Verslun
Leit
SÍA

9. desember 2008

Breytingar á reglugerðum KSÍ í desember 2008

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 4. desember 2008 breytingar á reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga, reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál og á reglugerð KSÍ um knattspyrnumót.

Lög og reglugerðir

8. desember 2008

100 fótboltar til Mæðrastyrksnefndar

KSÍ gaf í dag 100 fótbolta til Mæðrastyrksnefndar.  Þær Ragnhildur Guðmundsdóttir og Ríkey Ríkarðsdóttir hjá Mæðrastyrksnefnd veittu boltunum viðtöku og sögðu að þeir myndu nýtast mjög vel þeim þeim strákum og stelpum sem knettina fengju í jólagjöf.

Fræðsla

4. desember 2008

Íslenskir þjálfarar fá aðgang að Pro licence í Englandi

Enska knattspyrnusambandið samþykkti í dag að veita þjálfurum á Íslandi aðgang að Pro licence þjálfaranámskeiði sínu.  Möguleiki er á því að tveir þjálfarar frá Íslandi geti komist strax á næsta Pro licence námskeið.

Fræðsla

3. desember 2008

U17 karla leikur í Wales og U19 karla í Bosníu

Í dag var dregið í undankeppni fyrir EM 2010 hjá landsliðum U17 og U19 karla.  Hjá U17 karla leikur Ísland í riðli með Bosníu, Rússlandi og Wales.  Hjá U19 karla lentu Íslendingar í riðli með Búlgaríu, Norður Írlandi og Bosníu.

Landslið

3. desember 2008

Dregið í EM 2009/2010 hjá U17 og U19 karla

Í dag verður dregið í undankeppni EM 2009/2010 hjá landsliðum U17 og U19 karla.  Dregið verður í höfuðstöðvum UEFA í Sviss en úrslitakeppni U17 karla fer fram að þessu sinni í Liechtenstein en hjá U19 karla fer hún fram í Frakklandi.

Landslið

3. desember 2008

KSÍ fær styrk úr Afrekskvennasjóði Glitnis og ÍSÍ

Í gær var úthlutað úr afrekskvennasjóði Glitnis og ÍSÍ og voru styrkþegar þrír talsins í þett skiptið.  Knattspyrnusamband Ísland var einn þeirra og hlýtur sambandið eina milljón króna í styrk vegna A landsliðs kvenna.

Landslið

2. desember 2008

Hópur kynnti sér knattspyrnu kvenna í Finnlandi

Dagana 25.-28. nóvember hélt 11 manna hópur frá Íslandi til Finnlands í þeim tilgangi að kynna sér knattspyrnu kvenna þar í landi. Hópurinn var skipaður fulltrúum liðanna sem leika í Landsbankadeild kvenna á næsta ári.

Fræðsla

2. desember 2008

Alþjóðadagur fatlaðra 2. desember

Special Olympics í Evrópu vekur athygli aðildarlanda á því að myndband um knattspyrnu fatlaðra mun verða sýnt 2. desember á Eurosport í tengslum við alþjóðadag fatlaðra.

Fræðsla

2. desember 2008

Þjálfarar Íslandsmeistaraliða frá upphafi

Hér að neðan má sjá lista yfir þjálfara Íslandsmeistaraliða í efstu deild, karla og kvenna, frá upphafi.  Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri, hefur upp á síðkastið unnið við að taka saman þennan lista.

Fræðsla

1. desember 2008

Æfingar hjá U16, U17 og U19 karla um komandi helgi

Um helgina verða æfingar hjá landsliðum U16, U17 og U19 karla.  Landsliðsþjálfararnir Freyr Sverrisson, Luka Kostic og Kristinn R. Jónsson hafa valið 100 leikmenn til þessara æfinga.

Landslið

1. desember 2008

Vináttulandsleikur við Holland 23. apríl

Knattspyrnusambönd Íslands og Hollands hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Kórnum, 23. apríl næstkomandi.   Þetta er í fyrsta skiptið er landslið kvenna leikur  í Kórnum.

Landslið

28. nóvember 2008

Riðlaskiptingin klár fyrir Algarve Cup 2009

Skipt hefur verið í riðla á Algarve Cup 2009 en íslenska kvennalandsliðið mun þar leika í B riðli með Bandaríkjunum, Danmörku og Noregi.  Þetta mót er góður undirbúningur fyrir úrslitakeppni EM í Finnlandi næsta sumar.

Landslið

28. nóvember 2008

Vinnufundir með félögum vegna leyfisferlisins 2009

Boðað hefur verið til funda með leyfisfulltrúum félaga í Landsbankadeild karla og 1. deild karla.  Farið verður yfir nokkur mikilvæg atriði tengd leyfishandbókinni og leyfisferlinu.

Leyfiskerfi

27. nóvember 2008

Fjármálaráðstefna í Laugardalshöll

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir fjármálaráðstefnu föstudaginn 28. nóvember nk. kl. 13-16 í Laugardalshöll. Ráðstefnustjóri verður Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár.

Fræðsla

26. nóvember 2008

KR auglýsir eftir þjálfara

Knattspyrnufélag Reykjavíkur leitar að einstaklingi með áhuga og reynslu af þjálfun.  Um er að ræða þjálfun á 3.flokk karla í knattspyrnu . 

Fræðsla

25. nóvember 2008

70 leikmenn boðaðir til æfinga hjá U17 og U19 karla

Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og hafa Luka Kostic og Kristinn R. Jónsson valið leikmenn til þessara æfinga.  Samtals eru það 70 leikmenn sem eru boðaðir í þessum aldursflokkum.

Landslið

24. nóvember 2008

56 stúlkur léku með yngri landsliðum kvenna á árinu

Það voru 56 stúlkur sem léku með yngri landsliðum kvenna á árinu 2008.  32 leikmenn úr 13 íslenskum félögum og 1 erlendu léku með U19 landsliði kvenna og 29 leikmenn úr 14 íslenskum félögum léku með U17 landsliði kvenna á þessu ári.

Landslið

24. nóvember 2008

Vináttulandsleikur við Dani 19. júlí

Knattspyrnusambönd Íslands og Danmerkur hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna mætist í vináttulandsleik 19. júlí á næsta ári og verður leikið í Kaupmannahöfn eða nágrenni.

Landslið