þriðja félagið til að skila í ár, en áður höfðu Valur og KA skilað sínum gögnum.

Leyfiskerfi

22. desember 2008

Yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona í Fífunni

Albert Capellas yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona heldur fyrirlestra og stjórnar æfingum í Fífunni 28. desember næstkomandi.  Hann er hér í boði Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands.

Fræðsla

22. desember 2008

KA-menn búnir að skila leyfisgögnum

Leyfisgögn KA-manna bárust leyfisstjórn á föstudag og er KA því annað félagið sem skilar gögnum fyrir keppnistímabilið 2009, en áður höfðu Valsmenn skilað.  Þetta er í fyrsta sinn sem leyfisumsækjendur hafa skilað gögnum fyrir jól.

Leyfiskerfi

19. desember 2008

Tvær stjörnur til viðbótar til Grasrótarstarfs KSÍ

Fyrr á þessu árið varð KSÍ samþykkt inn í Grasrótarsáttmála UEFA og varð þá 30. þjóðin til að ná inn í þann sáttmála.   Á dögunum fékkst það staðfest frá UEFA að Grasrótarstarf KSÍ hefur verið úthlutað tveimur stjörnum til viðbótar.

Fræðsla

19. desember 2008

Grasrótarviðurkenningar KSÍ 2008

Í gær voru veittar grasrótarviðurkenningar KSÍ fyrir árið 2008 og voru viðurkenningarnar afhentar í höfuðstöðvum KSÍ.  Veittar voru viðurkenningar í fjórum grasrótarflokkum.

Fræðsla

18. desember 2008

KSÍ semur við landsliðsþjálfara

KSÍ hefur gengið frá tveggja ára samningum við nokkra landsliðsþjálfara.  Bæði er um endurráðningar að ræða sem og að gengið hefur verið til samninga við nýja landsliðsþjálfara.  Allir þessir samningar eru til tveggja ára.

Landslið

18. desember 2008

Valsmenn fyrstir til að skila leyfisgögnum fyrir 2009

Valsmenn urðu í dag fyrstir til að skila fylgigögnum með leyfisumsókn sinni fyrir keppnistímabilið 2009.  Rétt er að vekja athygli á því að aldrei áður hefur það gerst hér á landi að leyfisumsækjandi skili gögnum fyrir jól. 

Leyfiskerfi

18. desember 2008

Gæðavottun staðfest án athugasemda

Um miðjan október fór fram víðtækt gæðamat á skipulagi leyfiskerfis KSÍ.  Matið er framkvæmt árlega af fulltrúum SGS, sem er alþjóðlegt vottunarfyrirtæki, og var gæðavottun á leyfiskerfi KSÍ staðfest án athugasemda.

Leyfiskerfi

17. desember 2008

Ísland niður um eitt sæti á styrkleikalista FIFA

Nýr styrkleikalisti karlalandsliða hjá FIFA var birtur í dag og fellur Ísland um eitt sæti frá síðasta lista.  Íslenska karlalandsliðið er í 83. sæti listans en sem fyrr eru það Evrópumeistarar Spánar er tróna á toppnum.

Landslið

16. desember 2008

Vináttulandsleikur gegn Liechtenstein 11. febrúar

Knattspyrnusamband Íslands og Knattspyrnusamband Liechtenstein hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik 11. febrúar næstkomandi.  Leikurinn verður leikinn á La Manga á Spáni.

Landslið

16. desember 2008

Trans World Sport og knattspyrna kvenna á Íslandi

Í sumar komu hér aðilar frá hinum kunna íþróttaþætti Trans World Sport og kynntu sér knattspyrnu kvenna á Íslandi.  Rætt er við Sigurð Ragnar Eyjólfsson, Katrínu Jónsdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur í þættinum.

Landslið

15. desember 2008

3. stigs þjálfaranámskeið haldið 6. - 8. febrúar

Helgina 6.-8. febrúar mun Knattspyrnusamband Íslands halda 3. stigs þjálfaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ. Dagskrá námskeiðsins verður gefin út síðar en gera má ráð fyrir því að námskeiðið hefjist um kl. 13:00, föstudaginn 6. febrúar.

Fræðsla

15. desember 2008

KSÍ B próf fer fram 28. febrúar 2009

Laugardaginn 28. febrúar stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).

Fræðsla

15. desember 2008

Umsóknarfrestur á Pro Licence til 29. desember

Eins og komið hefur fram áður mun enska knattspyrnusambandið veita íslenskum þjálfurum aðgang að Pro Licence þjálfaranámskeiði sínu.  Um helgina fór fram kynningarfundur á þessu námskeið og mættu 15 þjálfarar á fundinn.

Fræðsla

15. desember 2008

Æfingar A landsliðs kvenna í byrjun janúar

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt undirbúningshóp og eru það 40 leikmenn sem skipa þann hóp.  Æfingarnar fara fram í Kórnum 3. og 4. janúar.

Landslið

12. desember 2008

Leiktímar í úrslitakeppni EM kvenna tilbúnir

Leiktímar fyrir leiki úrslitakeppni EM kvenna í  Finnlandi eru tilbúnir.  Íslenska liðið er sem kunnugt er í riðli með Frakklandi, Noregi og Þýskalandi.  Fyrsti leikur íslenska liðsins verður við Frakka, mánudaginn 24. ágúst kl. 17:00 að íslenskum tíma.

Landslið

10. desember 2008

63. ársþing KSÍ - 14. febrúar 2009

63. ársþing Knattspyrnusambands Íslands verður haldið í húsakynnum KSÍ laugardaginn 14. febrúar 2009. Sambandsaðilar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi efnisatriði tengd þinghaldinu.

Ársþing

9. desember 2008

Landsliðsþjálfarinn heimsótti Raufarhöfn og Húsavík

Knattspyrnuiðkendur í Norðurþingi fengu góða heimsókn í síðustu viku.  Þar voru á ferðinni Ólafur Jóhannesson landsliðþjálfari karla og Guðlaugur Gunnarsson starfsmaður KSÍ.  

Fræðsla