Verslun
Leit
SÍA

24. október 2008

Æft tvisvar í dag

Landsliðið hélt utan í gær til Dublin þar sem liðið leikur fyrri leikinn í umspili um sæti í úrslitakeppni EM kvenna 2009.  Æft var í Reykjaneshöllinni í gær og flogið síðar um daginn til Írlands.

Landslið

23. október 2008

Bráðabirgðaákvæði vegna þátttökuheimildar

Bráðabirgðaákvæðið heimilar leikmönnum sem hafa skipt um félag og eru handhafar keppnisleyfis sem  tekur gildi 20. febrúar nk. að leika nú þegar með nýju félagi í héraðsmótum (s.s. í Reykjavíkurmóti) og Íslandsmóti innanhúss (Futsal).

Lög og reglugerðir

23. október 2008

Samþykkt stjórnar KSÍ varðandi mannvirkjakafla

Varðandi samþykkt frá stjórnarfundi KSÍ á miðvikudag er rétt að skýrt komi fram að allar kröfur þær sömu og áður.  Það eina sem breytist er lokatímapunkturinn til að ljúka framkvæmdum við aðstöðu áhorfenda og fjölmiðla.

Leyfiskerfi

23. október 2008

Miðasala á Ísland - Írland

Í dag opnaði miðasala á leik Íslands og Írlands í umspili fyrir úrslitakeppni EM kvenna 2009.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 30. október kl. 18:10.  Miðaverð er 1.000 krónur og er selt í ónúmeruð sæti.  Frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. 

Landslið

23. október 2008

Haustráðstefna SÍGÍ 2008

Haustráðstefna SÍGÍ verður haldin um komandi helgi og fer hún fram í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.  Fjölmargir fyrirlestrar eru á þessari ráðstefnu og má sjá dagskrána hér að neðan. 

Fræðsla

22. október 2008

Unglingadómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ

Miðvikudaginn, 29. október, verður haldið unglingadómaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ og hefst námskeiðið kl. 20:00.  Námskeiðið er frítt en aldurstakmark á námskeiðið er 15 ár og öllum opið. 

Fræðsla

22. október 2008

KSÍ II þjálfaranámskeið á næstu vikum

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 31. október – 2. nóvember og hins vegar 14.-16. nóvember.

Fræðsla

22. október 2008

Hópurinn sem heldur til Dublin

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið 18 leikmenn er halda til Írlands á morgun til að leika í umspili fyrir úrslitakeppni EM 2009.  Leikið verður á Richmond Park, sunnudaginn 26. október kl. 15:00. 

Landslið

21. október 2008

Úrtaksæfingar hjá U17 karla og U19 karla

Úrtaksæfingar fara fram um komandi helgi hjá U17 karla og U19 karla en landsliðsþjálfararnir, Lúka Kostic og Kristinn R. Jónsson, hafa valið leikmenn til æfinga um helgina.

Landslið

21. október 2008

Unglingadómaranámskeið á Sauðárkróki

Næstkomandi fimmtudag, 23. október, verður haldið unglingadómaranámskeið í Bóknámshúsi Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og hefst námskeiðið kl. 11:20 og stendur til kl. 14:30 með matarhléi.

Fræðsla

20. október 2008

Dómarinn kemur frá Ítalíu

Kvennalandsliðið undirbýr sig nú af krafti undir umspilsleikina gegn Írum en fyrri leikurinn fer fram í Dublin næstkomandi sunnudag.  Liðið heldur utan nú á fimmtudaginn en seinni leikurinn fer svo fram hér á Laugardalsvelli kl. 18:10, fimmtudaginn 30.október.

Landslið

17. október 2008

Úrskurður í máli Tindastóls gegn ÍH

Aga- og úrskurðarnefnd hefur úrskurðað í máli Tindastóls gegn ÍH vegna leiks félaganna í 2. deild karla. 

Agamál
Lög og reglugerðir

16. október 2008

Tap gegn Makedóníu hjá U19 karla

Strákarnir í U19 liðinu töpuðu gegn Makedóníu í dag í undankeppni EM en leikið var í Makedóníu.  Lokatölur urðu 1-0 fyrir heimamennn eftir að markalaust hafði verið í hálfleik.

Landslið

16. október 2008

Hópur valinn fyrir umspilsleikina gegn Írlandi

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í dag hóp sinn fyrir umspilsleikina gegn Írum síðar í þessum mánuði.  Sigurður Ragnar valdi 23 leikmenn í hópinn en leikið verður 26. október í Dublin og 30. október á Laugardalsvelli.

Landslið

16. október 2008

U19 karla leikur gegn Makedóníu

Strákarnir í U19 leika í dag lokaleik sinn í undankeppni EM en riðillinn er leikinn í Makedóníu.  Heimamenn eru mótherjarnir í dag og hefst leikurinn kl. 12:00 að íslenskum tíma.

Landslið

16. október 2008

KSÍ VI þjálfaranámskeið í Lilleshall

KSÍ heldur VI. stigs þjálfaranámskeið í Lilleshall, Englandi dagana 16.-23. janúar 2008.  Reiknað er með að fleiri þjálfarar sæki um námskeiðið en hægt er að taka inn.  Umsækjendur verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði.

Fræðsla

15. október 2008

Sýndu lit!

Boðið verður upp á andlitsmálun fyrir viðureign Íslands og Makedóníu í dag á Laugardalsvelli.  Leikurinn hefst kl. 18:00 og er um að gera að mæta tímanlega og láta mála íslenska fánann á kinnina og ennið.

Landslið

15. október 2008

Ísland - Makedónía í dag kl. 18:00

Í dag kl. 18:00 hefst leikur Íslands og Makedóníu í undankeppni HM 2010 og er þetta síðasti leikur Íslands í undankeppninni á þessu ári.  Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í kvöld og gerir hann eina breytingu frá síðasta leik.

Landslið